07:03
Morgunútvarpið
27. jan. -Carbfix, formannskjör, handbolti og vopnaburður

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Heimildin hefur haldið úti metnaðarfullri umfjöllun allt frá ársbyrjun um kolefnisjöfnunartæknina Carbfix og Coda-terminal verkefnið umdeilda í hafnarfirði. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður segir okkur betur frá.

Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og framhaldsskólakennari, ræðir við okkur um kjaradeilu kennara og yfirvofandi verkföll og kærur.

Ísland er úr leik í HM í handbolta þrátt fyrir sigur á Argentínu í gær. Við ræðum mótið og leikina að baki við Hreiðar Levý Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmann í handbolta.

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra vakti í gær athygli á nýj­um fyr­ir­mæl­um rík­is­sak­sókn­ara sem gera lág­marks­sekt fyr­ir vopna­b­urð á al­manna­færi 150.000 kr., í stað 10.000 kr. Við ræðum málið og stóru myndina við Þorbjörgu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir reið á vaðið í gær og tilkynnti framboð sitt til formanns sjálfstæðisflokksins. Við spáum í framhaldið og lítum líka á sögu flokksins þegar að kemur að þessum málum með Friðjóni Friðjónssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,