16:05
Síðdegisútvarpið
3.júlí

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Ákveðið var fyrir skemmstu að loka sendiráði Íslands í Rússlandi frá og með 1.ágúst næstkomandi. Árni Þór Sigurðsson sendiherra er því farinn frá Moskvu en hann flaug heim á leið fyrir nokkrum dögum síðan og hann æltar að koma til okkar í Síðdegisútvarpið á eftir til að ræða veru sína í Rússlandi og ástandið í landinu.

Sólin er byrjuð að skína á suðvestur helmingi landsins og það er rjómablíða á suðurlandi en á sama tíma er spáð slyddu eða snjókomu á fjallvegum norðaustanlands á morgun. Hvað er eiginlega í gangi? Við rýnum í veðrið á eftir með Sigurði Þ. Ragnarssyni veðurfræðingi.

Við rákum augun í það að samtök um dýravelferð skora á Akureyrarbæ að styðja við Kisukot, en Ragnheiður Gunnarsdóttir hefur rekið Kisukot, kattaraðstoð á Akureyri síðastliðinn áratug. Langt er síðan jafn margir kettir hafa verið á vergangi á Akureyri og nú og fylgir mikill kostnaður starfseminni. Síðdegisútvarpið heyrði síðast í Ragnheiði fyrir rúmu ári síðan en þá stóð til að loka Kisukoti fyrir fullt og allt en nokkuð ljóst er að ekkert varð að þeim plönum. Við heyrum í Ragnheiði á eftir.

Sverrir Ingólfsson eigandi Samgönguminjasafnsins Ystafelli verður á línunni hjá okkur á eftir en á þessum degi árið 1928 ók bifreið um Öxnadalsheiði í fyrsta sinn. Við heyrum söguna af þeirri sögufrægu bílferð á sjötta tímanum.

Hjónin Hulda Tölgyes og Þorsteinn V. Einarsson eru höfundar bókar sem fjallar um Þriðju vaktina en bókin er fyrir fólk sem vill jafnrétti á eigin heimili. Og við spyrjum, vilja ekki allir jafnréttir á eigin heimili og á þessi bók því ekki erindi við alla ? Höfundarnir safna fyrir útgáfu bókarinnar á Karolinafund og við ætlum að fá Huldu til okkar á eftir til að ræða innihald bókarinnar.

En við byrjum út í eyjum þar sem að Goslokahátíðin verður sett með formlegum hætti í dag. Á línunni er Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Var aðgengilegt til 02. júlí 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,