06:50
Morgunvaktin
Öll eiga að komast í Kerlingarfjöll

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Kerlingarfjöll voru friðlýst fyrir nokkrum árum síðan og um liðna helgi var opnuð endurbætt aðstaða þar fyrir ferðamenn, og búið er að merkja upp nýjar ferðaleiðir um fjöllin. Auk þess sem búið er að gefa út bók um sögu svæðisins. Magnús Orri Marínarson Schram, sem er í forsvari fyrir uppbygginguna í Kerlingarfjöllum, og Íris Marelsdóttir, leiðsögumaður og höfundur bókarinnar, voru gestir Morgunvaktarinnar ræddu um Kerlingarfjöll og aðgengi fólks að hálendinu vítt og breitt.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Morgunvaktina úr höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins. Hann sagði frá nýjustu vendingum í Frakklandi, þar sem verið hefur alda mótmæla eftir að 17 ára piltur var skotinn til bana af lögreglumanni í úthverfi Parísar. Björn fjallaði líka um nýafstaðinn leiðtogafund Evrópusambandsins þar sem tekist var á um innflytjendamál.

Bogi Ágústsson ræddi við Þór Jónsson lögfræðing um meistaraprófsritgerð hans í lögfræði á sviði stjórnskipunarréttar. Þar gerir Þór samanburð á danskri og íslenskri stjórnarskrá. Bogi og Þór röktu stjórnarskrárþróun í löndunum frá 1849, þegar Danir fengu stjórnarskrá sem afnam einveldi konung.

Tónlist:

Ne me quitte pas - Jóhanna Vigdís Arnardóttir

Ziggy Stardust - David Bowie

Starman - David Bowie

Umsjón:

Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,