18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 03. júlí 2023

Fréttir

Útvarpsfréttir.

Minnst níu eru látin í árásum Ísraelshers á flóttamannabúðir á Vesturbakkanum. Árásirnar standa enn yfir og eru þær mestu í tuttugu ár.

Persónuvernd hefur sektað Landlæknisembættið um tólf milljónir fyrir að hafa ekki tryggt öryggi heilsufarsupplýsinga. Þetta er hæsta sekt sem Persónuvernd hefur birt. Landlæknir segir hana tilefnislausa.

Vatnsnotkun hefur verið takmörkuð í hluta Englands og fólk hefur áhyggjur af vatnsskorti í Skotlandi. Júnímánuður hefur aldrei verið jafn heitur í Bretlandi.

Fimmtíu ár eru frá því að goslokum var lýst yfir í Vestmannaeyjum. Vikulöng goslokahátíð var sett í dag.

Var aðgengilegt til 02. júlí 2024.
Lengd: 10 mín.
,