16:05
Síðdegisútvarpið
31.maí

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Fyrir helgi varði Sigrún Lóa Kristjánsdóttir meistaraverkefni sitt við læknadeild háskóla íslands. Heiti verkefnisins er Tengsl áfalla í æsku og líkamsþyngdarstuðuls og offitu á fullorðinsárum. Verkefnið er unnið upp úr stórri íslenskri rannsókn sem heitir áfallasaga kvenna og töluvert hefur verið fjallað um. Sigrún Lóa og Thor Aspelund prófessor við læknadeild koma í Síðdegisútvarpið á eftir og kynna okkur helstu niðurstöður verkefnisins.

Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi komu saman við bæjarskrifstofurnar í Hamraborg í morgun til að sýna starfsfólki leikskóla stuðning. Leikskólastarfsfólk í BSRB í ellefu sveitarfélögum eru í verkfalli í dag. Við ætlum að heyra í Ínu Kristínu Bjarnadóttur, en hún er starfsmaður í grunnskóla og foreldri leikskólabarns í Kópavogi og spyrja hana út í hvernig gangi að láta hlutina ganga upp á meðan á verkföllum stendur.

Fimmtu­dag­inn 25. maí var und­ir­rit­að­ur samn­ing­ur um að Mos­fells­bær taki al­far­ið að sér að ann­ast og þróa áfram þjón­ustu við íbúa Skála­túns en í dag búa þar 33 ein­stak­ling­ar. Hvað þýðir þetta nákvæmlega. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar kemur til okkar og fer yfir það.

Leikhópurinn Lotta er að fara af stað aftur eftir langt hlé en í dag verður frumsýnt í Elliðaárdalnum splunkunýtt leikrit um Gilitrut. Anna Bergljót Thorarensen og Sigsteinn Sigurbergsson koma til okkar í örstutt stopp á eftir áður en þau hendast á svið klukkan sex í dag.

Svo er það Havarí en það er að flytja úr Skeifunni, það fer ekki langt, bara í næsta nágrenni við heyrum í Berglind Hasler stofnanda Havarí á eftir og spyrjum út í breytingarnar.

En við byrjum á okkar manni Birni Malmquist í Brussel.

Var aðgengilegt til 30. maí 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,