06:50
Morgunvaktin
Helmingur nýrra sjúkraliða starfa ekki í heilbrigðiskerfinu

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Skortur er á sjúkraliðum og útlit fyrir að svo verði áfram, verði ekki gripið til markvissra aðgerða, en fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands hefur krafist þess að stjórnvöld bregðist við mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi málefni sjúkraliðastéttarinnar.

Ásgeir Brynjar Torfason, sérfrðingur í fjármálum, var með okkur frá Torino á Ítalíu að þessu sinni. Ásgeir ræddi skuldaþak Bandaríkjanna og fleira um skuldir og skatta, sem og ólífuolíuverð á Ítalíu.

Borgþór Arngrímsson fjallaði um dönsk málefni. Stjórn Mette Frederiksen ætlar að auka framlög Dana til Úkraínu, en sagt er að hún vilji verða næsti framkvæmdastjóri NATO. Borgþór fjallaði líka um árlegan viðburð dönsku konungsfjölskyldunnar, Royal Run, sem ætlað er að vekja athygli á nauðsyn hollrar hreyfingar.

Tónlist:

Litfríð og ljóshærð - Guitar Islandico

Sparring Partner - Paolo Conte

Come di - Paolo Conte

Den dejligste morgen - Gnags

Umsjón:

Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,