06:50
Morgunútvarpið
31. maí - aldraðir, auglýsingamarkaðurinn og Only Fans

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Ný rannsókn KPMG og félags- og vinnumarkaðsmálaráðuneytisins sýnir að eldri borgarar eru í síminni mæli efnahagsleg birgði á þjóðfélaginu og virði þeirra í efnahagslegu tilliti hefur aukist til muna. Við ræddum rannsóknina við þau Helgu Garðarsdóttur og Hallgrím Arnarson sem stóðu að henni.

Það gengur mikið á í bandarískum stjórnmálum þessa dagana. Dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillögu um hækkun skuldaþaks ríkissjóðs en málið kemur nú til kasta þingmanna fulltrúadeildarinnar, þar sem Repúblikanar hafa meirihluta. Við ræddum þessi mál og forsetakosningarnar framundan við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðing í málefnum Bandaríkjanna.

Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst kynnti í gærmorgun niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúnkt, kynnti niðurstöður rannsóknarinnar, sem fór fram í apríl síðastliðnum en svör bárust frá alls 111 markaðsstjórnum. Meðal þess sem kom fram að um 36 prósent auglýsenda myndu annað hvort minnka birtingafé sitt eða senda úr landi, taki ríkið RÚV af auglýsingamarkaði, og að um 64% svarenda sögðust líta það neikvæðum augum ef það ætti að taka RÚV af auglýsingamarkaði.

Mikil réttaróvissa ríkir í kringum framleiðslu og kaup á erótísku efni á sjálfsþurftarsíðunni Only Fans en ný meistararitgerð við Háskólann í Reykjavík varpar ljósi á þá óvissu og stóru spurningar sem uppi eru varðandi framleiðslu klámefnis, mörk vændis og heimildir lögreglu. Við fengum höfund ritgerðarinnar, Stefanie Esther Egilsdóttur, til okkar til að ræða betur rannsókn sína og niðurstöðu hennar.

Formaður samtaka leigjenda benti, í þætti gærdagsins, á að mesta þéttni golfvalla í heiminum væri hér á höfuðborgarsvæðinu, hér á landi væru flestir golfvellir miðað við höfðatölu og tímabært væri að ræða hvort það væri æskileg nýting á borgarlandi. Við ræddum þessar hugmyndir við Alexöndru Briem, formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Það má búast við múg og margmenni þegar Gallerí Fold opnar sýningu á dúkristum skáldkonunnar Ástu Sigurðardóttur á laugardaginn kemur. Dúkristurnar skreyttu einstakar sögur Ástu en sjást nú í fyrsta sinn sem sjálfstæð myndverk. Við fengum sýningarstjóra sýningarinnar, Iðunni Vignisdóttur, til okkar til að tala um þessa merkilegu sýningu.

Tónlist

LEON BRIDGES - Beyond.

Loreen - Tattoo.

Steve Lacy - Bad Habit.

BLACK PUMAS - Colors.

KUSK & ÓVITI - Elsku vinur.

CHILDISH GAMBINO - Redbone.

DOLLY PARTON - Jolene.

METRONOMY - The Look.

ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - V

Var aðgengilegt til 30. maí 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,