
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Heiðrún Helga Back flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Skortur er á sjúkraliðum og útlit fyrir að svo verði áfram, verði ekki gripið til markvissra aðgerða, en fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands hefur krafist þess að stjórnvöld bregðist við mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi málefni sjúkraliðastéttarinnar.
Ásgeir Brynjar Torfason, sérfrðingur í fjármálum, var með okkur frá Torino á Ítalíu að þessu sinni. Ásgeir ræddi skuldaþak Bandaríkjanna og fleira um skuldir og skatta, sem og ólífuolíuverð á Ítalíu.
Borgþór Arngrímsson fjallaði um dönsk málefni. Stjórn Mette Frederiksen ætlar að auka framlög Dana til Úkraínu, en sagt er að hún vilji verða næsti framkvæmdastjóri NATO. Borgþór fjallaði líka um árlegan viðburð dönsku konungsfjölskyldunnar, Royal Run, sem ætlað er að vekja athygli á nauðsyn hollrar hreyfingar.
Tónlist:
Litfríð og ljóshærð - Guitar Islandico
Sparring Partner - Paolo Conte
Come di - Paolo Conte
Den dejligste morgen - Gnags
Umsjón:
Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Róbert Jóhannsson
Tæknimaður: Mark Eldred

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Hvítar lygar nefnist glæný fjögurra þátta sjónvarpssería sem fjallar um sambönd fimm ungmenna á menntaskólaaldri, vináttu þeirra og áskoranir. Þar er tekist á við stórar spurningar um lífið og tilveruna, eins og: Hvað erum við tilbúin að gera fyrir þau sem við þekkjum og þykir vænt um? Hvenær segjum við þeim sannleikann þótt hann sé erfiður og hvenær beygum við sannleikann til að hlífa þeim? Til að segja okkur betur frá þáttunum og tilurð þeirra fengum við til okkar Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, leikstjóra og handritshöfund verksins, og Ágúst Örn Wigum Börgesson, einn leikaranna.
Gönguhátíð í Reykjavík fer fram í þriðja sinn og hófst í gær og stendur til 3.júní. ( Í dag er í boði skemmtileg innanbæjarganga um Laugardal, upp á Laugarás og niður að sjó þar sem gengið verður meðfram sjávarsíðunni að Laugarnesi og svo upp með Kringlumýrarbrautinni og aftur á upphafsstaðinn.) Einar Skúlason kom til okkar á eftir og sagði okkur frá en næstu daga verður boðið uppá margar áhugaverðar göngur fyrir alla.
Við töluðum við Björgu Árnadóttur sem er að hefja heilmikið ferðalag og ætlar að vera á bakpokaferðalagi næstu þrjá mánuði, interrail 60+ . Þetta ferðalag hefur verið draumur hjá Björgu síðan árið 1973 og hana langar að hvetja Íslendinga til að ferðast með lestum um Evrópu og eldri konur til að flakka einar á milli farfuglaheimila. Hún ætlar að blogga um ferðalagið meðan á því stendur.
Tónlist í þættinum í dag:
Öll þessi ást/Snorri Helgason og Of monsters and man(Snorri Helga og Bragi Valdimar Skúlason)
Lapis Lazuli/Helgi Björns(Guðmundur Óskar Guðmunds-Helgi Björnsson, texti Helgi Björnsson)
The fool on the hill/ Berliner Philharmoniker. Zwölf Cellisten

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Kolbrún Magnúsdóttir mannauðsstjóri og markþjálfi.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.
Fasteignamat hækkar um tæp tólf prósent á næsta ári. Hækkunin er mun minni en í fyrra vegna kólnunar á fasteignamarkaði um mitt ár. Fasteignamat á atvinnuhúsnæði lækkar að raunvirði því það heldur ekki í við verðbólgu.
Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi mótmæltu við bæjarstjórnarskrifstofurnar fyrir hádegið. BSRB félagar á leikskólum í ellefu sveitarfélögum og hafnarstarfsmenn í Þorlákshöfn eru í verkfalli í dag. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara í kvöld.
Stuðningur við samning um skuldaþak Bandaríkjanna er minni en búist var við. Tíminn sem þingið hefur til að samþykkja samninginn rennur út innan skamms.
Ríkið hefur ákveðið að leita til Hæstaréttar vegna dóms um laun dómara. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið brotlegt þegar það endurskoðaði launin afturvirkt.
Harðlínumenn í Rússlandi vilja hertar aðgerðir gegn Úkraínumönnum eftir drónaárás á Moskvu í gær. Rússar eru byrjaðir að flytja börn frá átakasvæðum.
Suður-Afríka ætlar að gera sérstaka undanþágu frá alþjóðlegri handtökuskipun á hendur Pútín Rússlandsforseta, ef ske kynni að hann kæmi þangað í opinbera heimsókn í ágúst.
Íslandsmeistarar í handbolta karla verða krýndir í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBV og Haukar mætast í hreinum úrslitaleik.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Neuralink, eitt af fjölmörgum fyrirtækjum Elon Musk sem starfa á ystu nöf tækni og vísinda, hefur fengið leyfi til að hefja prófanir á heilaflögu sinni í mönnum. Flögur Neuralink hafa þegar verið prófaðar í dýrum en vonast er til að með tækninni megi veita blindum sýn og að lamaðir geti hreyft sig á ný.
En það er bara fyrsta skrefið og gæti flagan orðið liður í því að tengja saman mennska hugsun og gervigreind, skapa ofurmennska vitsmuni og þeyta mannkyninu inn í framtíð handan þeirrar mennsku sem við þekkjum og skiljum.
Snorri Rafn Hallsson fjallar um örflögur, Neuralink og snjallheila í þætti dagsins.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Hvað áttu að gera ef þú rekst á mögulegar fornminjar á víðavangi? Það gerist nefnilega frekar reglulega á Íslandi að almenningur gangi fram á fornleifar, þekkt dæmi eru til að mynda rjúpnaskytturnar sem fundu sverð frá víkindaöld og göngufólkið sem fann skrautprýddar líkamsleifar konu frá 10. öld uppi á heiði. Þór Hjaltalín sviðstjóri hjá Minjastofnun Íslands fer yfir þetta með okkur, kemur með ráðleggingar og sögur og ýmsar vangaveltur.
Mjaldurinn Hvaldimir, sem hefur verið grunaður um að vera rússneskur njósnahvalur, sást nýlega á sundi við strendur Svíþjóðar. Áður hafði hann sóst eftir félagsskap sjómanna við Noreg. Við vitum ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann er að fara blessaður, en hann hefur augljóslega alist upp í haldi manna. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur og lektor við Háskóla Íslands ætlar að segja okkur frá Hvaldimir, mjöldrum og sjávarspendýrum sem hafa verið í haldi manna.
Við fáum málfarsmínútu að hætti hússins og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að fræða okkur um leiðir til að veita ungum börnum með hnetuofnæmi meðferð. Svokallaða afnæmingu.

Útvarpsfréttir.
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Rætt við Axel Eiríksson úrsmið um klukkur og úr.
Rætt við Guðmund Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði um rannsóknir hans á varnarkerfi líkamans.
Endurflutt brot úr Brekkukotsannál um klukkuna. Halldór Kiljan Laxness les.

Útvarpsfréttir.
Í þáttunum verður fjallað um hvað sé merkilegt við íslenskar fornbókmenntir, frá íslensku og evrópsku sjónarhorni miðalda sem og í sambandi við viðtökur bókmenntanna á síðari tímum. Kallaðir verða til fræðimenn á þessu sviði og munu þeir velta fyrir sér þekkingararfinum sem bókmenntirnar miðla og þeirri heimsýn sem þar birtist, listfenginu og þeim sköpunarkrafti sem braust fram við ritun þeirra - og sem handritin í Árnasafni eru nú þögull vitnisburður um.
Umsjón Ævar Kjartansson og Gísli Sigurðsson.
Gestur þáttarins er Orri Vésteinsson.
Umsjón: Ævar Kjartansson og Gísli Sigurðsson.
Áður á dagskrá 15. desember 2013.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Lilja Sigurðardóttir glæpasagnahöfundur er nýr bæjarlistarmaður Kópavogs. Hún hefur þó ekki alltaf búið þar í bæ. Lilja var aðeins fimm ára þegar hún flutti lagðist í heimshornaflakk með fjölskyldu sinni. Þau bjuggu í Svíþjóð, Mexíkó og á Spáni auk þess að ferðast um fleiri lönd, en komu alltaf reglulega til Íslands. Planið var alls ekkert að verða rithöfundur en handritasamkeppni Bjarts árið 2009 varð til þess að hún skrifaði sína fyrstu bók, Sporið. Lilja verður gestur okkar í Svipmynd vikunnar.
Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Kramp eftir chileska rithöfundinn Mariu Jose Ferrada, sem kom nýverið út hjá Angústúru í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Á fyrri hluta síðustu aldar komu allir helstu listamenn þjóðarinnar, róttæklingar og jafnvel útigangsmenn saman í litlu rauðu viðarhúsi við Garðastræti og ræddu heimspeki, trúmál, listir og pólitík. Það var sannkölluð salon-stemning sem skapaðist þegar Þórbergur Þórðarson, Halldór Laxness, Nína Tryggvadóttir og fleiri komu saman, lásu upp úr nýútkomnum erlendum bókum, spiluðu plötur, rökræddu og dönsuðu. Og maðurinn á bak við þetta var Erlendur í Unuhúsi. Sunneva Kristín Sigurðardóttir hefur verið að sökkva sér ofan í ævi og áhrif Erlendar - sem fæddist einmitt á þessum degi fyrir 131 ári síðan. Við setjumst niður með Sunnevu í hægindastólum heima hjá mér, stólum sem voru líklega í Unuhúsi.
Við ræðum við Jórunni Sigurðardóttur, sem vann sinn síðasta vinnudag sem fastur starfsmaður Ríkisútvarpsins í dag. Jórunn hefur verið viðloðandi útvarpsins frá 1979 þegar hún sá um umsjón unglingaþáttarins Gagns og gamans en frá árinu 1990 hefur hún verið fastráðinn dagskrárgerðarmaður á menningardeild, verið í Víðsjá, Skorningum og núna undanfarinn áratug séð um Orð um bækur. Jórunn hefur sankað að sér allskonar blöðum og bókum, og við fylgjumst með henni ganga frá bókaskápnum.
Við kíkjum í heimsókn á vinnustofu tónlistarfólks sem stendur á bak við plötuútgáfuna Skúlagata. Á laugardaginn halda þau upp á útgáfu Skúlagata 002 í Kornhlöðunni á Bankastræti, sem er önnur safnplata þessarar tónlistarmannareknu plötuútgáfu. Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko og Arnljótur Sigurðsson helltu upp á kaffi og ræddu málin.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 31. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.
Aðalsteinn Leifsson er hættur sem ríkissáttasemjari. Ástráður Haraldsson skipaður tímabundið hans stað.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar mest í Skagabyggð og í Reykhólahreppi, það er um tæplega 44%. Að meðaltali er hækkun fasteignamats tæp tólf prósent. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir horft til nýs fasteignamats í bankanum strax á morgun, til dæmis þegar kemur að endurfjármögnun lána.
Heiða Björg Hilmisdóttir. Formaður Sambands sveitarfélaga segir báða deilendur verða að gefa eftir í kjaradeilunni við BSRB. Ekki komi til greina að samningar nái lengra aftur en til 1. apríl.
Eigendur bandaríska lyfjafyrirtækisins Purdue Pharma, sem setti oxycontin á markað, hafa samið um friðhelgi frá lögsóknum í tengslum við ópíóíðafaraldur en greiða í staðinn sex milljarða dollara næstu árin. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Mikið hefur borið á því að netsvindlarar sendi tölvupóst undir yfirskini lögreglu eða dómsmálaráðuneytisins til að reyna að hafa af fólki fé. Þar stendur að verið sé að rannsaka viðkomandi í tengslum við barnaklám eða barnaníð. Ísak Regal tók saman.
ÍBV og Haukar útkljá það í oddaleik í kvöld hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitili í handbolta. Edda Sif Pálsdóttir ræddi við stuðningsmennina Tryggva Rafnsson (ÍBV) og Jóhann Ólaf Sveinbjarnason (Haukar).
----------------
Aðalsteinn Leifsson segist hafa verið vakinn og sofinn í embætti ríkissáttasemjara og tímabært að hætta og snúa sér að öðru. Átök og dómsmál í tengslum við deildu Eflingar og SA í vetur hafi e.kki haft áhrif ákvörðun hans.. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann.
Lilja Björk Einarsdóttir segir að hraðar vaxtahækkanir og staða lántakenda sé áhyggjuefni en vanskil einstaklinga hafi ekki aukist. Stígur Helgason ræddi við Lilju. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að almenn ökuréttindi á EES-svæðinu verði bundin við 18 ára aldur. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra telur ekki ástæðu til að hverfa frá því að bílprófið geti fólk fengið 17 ára hér. Björn Malmquist sagði frá.

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá fólki, fyrirbærum og hugmyndum á upplýsandi hátt.
Í þættinum í dag ætlum við að fræðast um Norræna goðafræði. Hvaðan kemur hún? Hvernig varð heimurinn til samkvæmt Norrænu goðafræðinni? Hver eru aðal goðin? Hvað er blót? Hvað eru Hávamál? Hver var Loki? Hvað gerir Miðgarðsormur? Er farið rétt með söguna í nútímaútgáfum t.d. Hollywoodbíómyndinni Thor?
Ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt um Norræna goðafræði
Sérfræðingur þáttarins er: Helgi Biering

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Píanótríós Tékknesku fílharmóníusveitarinnar sem fram fóru á Smetana-tónlistarhátíðinni í Litomysl í Tékklandi í júní s.l.
Á efnisskrá eru verk eftir Josef Suk, Bedrich Smetana, Sylvie Bodorovu og Bohuslav Martinu.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Hvað áttu að gera ef þú rekst á mögulegar fornminjar á víðavangi? Það gerist nefnilega frekar reglulega á Íslandi að almenningur gangi fram á fornleifar, þekkt dæmi eru til að mynda rjúpnaskytturnar sem fundu sverð frá víkindaöld og göngufólkið sem fann skrautprýddar líkamsleifar konu frá 10. öld uppi á heiði. Þór Hjaltalín sviðstjóri hjá Minjastofnun Íslands fer yfir þetta með okkur, kemur með ráðleggingar og sögur og ýmsar vangaveltur.
Mjaldurinn Hvaldimir, sem hefur verið grunaður um að vera rússneskur njósnahvalur, sást nýlega á sundi við strendur Svíþjóðar. Áður hafði hann sóst eftir félagsskap sjómanna við Noreg. Við vitum ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann er að fara blessaður, en hann hefur augljóslega alist upp í haldi manna. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur og lektor við Háskóla Íslands ætlar að segja okkur frá Hvaldimir, mjöldrum og sjávarspendýrum sem hafa verið í haldi manna.
Við fáum málfarsmínútu að hætti hússins og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að fræða okkur um leiðir til að veita ungum börnum með hnetuofnæmi meðferð. Svokallaða afnæmingu.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Hvítar lygar nefnist glæný fjögurra þátta sjónvarpssería sem fjallar um sambönd fimm ungmenna á menntaskólaaldri, vináttu þeirra og áskoranir. Þar er tekist á við stórar spurningar um lífið og tilveruna, eins og: Hvað erum við tilbúin að gera fyrir þau sem við þekkjum og þykir vænt um? Hvenær segjum við þeim sannleikann þótt hann sé erfiður og hvenær beygum við sannleikann til að hlífa þeim? Til að segja okkur betur frá þáttunum og tilurð þeirra fengum við til okkar Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, leikstjóra og handritshöfund verksins, og Ágúst Örn Wigum Börgesson, einn leikaranna.
Gönguhátíð í Reykjavík fer fram í þriðja sinn og hófst í gær og stendur til 3.júní. ( Í dag er í boði skemmtileg innanbæjarganga um Laugardal, upp á Laugarás og niður að sjó þar sem gengið verður meðfram sjávarsíðunni að Laugarnesi og svo upp með Kringlumýrarbrautinni og aftur á upphafsstaðinn.) Einar Skúlason kom til okkar á eftir og sagði okkur frá en næstu daga verður boðið uppá margar áhugaverðar göngur fyrir alla.
Við töluðum við Björgu Árnadóttur sem er að hefja heilmikið ferðalag og ætlar að vera á bakpokaferðalagi næstu þrjá mánuði, interrail 60+ . Þetta ferðalag hefur verið draumur hjá Björgu síðan árið 1973 og hana langar að hvetja Íslendinga til að ferðast með lestum um Evrópu og eldri konur til að flakka einar á milli farfuglaheimila. Hún ætlar að blogga um ferðalagið meðan á því stendur.
Tónlist í þættinum í dag:
Öll þessi ást/Snorri Helgason og Of monsters and man(Snorri Helga og Bragi Valdimar Skúlason)
Lapis Lazuli/Helgi Björns(Guðmundur Óskar Guðmunds-Helgi Björnsson, texti Helgi Björnsson)
The fool on the hill/ Berliner Philharmoniker. Zwölf Cellisten
Syndin er lævis og lipur, stríðsminningar Jóns Kristófers, eftir Jónas Árnason. Höfundur les, en þetta var áður á dagskrá 1984. Hér segir Jón Kristófer Sigurðsson frá ævi sinni og harla umbrotasömum lífsferli. Hann var uppalinn í Stykkishólmi, gekk ungur í Hjálpræðisherinn en starfaði einnig með veraldlegum vopnasveitum í her hans hátignar. Hann sigldi víða um heimshöfin og lenti í margháttuðum ævintýrum. Hér heima kynntist hann minnisstæðum mönnum, þar á meðal skáldinu Steini Steinarr sem orti um hann frægt kvæði, „Þegar Jón Kristófer Sigurðsson lét úr höfn, stóð Herinn á bryggjunni og söng". Þar standa þær línur sem bókin dregur nafn af. Og það var Steinn sem gaf Jóni Kristófersnafnið sem hann gekk síðan undir, í eigin munni og annarra. En synd Jóns Kristófers var ekki síst sú að hafa ungur gengið Bakkusi á vald sem stýrði síðan lífi hans að drjúgum hluta. Jónas Árnason samdi nokkrar skemmtilegar ævisögur og ýmislegt fleira, þótt kunnastur yrði hann af leikritagerð sinni. Jónas Árnason skrásetti og les.

Veðurstofa Íslands.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Á fyrri hluta síðustu aldar komu allir helstu listamenn þjóðarinnar, róttæklingar og jafnvel útigangsmenn saman í litlu rauðu viðarhúsi við Garðastræti og ræddu heimspeki, trúmál, listir og pólitík. Það var sannkölluð salon-stemning sem skapaðist þegar Þórbergur Þórðarson, Halldór Laxness, Nína Tryggvadóttir og fleiri komu saman, lásu upp úr nýútkomnum erlendum bókum, spiluðu plötur, rökræddu og dönsuðu. Og maðurinn á bak við þetta var Erlendur í Unuhúsi. Sunneva Kristín Sigurðardóttir hefur verið að sökkva sér ofan í ævi og áhrif Erlendar - sem fæddist einmitt á þessum degi fyrir 131 ári síðan. Við setjumst niður með Sunnevu í hægindastólum heima hjá mér, stólum sem voru líklega í Unuhúsi.
Við ræðum við Jórunni Sigurðardóttur, sem vann sinn síðasta vinnudag sem fastur starfsmaður Ríkisútvarpsins í dag. Jórunn hefur verið viðloðandi útvarpsins frá 1979 þegar hún sá um umsjón unglingaþáttarins Gagns og gamans en frá árinu 1990 hefur hún verið fastráðinn dagskrárgerðarmaður á menningardeild, verið í Víðsjá, Skorningum og núna undanfarinn áratug séð um Orð um bækur. Jórunn hefur sankað að sér allskonar blöðum og bókum, og við fylgjumst með henni ganga frá bókaskápnum.
Við kíkjum í heimsókn á vinnustofu tónlistarfólks sem stendur á bak við plötuútgáfuna Skúlagata. Á laugardaginn halda þau upp á útgáfu Skúlagata 002 í Kornhlöðunni á Bankastræti, sem er önnur safnplata þessarar tónlistarmannareknu plötuútgáfu. Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko og Arnljótur Sigurðsson helltu upp á kaffi og ræddu málin.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Ný rannsókn KPMG og félags- og vinnumarkaðsmálaráðuneytisins sýnir að eldri borgarar eru í síminni mæli efnahagsleg birgði á þjóðfélaginu og virði þeirra í efnahagslegu tilliti hefur aukist til muna. Við ræddum rannsóknina við þau Helgu Garðarsdóttur og Hallgrím Arnarson sem stóðu að henni.
Það gengur mikið á í bandarískum stjórnmálum þessa dagana. Dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillögu um hækkun skuldaþaks ríkissjóðs en málið kemur nú til kasta þingmanna fulltrúadeildarinnar, þar sem Repúblikanar hafa meirihluta. Við ræddum þessi mál og forsetakosningarnar framundan við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðing í málefnum Bandaríkjanna.
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst kynnti í gærmorgun niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúnkt, kynnti niðurstöður rannsóknarinnar, sem fór fram í apríl síðastliðnum en svör bárust frá alls 111 markaðsstjórnum. Meðal þess sem kom fram að um 36 prósent auglýsenda myndu annað hvort minnka birtingafé sitt eða senda úr landi, taki ríkið RÚV af auglýsingamarkaði, og að um 64% svarenda sögðust líta það neikvæðum augum ef það ætti að taka RÚV af auglýsingamarkaði.
Mikil réttaróvissa ríkir í kringum framleiðslu og kaup á erótísku efni á sjálfsþurftarsíðunni Only Fans en ný meistararitgerð við Háskólann í Reykjavík varpar ljósi á þá óvissu og stóru spurningar sem uppi eru varðandi framleiðslu klámefnis, mörk vændis og heimildir lögreglu. Við fengum höfund ritgerðarinnar, Stefanie Esther Egilsdóttur, til okkar til að ræða betur rannsókn sína og niðurstöðu hennar.
Formaður samtaka leigjenda benti, í þætti gærdagsins, á að mesta þéttni golfvalla í heiminum væri hér á höfuðborgarsvæðinu, hér á landi væru flestir golfvellir miðað við höfðatölu og tímabært væri að ræða hvort það væri æskileg nýting á borgarlandi. Við ræddum þessar hugmyndir við Alexöndru Briem, formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.
Það má búast við múg og margmenni þegar Gallerí Fold opnar sýningu á dúkristum skáldkonunnar Ástu Sigurðardóttur á laugardaginn kemur. Dúkristurnar skreyttu einstakar sögur Ástu en sjást nú í fyrsta sinn sem sjálfstæð myndverk. Við fengum sýningarstjóra sýningarinnar, Iðunni Vignisdóttur, til okkar til að tala um þessa merkilegu sýningu.
Tónlist
LEON BRIDGES - Beyond.
Loreen - Tattoo.
Steve Lacy - Bad Habit.
BLACK PUMAS - Colors.
KUSK & ÓVITI - Elsku vinur.
CHILDISH GAMBINO - Redbone.
DOLLY PARTON - Jolene.
METRONOMY - The Look.
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - V

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Róbert Jóhannsson
Tæknimaður: Mark Eldred

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
?
Morgunverkin 31. maí 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Tónlist frá útsendingarlogg 2023-05-31
KUSK & ÓVITI - Elsku vinur.
THE BLESSED MADONNA & THE HOY - Shades Of Love.
BIGGI MAUS - Ekki vera að eyða mínum tíma.
THE DOORS - Spanish Caravan.
LAUFEY - From The Start.
AIR SUPPLY - All Out Of Love.
Taylor Swift - Karma.
KK - Vegbúi.
PLACEBO - Special needs.
PRINCE - I wanna be your lover.
KARLOTTA - Freefalling.
R.E.M. - Everybody Hurts.
JFDR - Life Man.
VALDIMAR & ÖRN - Sólblóm (Live í Síðdegisútvarpinu 3. maí ?23).
COLDPLAY - Every Teardrop Is A Waterfall.
THE VERVE - Bitter Sweet Symphony.
Atlantic Ocean - Waterfall.
HERBERT GUÐMUNDSSON - Ólgandi augu þín.
BABYLON ZOO - Spaceman.
ÁSGEIR TRAUSTI - Sumargestur.
Tilbury - Madman.
TOVE LO - No one dies from love.
Karl orgeltríó, Sigga Eyrún - Steypiregn.
SPANDAU BALLET - To cut a long story short.
GLÓRA - Háður þér.
boygenius - Not Strong Enough.
GDRN & FRIÐRIK DÓR & MOSES HIGHTOWER & STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR - Springur út.
Árstíðir - Your Shadow.
HOZIER - Eat Your Young.
SIMPLE MINDS - Speed Your Love to Me.
JESSIE WARE - Begin Again.
SYKUR - Reykjavík.
BAGGALÚTUR & BIRGITTA HAUKDAL - Partýleitarflokkurinn.
FAT BOY SLIM - Praise You.
HELGI JÚLÍUS & VALDIMAR GUÐMUNDSSON - Þú ert mín.
Retrowolf - The Other Side.
Daniil - 10 af 10.
DAVID BOWIE - Space Oddity.
CELL7 - Fix it.
HARRY STYLES - As It Was.
JÓNAS SIG - Vígin falla.
SUPERSERIOUS - Bye Bye Honey.
PLÁHNETAN ÁSAMT EMILIÖNU TORRINI - Sæla.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Fasteignamat hækkar um tæp tólf prósent á næsta ári. Hækkunin er mun minni en í fyrra vegna kólnunar á fasteignamarkaði um mitt ár. Fasteignamat á atvinnuhúsnæði lækkar að raunvirði því það heldur ekki í við verðbólgu.
Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi mótmæltu við bæjarstjórnarskrifstofurnar fyrir hádegið. BSRB félagar á leikskólum í ellefu sveitarfélögum og hafnarstarfsmenn í Þorlákshöfn eru í verkfalli í dag. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara í kvöld.
Stuðningur við samning um skuldaþak Bandaríkjanna er minni en búist var við. Tíminn sem þingið hefur til að samþykkja samninginn rennur út innan skamms.
Ríkið hefur ákveðið að leita til Hæstaréttar vegna dóms um laun dómara. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið brotlegt þegar það endurskoðaði launin afturvirkt.
Harðlínumenn í Rússlandi vilja hertar aðgerðir gegn Úkraínumönnum eftir drónaárás á Moskvu í gær. Rússar eru byrjaðir að flytja börn frá átakasvæðum.
Suður-Afríka ætlar að gera sérstaka undanþágu frá alþjóðlegri handtökuskipun á hendur Pútín Rússlandsforseta, ef ske kynni að hann kæmi þangað í opinbera heimsókn í ágúst.
Íslandsmeistarar í handbolta karla verða krýndir í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBV og Haukar mætast í hreinum úrslitaleik.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Lovísa Rut
Lovísa Rut stýrði Popplandi þennan síðasta dag maímánaðar, alls konar fjölbreytt tónlist að vanda, plata vikunnar á sínum stað og þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað.
LAUFEY - Street by street.
Dina Ögon - Mormor.
Góss - Sefur sól hjá Ægi.
DUSTY SPRINGFIELD - Spooky.
Stuðmenn - Að vera í sambandi.
Jungle - Problemz.
KUL - Operator.
Dísa - Anniversary.
MANNAKORN & ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Lifði Og Dó Í Reykjavík.
Del Rey, Lana - Say Yes to Heaven.
RITA ORA - Praising You.
DAÐI FREYR - Whole Again.
Daniil, Tommy - Bakvið grímuna (feat. Tommy).
SILK SONIC - Leave The Door Open.
ARON CAN - Bakka ekki út.
Sad Night Dynamite - Sick of Your Sound.
FIRST AID KIT - Angel.
NANNA - Disaster master.
ALANIS MORISSETTE - You oughta know.
NÝDÖNSK - Klæddu Þig.
HARRY STYLES - Satellite.
LIPPS INC. - Funky town.
HOLY HRAFN & DR. VIGDÍS VALA - Reyndu bara'ð ná mér.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
M83 - Midnight City.
JENNIFER LOPEZ - If You Had My Love.
Janelle Monáe - Lipstick Lover.
MUMFORD & SONS - Little Lion Man.
Árstíðir - Your Shadow.
KLEMENS HANNIGAN - Never Loved Someone So Much.
PAVEMENT - Stereo.
SKAKKAMANAGE - Free From Love.
ÁRNASON & GDRN - Sagt Er.
RAVEN & RÚN - Handan við Hafið.
THE BLACK KEYS - Gold On The Ceiling.
TALKING HEADS - Road To Nowhere.
PJ HARVEY - A Child?s Question, August.
COREY HART - Sunglasses At Night.
DANIIL - Ef Þeir Vilja Beef (ft. Joey Christ).
LOREEN - Tattoo.
Christine & The Queens - Tears Can Be So Soft.
THE LA?S - There She Goes.
MOSES HIGHTOWER & PRINS PÓLÓ - Maðkur í Mysunni.
TAYLOR SWIFT - KARMA.
BENNI HEMM HEMM & URÐUR & KÖTT GRÁ PJÉ- Á Óvart.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fyrir helgi varði Sigrún Lóa Kristjánsdóttir meistaraverkefni sitt við læknadeild háskóla íslands. Heiti verkefnisins er Tengsl áfalla í æsku og líkamsþyngdarstuðuls og offitu á fullorðinsárum. Verkefnið er unnið upp úr stórri íslenskri rannsókn sem heitir áfallasaga kvenna og töluvert hefur verið fjallað um. Sigrún Lóa og Thor Aspelund prófessor við læknadeild koma í Síðdegisútvarpið á eftir og kynna okkur helstu niðurstöður verkefnisins.
Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi komu saman við bæjarskrifstofurnar í Hamraborg í morgun til að sýna starfsfólki leikskóla stuðning. Leikskólastarfsfólk í BSRB í ellefu sveitarfélögum eru í verkfalli í dag. Við ætlum að heyra í Ínu Kristínu Bjarnadóttur, en hún er starfsmaður í grunnskóla og foreldri leikskólabarns í Kópavogi og spyrja hana út í hvernig gangi að láta hlutina ganga upp á meðan á verkföllum stendur.
Fimmtudaginn 25. maí var undirritaður samningur um að Mosfellsbær taki alfarið að sér að annast og þróa áfram þjónustu við íbúa Skálatúns en í dag búa þar 33 einstaklingar. Hvað þýðir þetta nákvæmlega. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar kemur til okkar og fer yfir það.
Leikhópurinn Lotta er að fara af stað aftur eftir langt hlé en í dag verður frumsýnt í Elliðaárdalnum splunkunýtt leikrit um Gilitrut. Anna Bergljót Thorarensen og Sigsteinn Sigurbergsson koma til okkar í örstutt stopp á eftir áður en þau hendast á svið klukkan sex í dag.
Svo er það Havarí en það er að flytja úr Skeifunni, það fer ekki langt, bara í næsta nágrenni við heyrum í Berglind Hasler stofnanda Havarí á eftir og spyrjum út í breytingarnar.
En við byrjum á okkar manni Birni Malmquist í Brussel.

Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 31. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.
Aðalsteinn Leifsson er hættur sem ríkissáttasemjari. Ástráður Haraldsson skipaður tímabundið hans stað.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar mest í Skagabyggð og í Reykhólahreppi, það er um tæplega 44%. Að meðaltali er hækkun fasteignamats tæp tólf prósent. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir horft til nýs fasteignamats í bankanum strax á morgun, til dæmis þegar kemur að endurfjármögnun lána.
Heiða Björg Hilmisdóttir. Formaður Sambands sveitarfélaga segir báða deilendur verða að gefa eftir í kjaradeilunni við BSRB. Ekki komi til greina að samningar nái lengra aftur en til 1. apríl.
Eigendur bandaríska lyfjafyrirtækisins Purdue Pharma, sem setti oxycontin á markað, hafa samið um friðhelgi frá lögsóknum í tengslum við ópíóíðafaraldur en greiða í staðinn sex milljarða dollara næstu árin. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Mikið hefur borið á því að netsvindlarar sendi tölvupóst undir yfirskini lögreglu eða dómsmálaráðuneytisins til að reyna að hafa af fólki fé. Þar stendur að verið sé að rannsaka viðkomandi í tengslum við barnaklám eða barnaníð. Ísak Regal tók saman.
ÍBV og Haukar útkljá það í oddaleik í kvöld hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitili í handbolta. Edda Sif Pálsdóttir ræddi við stuðningsmennina Tryggva Rafnsson (ÍBV) og Jóhann Ólaf Sveinbjarnason (Haukar).
----------------
Aðalsteinn Leifsson segist hafa verið vakinn og sofinn í embætti ríkissáttasemjara og tímabært að hætta og snúa sér að öðru. Átök og dómsmál í tengslum við deildu Eflingar og SA í vetur hafi e.kki haft áhrif ákvörðun hans.. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann.
Lilja Björk Einarsdóttir segir að hraðar vaxtahækkanir og staða lántakenda sé áhyggjuefni en vanskil einstaklinga hafi ekki aukist. Stígur Helgason ræddi við Lilju. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að almenn ökuréttindi á EES-svæðinu verði bundin við 18 ára aldur. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra telur ekki ástæðu til að hverfa frá því að bílprófið geti fólk fengið 17 ára hér. Björn Malmquist sagði frá.

Létt tónlist af ýmsu tagi.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Strax komin miðvikudagur í þessari stór skemmtilegu viku og við fögnum því með nýrri tónlist frá Elín Hall & GDRN, Jungle, Ian Brown, Anohni, Alison Goldfrapp, JFDR, Blur, Virgin Orchestra, Underworld og mörgum fleirum.
Lagalistinn
ÁRNÝ MARGRÉT & JÚNÍUS MEYVANT - Spring.
MICHAEL KIWANUKA - Home Again.
ANOHNI - It Must Change.
ELÍN HALL & GDRN - Júpíter.
Costello, Elvis - I want you.
Jungle - Problemz (bonus track mp3).
HOLY HRAFN & DR. VIGDÍS VALA - Reyndu bara'ð ná mér.
Parliament - Flash light.
Brown, Ian - Rules.
THE SPECIALS - Friday Night, Saturday Morning.
DAÐI FREYR - Whole Again.
Mylo, Claptone - Drop The Pressure (Clean Edit).
Goldfrapp, Alison - Love Invention (bonus track wav).
THE BLESSED MADONNA & THE JOY - Shades Of Love.
Prydz, Eric - Pjanoo.
JFDR - Life Man.
Shins, The - New slang.
boygenius - Not Strong Enough.
BLUR - The Narcissist.
Suede - So young.
GUNNAR GUNNSTEINSSON - Á speed dial.
VIRGIN ORCHESTRA - On your knees.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
Kelela - Contact.
Hopkins, Jon, Orbital - Halcyon & On - Jon Hopkins Remix.
Harris, Calvin, Goulding, Ellie - Miracle [David Guetta Remix] (bonus track wav).
Avery, Daniel, Confidence Man - On & On (Again) (Edit) (bonus track wav).
Fred again.., Skrillex, Four Tet - Baby again.. (bonus track wav).
Underworld - And the color red.
LAUFEY - From The Start.
Fields, Lee - Waiting on the Sidelines.
Murphy, Róisín - The Universe [Radio Edit].
Monáe, Janelle - Lipstick Lover.
Koffee, Banton, Buju - Pressure [Remix].
EL-P, Killer Mike, thankugoodsir - DON?T LET THE DEVIL (Clean Edit).
Lamar, Kendrick, Beyoncé - AMERICA HAS A PROBLEM (Clean).
COI LERAY - My Body.

Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 20. -27. maí 2023.