16:05
Síðdegisútvarpið
3.nóvember

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur og nýr varaforseti kirkjuþings Þjóðkirkjunnar var gestur okkar í þættinum á mánudaginn en inntakið í viðtalinu var ræða Kristrúnar á nýafstöðnu kirkjuþingi þar sem hún hún sagði lög um trúfélög vera bastarð og að búið væri að banna börnum að hafa aðgang að Jesú Kristi. Kristrún setti fram sviðsmynd um áhrifavalda og stillti Jesú Kristi upp við hlið Tik Tok. Hún velti því einnig fyrir sér hvað hefði komið í staðinn þegar ákveðið var að hætta að segja börnum dæmisögur Jesú og hún hvatti til að það vantaði samfélagslega umræðu um þessi mál.

Í dag fáum við viðbrögð Ingu Straumland sem er formaður Siðmenntar og spyrjum hana út í þessar vangaveltur Kristrúnar og hvort hún geti svarað því hvað hafi komið í staðinn.

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur standa fyrir málþinginu ?Sambýlið við næturlífið? í kvöld. Á fundinn munu mæta auk íbúa, Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri, Erla Björnsdóttir framvkæmdarstjóri Betri svefns, Aðalgeir Ásvaldsson framkvæmdarstjóri SVEIT, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu. Hingað til okkar á eftir til að ræða sambýlið við næturlífið í miðborginni mæta Sigrún Tryggvadóttir formaður íbúasamtaka Miðborgar og Benóný Ægisson íbúi í miðbænum.

Mikið hefur verið rætt og ritað um skólamál að undanförnu, það er svo sem ekkert nýtt að rætt sé um þann merkilega málaflokk en í tengslum við sjónvarpsþættina Börnin okkar sem sýndir eru á Ruv á sunnudagskvöldum hafa umræður um líðan barna í skólum, kennsluhætti, kennara og ýmislegt fleira sprungið út. Jón Pétur Ziemsen skólamaður og núverandi aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla hefur viðrað sínar skoðanir og hugmyndir um það hvernig við getum gert betur í skólunum. bæði þegar kemur að náminu sjálfu eða líðan barnanna hann kemur til okkar á eftir og ræðir skólamál í sínum víðasta skilningi.

Atli Fannar Bjarkason kemur til okkar í dagskrárliðnum MeMe vikunnar og að þessu sinni ætlar hann að taka fyrir kaup Elon Musk á Twitter.

Og við spyrjum líka að því í dag hvers vegna við fáum sinadrátt og hvað sé hægt að gera í því. Bryndís Sigurðardóttir læknir verður á línunni.

Fimmtán hælisleitendum var vísað úr landi í viðamikilli aðgerð lögreglu í nótt. Í hópnum var fólk sem beið niðurstöðu málsmeðferðar sinnar, ýmist fyrir kærunefnd útlendingamála eða héraðsdómi. Samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, sem framfylgir brottvísunum, hefur það engin áhrif á störf deildarinnar. Hún framfylgi aðeins ákvörðun Útlendingastofnunar. Til stóð að flytja

Var aðgengilegt til 03. nóvember 2023.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,