06:50
Morgunútvarpið
3. nóv - Kvennaathvarfið, jöklar, ráðhúsið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Í ár eru 40 ár frá stofnun Kvennaathvarfsins og nú er unnið að því að safna fé fyrir nýju Kvennaathvarfi. Þörfin er mikil, en árlega dvelja um 700 konur í athvarfinu. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, stjórnarformaður Kvennaathvarfsins kom til okkar í morgunkaffi og segja frá góðgerðarkvöldi til fjáröflunar og fleiru er starfið varðar.

Efnt hefur verið til fundar hjá ungu fólki með fötlun til að fá að heyra frá þeim betur hverju má breyta til að bæta líf þeirra - en eins og gefur að skilja eru áskoranir hópsins ansi margar. Þær komu til okkar, Elín H Hinriksdóttir formaður málefnahóps ÖBÍ og Andrea Valgeirsdóttir lögfræðingur.

Við ætlum að segja frá nýjustu rannsóknum á jöklunum okkar og hvernig þeir komu undan þessu kalda íslenska sumri. Þau Andri Gunnarsson og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Jöklarannsóknarfélaginu komu til okkar með nýjustu tíðindi af ísnum sem við reiðum okkur svo sannarlega á.

Þær eru ansi myrkar, fréttirnar sem berast úr ráðhúsinu þessa dagana um fjármál Reykjavíkurborgar en í gær var greint frá því að borgin líti m.a. svo á að sumar leikskólaeiningar séu ofmannaðar en einnig að skólastigið komi til með að verða fyrir niðurskurði í mannahaldi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks komu til okkar.

Áfrýjunarnefnd kærumála háskólanema hefur komist að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands fari ekki rétt að við útreikninga á skrásetningargjaldi. Niðurstaða nefndarinnar er sú að háskólaráð hafi ekki byggt á þeim kostnaði sem raunverulega hlýst af því að veita þjónustuna sem gjaldinu er ætlað að standa undir. Rebekka Karlsdóttir formaður Stúdentaráðs kom til okkar og segir okkur hvað þetta gæti þýtt fyrir háskólanema.

Einar Kárason rithöfundur var gestur okkar upp úr klukkan hálfníu. Við ræddum hans nýjustu bók, Opið haf, lífið og listina.

Við skoðuðum siðareglur íþróttahreyfingarinnar í ljósi máls þjálfara sem var sagt upp störfum eftir að upp komst um skeytasendingar hans til iðkenda undir lögaldri. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var gestur okkar í lok þáttar.

Var aðgengilegt til 03. nóvember 2023.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,