
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Kristján Kristjánsson leikur tónlist með sínum hætti.

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Anna Birna segir frá Sóltúni sem á sínum tíma þótti mjög byltingarkenndur staður, enda áttu hjúkrunarheimili ekki að vera einhver lúxustaður fyrir gamalt fólk.

Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Dagur Fannar Magnússon flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Mataræði okkar flestra fylgir talsverð losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af framleiðslu matvæla. Það er umhverfisvænna að borða grænmeti heldur en kjöt.
Þurfum við að breyta um mataræði umhverfisins vegna, og getum við það? Auður Viðarsdóttir þjóðfræðingur vinnur að rannsókn um málið við Háskóla Íslands. Hún ræddi þessi mál við okkur.
Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á þriðjudag. Eins og staðan er núna er útlit fyrir að demókrötum farnist ekki sérlega vel. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóðina í gær, og sagði meðal annars að lýðræðið í landinu sé í hættu. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir stöðu mála.
Bogi Ágústsson talaði frá Stokkhólmi að þessu sinni og sænsk málefni á dagskrá; aðalefnið var hins vegar Grænland og öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi. Við heyrðum í Múte B. Egede, formanni grænlensku landsstjórnarinnar.
Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Tónlist:
Funnel of love - Wanda Jackson
Meet me in Stockholm - Wanda Jackson
Fritiof i Akadien - Evert Taube
Don't try to fool me - Jóhann G. Jóhannsson

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred

Útvarpsfréttir.

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Eva Björg var fyrst til að hljóta Svartfuglinn, glæpasagnaverðlaunin sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson standa að.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Kristján Kristjánsson leikur tónlist með sínum hætti.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Ragna Sólveig Þórðardóttir kom í þáttinn til okkar í dag og sagði sína reynslusögu af því að fá sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia. Fyrir rúmum þremur árum fór Ragna að taka eftir skallablettum á höfði sínu, en hún hafði alla tíð verið með þykkt og mikið rautt hár. Fljótlega var hún greind með Alopecia. Ragna segir sjálf að hún sé ekki veik þótt hún sé vissulega með sjúkdóm en hún vill ekki að sjúkdómurinn skilgreini sig. Ragna sagði sína sögu og fræddi okkur um Alopecia í dag.
Krabbameinsfélagið Framför, sem var stofnað árið 2007, er félag karla með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda. Félagið stendur fyrir árverkni- og fjáröflunarátakinu Blái trefillinn í nóvember, en félagið leggur til að hér eftir verði nóvember mánuður krabbameins í blöðruhálsi á Íslandi. Markmiðið með þessu átaki er í fyrsta lagi vitundarvakning um krabbamein í blöðruhálsi og í öðru lagi styrktarverkefni til að afla fjár við stuðnings- og þjónustuumhverfið hjá Framför. Yfirskrift átaksins í ár er Þú gengur aldrei einn. Guðmundur G. Hauksson, framkvæmdastjóri Framfarar og Stefán Stefánsson, sem er nýkominn til starfa hjá félaginu, komu í þáttinn í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Aint no Cure for Love / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
Lítil Börn / B.G. og Ingibjörg (Booker T Jones, textahöfundur ókunnur)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Pétur Henry Petersen taugalíffræðingur, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og faðir.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.
Stoðdeild Ríkislögreglustjóra flutti fimmtán umsækjendur um alþjóðlega vernd úr landi til Grikklands í nótt. Í hópnum var fólk sem ekki hafði fengið endanlega niðurstöðu sinna mála. Alls átti að flytja tuttugu og átta til Grikklands en þrettán fundust ekki þegar þeirra var leitað.
Starfsmenn Isavia beindu flóðljósum að myndavél RÚV, að því er virðist til að spilla störfum tökumanns á Keflavíkurflugvelli í nótt. Talsmaður Isavia segir að þar hafi fyrirmælum lögreglu verið fylgt. Lektor í blaða- og fréttamennsku segir þetta grófa aðför að lýðræði og aðhaldshlutverki fjölmiðla.
Breski seðlabankinn tilkynnti í dag um mestu stýrivaxtahækkun frá árinu 1992. Vextirnir hafa þrjátíufaldast á innan við ári.
Meðaltekjur öryrkja sem leita til umboðsmanns skuldara eru tæplega 14 þúsund krónum minni á mánuði en í fyrra. Formaður Öryrkjabandalagsins segir stöðuna fara versnandi.
Allir rafkaplar Zaphorizhzia kjarnorkuversins í Úkraínu eru rofnir eftir sprengingar Rússlandshers. Úkraínumenn óttast að Rússar ætli að flytja orkuna til Krímskaga.
Náttúrustofa Austurlands leggur til að veiðikvóti hreindýra verði skertur þriðja árið í röð vegna fækkunar dýranna. Kvótinn hefur ekki verið minni í sautján ár.
Knattspyrnusamband Evrópu kynnti í morgun miklar breytingar á undankeppnum stórmóta í fótbolta kvenna. Tekin verður upp deildaskipting og við bætist Þjóðadeild, líkt og í karlaflokki.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Forysta Samfylkingarinnar var algjörlega endurnýjuð á landsfundi um síðustu helgi. Ný formaður, Kristrún Mjöll Frostadóttir, er tekinn við stjórnartaumunum. Flokkurinn heitir núna Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands og merki flokksins er ekki lengur rauða kúlan, heldur alþjóðlega jafnaðarmannamerkið rauða rósin. Nýrrar forystu bíður ærið verkefni. Nú er staðan sú að helmingur sex sitjandi þingmanna Samfylkingarinnar hefur á einhverjum tímapunkti verið formaður flokksins. Fyrir ekkert svo mörgum árum átti Samfylkingin tuttugu þingsæti. Tæpan þriðjung á þingi. Í Þetta helst í dag er skoðuð saga þessa merkilega jafnaðarmannaflokks sem var stofnaður sem breiðfylking - mótvægi við íhaldið, en tapaði svo eyrum kjósenda.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við ræðum þróun nýrra uppskrifta á steypu. Ræðum við Sigríði Ósk Bjarnadóttur sem er framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Hornsteini, Hornsteinn er eignarhaldsfélag í eigu Björgunar, BM Vallá og Sementsverksmiðjunnar - semsagt allt byggingarfyrirtæki sem eru þá að reyna að koma sér upp umhverfisvænni og grænni starfsháttum, vera með í hringrásarhagkerfinu. Og svosem ekki vanþörf á, íslenski byggingariðnaðurinn með stærsta kolefnisfótsporið og steypan mengandi óþverri, því miður, eins og hún er gagnleg.
Samtök um Kvennaathvarf eru 40 ára um þessar mundir og ætla að reisa nýtt hús yfir starfsemina. Hulda Ragnheiður Árnadóttir er formaður stjórnar samtakanna. Hún ætlar að segja okkur frá Kvennaathvarfinu og nýju húsi.
Svo er umhverfispistill á sínum stað eins og alltaf á fimmtudögum, og hann tekur á máli málanna: hringrásarhagkerfinu, Það er Kolbrún Fríða Hrafnkelsdóttir hringrásarhagkerfið fulltrúi Ungra umhverfissinna sem flytur okkur pistilinn í dag.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum er fjallað um Hirðhljómsveit kjörfurstans í Mannheim sem var ein besta hljómsveit Evrópu á 18. öld. Hún var meðal annars þekkt fyrir ýmsar nýjungar og talað var um Mannheim-crescendo og Mannheim-flugelda í tónlist. Af tónskáldum sem tengdust hljómsveitinni má nefna Johann Stamitz, Niccolo Jommelli og Franz Ignaz Beck. Wolfgang Amadeus Mozart kom til Mannheim og hlýddi á hljómsveitina árið 1777 og hún hafði mikil áhrif á hann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.

Útvarpsfréttir.

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.
Við ætlum á Rauðarárholtið í dag, það er á lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg. Nýjar námsmannaíbúðir á vegum Byggingafélags námsmanna hafa risið bakvið gamla Kennaraskólann, þar við hliðina eru tvö til þrjú fjölbýlishús fyrir 60+. Norðan megin við Háteigsveg, eru fjögur þriggja hæða fjölbýlishús við Vatnsholtið, hér er um að ræða leiguíbúðir fyrir 60+. Við ætlum að fjalla um 8 íbúða hús, sem Félgasbústaðir eru að byggja fyrir fatlaða, arkitekt er Arnhildur Pálmadóttir hjá Sapp. Hér er um að ræða grænt húsnæði fyrir fatlaða, með starfsmannaíbúð, 8 íbúða hús við Háteigsveg 59. Segja má að það sem byggt hefur verið á svæðinu, séu íbúðir undir ákveðnum hatti, annað hvort aldurs eða námsmanna. Einnig er rætt við Sigrúnu Árnadóttur framkv.stj. Félagsbústaða og EYþór Friðriksson sviðsstjóra húsnæðismála.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Á sjötta áratugnum dvaldi hópur íslenskra listamanna í París og drakk í sig menningu meginlandsins. Úr varð eitt heilsteyptasta tímabil í íslenskri listasögu, þegar geómetrísk abstraktlist varð ríkjandi meðal listamanna og myndlistin hér á landi varð í fyrsta sinn í raun samstíga því sem var að gerast í norrænni og evrópskri myndlist. Listamenn hættu að skírskota til veruleikans og kusu frekar eintóna litafleti og geómetrískan strangleika í leit sinni að sannri tjáningu innri manns án utanaðkomandi áhrifa. Þessu merkilega tímabili í listasögunni eru gerð ítarleg skil í nýútkominni bók og á viðamikilli sýningu í Gerðarsafni um þessar mundir. Við lítum við í Kópavoginum hér rétt á eftir og hittum sýningastjóra Geometríu, þær Brynju Sveinsdóttur og Cecilie Gaihede.
Við förum líka í heimsókn í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands og ræðum þar við nokkra aðstandendur sýningar sem heitir Heimsins hnoss: Lúinn kistill, silfurskeið og nærbuxur (með gati). Sýningin miðlar afrakstri stórs rannsóknarverkefnis sem hefur staðið síðustu ár og var unnið af hópi fræðimanna við Háskóla Íslands í samstarfi við erlenda aðila. Á nýju sýningunni fáum við innsýn í það hvað fólk átti fyrr á tíð, hvers virði eigur þess voru og hvernig eigur fólks fyrr á öldum endurspeglast í varðveittum menningararfi þjóðarinnar.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Guðni Tómasson

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í dag fimmtudaginn 3. nóvember hefst tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sem snýr nú aftur eftir tveggja ára covid-hlé. Sex tónleikastaðir og eitthvað í kringum 80 hljómsveitir koma fram, auk fjölda hliðarviðburða - það sem er kallað off-venue.
Við sendum þáttinn út beint frá Airwaves-miðstöðinni í Kolaportinu. Við heyrum meðal annars í tónlistarkonunum Sóleyju Stefánsdóttur og Kolbrúnu Óskarsdóttur, sem kallar sig Kusk. Við ræðum við Eldar Ástráðsson og Þorbjörgu Roach Gunnarsdóttur fastagesti, og tökum púlsinn á Sindra Ástmarssyni, bókunar- og dagskrástjóra hátíðarinnar.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 3. nóvember 2022
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur óskað eftir mati á hvort lög og réttindi fatlaðra hafi verið virt við brottvísun manns í hjólastól til Grikklands í nótt. Magnús Ingvarsson skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla segir starfsfbrottvísun tveggja stúlkna sem voru nemendur þar hafa haft mikil áhrif á starfsfólk. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman.
Brottvísunum var mótmælt á Austurvelli, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði þar við Björgvin Ægi Elísson og Nönnu Hlíf Ingadóttur.
Benjamin Netanyahu verður að líkindum aftur forsætisráðherra Ísraels, eftir fjórtán mánaða setu í stjórnarandstöðu. Likud flokkur hans og aðrir hægri flokkar náðu meirihluta í þingkosningum á þriðjudaginn. Björn Malmquist sagði frá.
Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ekki hjá því komist að hækka gjaldskrá bæjarins. Skólamáltíðir, sorphirða og tónlistarnám barna er meðal þess sem verður dýrara. Óðinn Svan Óðinsson talaði við Heimi Örn Magnússon (D) og Hildu Jönu Gísladóttur (S). Ólöf Erlendsdóttir tók saman.
Vansvefta íbúar í miðborg Reykjavíkur eru að gefast upp vegna hávaða næturlífsins og selja fasteignir sínar. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Sigrúnu Tryggvadóttur, formann íbúasamtaka miðborgarinnar.
---------------------
Loftslag hlýnar hraðar í Evrópu en í öðrum heimsálfum. Meðalhitastig hefur hækkað um hálfa gráðu í álfunni á hverjum áratug frá 1991. Bjarni Rúnarsson ræddi um nýja skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar við Önna Huldu Ólafsdóttiu skrifstofustjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands og Theódóru Matthíasdóttur, sérfræðing á Veðurstofu Íslands
Kjarasamningar á íslenskum vinnumarkaði skipta hundruðum og nær aldrei er búið að semja áður en samningur rennur út. Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari er bjartsýnn á viðræður sem framundan eru en við öllu búinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann um horfur framundan og gagnagrunn sem opnaður var í dag.
Snerting, bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, verður að kvikmynd sem kemur út næsta haust. Við tökur myndarinnar í Gufunesi var meðal annars settur upp japanskur veitingastaður í New York-borg sjöunda áratugarins. Haukur Holm ræddi við Ólaf og Baltasar Kormák leikstjóra.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Útsending frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.
Ævintýrið um Öskubusku er mörg hundruð, jafnvel þúsund ára gömul þjóðsaga sem er til í óteljandi útgáfum um allan heim. Í þessum þáttum fáum við að kynnast hinum Öskubuskunum, sem margar hverjar eiga sér myrkari hliðar en Disney Öskubuskan sem í hugum margra er hin eina sanna Öskubuska. Við ferðumst fram og til baka í tíma og rúmi með það að markmiði að gera góða sögu enn betri og kannski hræða okkur dálítið inn á milli með drungalegum tilbrigðum sögunnar.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Elstu rituðu útgáfu Öskubusku ævintýrisins í Evrópu er að finna í Ævintýrasafninu Pentamerone sem ítalinn Giambattista Basile gaf út árið 1634. Við kynnumst stúlku að nafni Zezolla sem uppnefnd var Cenerentola, en cenere þýðir aska á ítölsku. Óhugnanlegir atburðir koma við sögu í þessu ævintýri og þess vegna er mælt með því að ung börn hlusti með fullorðnum.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hlustendum veitt innsýn í efnisskrá tónleika kvöldsins.

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
*Konsertforleikur eftir Karol Szymanovskíj.
*Píanókonsert nr. 1 eftir Fréderic Chopin.
*Adagio fyrir strengi eftir Jón Nordal.
*Sinfónía nr. 1 eftir Witold Lutoslavskíj.
Einleikari: Jan Lisiecki.
Stjórnandi: Eva Ollikainen.
Kynnir: Guðni Tómasson.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Ragna Sólveig Þórðardóttir kom í þáttinn til okkar í dag og sagði sína reynslusögu af því að fá sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia. Fyrir rúmum þremur árum fór Ragna að taka eftir skallablettum á höfði sínu, en hún hafði alla tíð verið með þykkt og mikið rautt hár. Fljótlega var hún greind með Alopecia. Ragna segir sjálf að hún sé ekki veik þótt hún sé vissulega með sjúkdóm en hún vill ekki að sjúkdómurinn skilgreini sig. Ragna sagði sína sögu og fræddi okkur um Alopecia í dag.
Krabbameinsfélagið Framför, sem var stofnað árið 2007, er félag karla með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda. Félagið stendur fyrir árverkni- og fjáröflunarátakinu Blái trefillinn í nóvember, en félagið leggur til að hér eftir verði nóvember mánuður krabbameins í blöðruhálsi á Íslandi. Markmiðið með þessu átaki er í fyrsta lagi vitundarvakning um krabbamein í blöðruhálsi og í öðru lagi styrktarverkefni til að afla fjár við stuðnings- og þjónustuumhverfið hjá Framför. Yfirskrift átaksins í ár er Þú gengur aldrei einn. Guðmundur G. Hauksson, framkvæmdastjóri Framfarar og Stefán Stefánsson, sem er nýkominn til starfa hjá félaginu, komu í þáttinn í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Aint no Cure for Love / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
Lítil Börn / B.G. og Ingibjörg (Booker T Jones, textahöfundur ókunnur)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í dag fimmtudaginn 3. nóvember hefst tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sem snýr nú aftur eftir tveggja ára covid-hlé. Sex tónleikastaðir og eitthvað í kringum 80 hljómsveitir koma fram, auk fjölda hliðarviðburða - það sem er kallað off-venue.
Við sendum þáttinn út beint frá Airwaves-miðstöðinni í Kolaportinu. Við heyrum meðal annars í tónlistarkonunum Sóleyju Stefánsdóttur og Kolbrúnu Óskarsdóttur, sem kallar sig Kusk. Við ræðum við Eldar Ástráðsson og Þorbjörgu Roach Gunnarsdóttur fastagesti, og tökum púlsinn á Sindra Ástmarssyni, bókunar- og dagskrástjóra hátíðarinnar.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í ár eru 40 ár frá stofnun Kvennaathvarfsins og nú er unnið að því að safna fé fyrir nýju Kvennaathvarfi. Þörfin er mikil, en árlega dvelja um 700 konur í athvarfinu. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, stjórnarformaður Kvennaathvarfsins kom til okkar í morgunkaffi og segja frá góðgerðarkvöldi til fjáröflunar og fleiru er starfið varðar.
Efnt hefur verið til fundar hjá ungu fólki með fötlun til að fá að heyra frá þeim betur hverju má breyta til að bæta líf þeirra - en eins og gefur að skilja eru áskoranir hópsins ansi margar. Þær komu til okkar, Elín H Hinriksdóttir formaður málefnahóps ÖBÍ og Andrea Valgeirsdóttir lögfræðingur.
Við ætlum að segja frá nýjustu rannsóknum á jöklunum okkar og hvernig þeir komu undan þessu kalda íslenska sumri. Þau Andri Gunnarsson og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Jöklarannsóknarfélaginu komu til okkar með nýjustu tíðindi af ísnum sem við reiðum okkur svo sannarlega á.
Þær eru ansi myrkar, fréttirnar sem berast úr ráðhúsinu þessa dagana um fjármál Reykjavíkurborgar en í gær var greint frá því að borgin líti m.a. svo á að sumar leikskólaeiningar séu ofmannaðar en einnig að skólastigið komi til með að verða fyrir niðurskurði í mannahaldi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks komu til okkar.
Áfrýjunarnefnd kærumála háskólanema hefur komist að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands fari ekki rétt að við útreikninga á skrásetningargjaldi. Niðurstaða nefndarinnar er sú að háskólaráð hafi ekki byggt á þeim kostnaði sem raunverulega hlýst af því að veita þjónustuna sem gjaldinu er ætlað að standa undir. Rebekka Karlsdóttir formaður Stúdentaráðs kom til okkar og segir okkur hvað þetta gæti þýtt fyrir háskólanema.
Einar Kárason rithöfundur var gestur okkar upp úr klukkan hálfníu. Við ræddum hans nýjustu bók, Opið haf, lífið og listina.
Við skoðuðum siðareglur íþróttahreyfingarinnar í ljósi máls þjálfara sem var sagt upp störfum eftir að upp komst um skeytasendingar hans til iðkenda undir lögaldri. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var gestur okkar í lok þáttar.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 3. nóvember 2022
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Morðingjarnir - Airwaves
Mark Ronson & Amy Winehouse - Valerie
Elín Hall - Vinir
Wiseguys - Ooh la la
Una Torfa - Fyrrverandi
Bambaló - I would run away with you again
Markús - É bisst assökunar
Talk talk - Live?s what you make it
Kasabian - The Wall
Kacey Musgraves - Space cowboy
Trúbrot - Ég veit að þú kemur
Viking giant show - Don?t look into my lies
Kylie Minogue - Can?t get blue monday
10:00
Nýdönsk - Frelsið
Kristín Sesselja - rectangular bathroom tiles
Rihanna - Ligt me up
Una Stef - Rock steady
Confidence man - Holiday
Kári - Something better
Gibson Brothers - Cuba
Omar Apollo - Evergreen
Cock robin - When your heart is weak
Birgir Hansen - Poki
KK - I think of angels
11:00
Of monsters and men - Little talks
Malcolm McLaren - Buffalo gals
Taylor swift - Anti-hero
Gorillaz - New gold Ft. Tame Impala & Bootie Brown
Sigrún Stella - Circles
10CC - I?m Mandy fly me
Tilbury - Feel this
Gus Gus & Vök - Higher
Pale Moon - Dopamine
Júníus Meyvant - High heels (Plata vikunnar)
Harry Styles - Music for a Sushi restaurant
Thomas Dolby - Airwaves
Vieux Farka Touré - Tongo Barra
12:00
Hildur & Teitur - Moníka
Kinks - Lola
Kate Bush - Running up that hill

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Stoðdeild Ríkislögreglustjóra flutti fimmtán umsækjendur um alþjóðlega vernd úr landi til Grikklands í nótt. Í hópnum var fólk sem ekki hafði fengið endanlega niðurstöðu sinna mála. Alls átti að flytja tuttugu og átta til Grikklands en þrettán fundust ekki þegar þeirra var leitað.
Starfsmenn Isavia beindu flóðljósum að myndavél RÚV, að því er virðist til að spilla störfum tökumanns á Keflavíkurflugvelli í nótt. Talsmaður Isavia segir að þar hafi fyrirmælum lögreglu verið fylgt. Lektor í blaða- og fréttamennsku segir þetta grófa aðför að lýðræði og aðhaldshlutverki fjölmiðla.
Breski seðlabankinn tilkynnti í dag um mestu stýrivaxtahækkun frá árinu 1992. Vextirnir hafa þrjátíufaldast á innan við ári.
Meðaltekjur öryrkja sem leita til umboðsmanns skuldara eru tæplega 14 þúsund krónum minni á mánuði en í fyrra. Formaður Öryrkjabandalagsins segir stöðuna fara versnandi.
Allir rafkaplar Zaphorizhzia kjarnorkuversins í Úkraínu eru rofnir eftir sprengingar Rússlandshers. Úkraínumenn óttast að Rússar ætli að flytja orkuna til Krímskaga.
Náttúrustofa Austurlands leggur til að veiðikvóti hreindýra verði skertur þriðja árið í röð vegna fækkunar dýranna. Kvótinn hefur ekki verið minni í sautján ár.
Knattspyrnusamband Evrópu kynnti í morgun miklar breytingar á undankeppnum stórmóta í fótbolta kvenna. Tekin verður upp deildaskipting og við bætist Þjóðadeild, líkt og í karlaflokki.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Siggi Gunnars og Matthías Már í beinni útsendingu frá miðborg Reykjavíkur í tilefni Iceland Airwaves.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur og nýr varaforseti kirkjuþings Þjóðkirkjunnar var gestur okkar í þættinum á mánudaginn en inntakið í viðtalinu var ræða Kristrúnar á nýafstöðnu kirkjuþingi þar sem hún hún sagði lög um trúfélög vera bastarð og að búið væri að banna börnum að hafa aðgang að Jesú Kristi. Kristrún setti fram sviðsmynd um áhrifavalda og stillti Jesú Kristi upp við hlið Tik Tok. Hún velti því einnig fyrir sér hvað hefði komið í staðinn þegar ákveðið var að hætta að segja börnum dæmisögur Jesú og hún hvatti til að það vantaði samfélagslega umræðu um þessi mál.
Í dag fáum við viðbrögð Ingu Straumland sem er formaður Siðmenntar og spyrjum hana út í þessar vangaveltur Kristrúnar og hvort hún geti svarað því hvað hafi komið í staðinn.
Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur standa fyrir málþinginu ?Sambýlið við næturlífið? í kvöld. Á fundinn munu mæta auk íbúa, Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri, Erla Björnsdóttir framvkæmdarstjóri Betri svefns, Aðalgeir Ásvaldsson framkvæmdarstjóri SVEIT, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu. Hingað til okkar á eftir til að ræða sambýlið við næturlífið í miðborginni mæta Sigrún Tryggvadóttir formaður íbúasamtaka Miðborgar og Benóný Ægisson íbúi í miðbænum.
Mikið hefur verið rætt og ritað um skólamál að undanförnu, það er svo sem ekkert nýtt að rætt sé um þann merkilega málaflokk en í tengslum við sjónvarpsþættina Börnin okkar sem sýndir eru á Ruv á sunnudagskvöldum hafa umræður um líðan barna í skólum, kennsluhætti, kennara og ýmislegt fleira sprungið út. Jón Pétur Ziemsen skólamaður og núverandi aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla hefur viðrað sínar skoðanir og hugmyndir um það hvernig við getum gert betur í skólunum. bæði þegar kemur að náminu sjálfu eða líðan barnanna hann kemur til okkar á eftir og ræðir skólamál í sínum víðasta skilningi.
Atli Fannar Bjarkason kemur til okkar í dagskrárliðnum MeMe vikunnar og að þessu sinni ætlar hann að taka fyrir kaup Elon Musk á Twitter.
Og við spyrjum líka að því í dag hvers vegna við fáum sinadrátt og hvað sé hægt að gera í því. Bryndís Sigurðardóttir læknir verður á línunni.
Fimmtán hælisleitendum var vísað úr landi í viðamikilli aðgerð lögreglu í nótt. Í hópnum var fólk sem beið niðurstöðu málsmeðferðar sinnar, ýmist fyrir kærunefnd útlendingamála eða héraðsdómi. Samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, sem framfylgir brottvísunum, hefur það engin áhrif á störf deildarinnar. Hún framfylgi aðeins ákvörðun Útlendingastofnunar. Til stóð að flytja

Útvarpsfréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 3. nóvember 2022
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur óskað eftir mati á hvort lög og réttindi fatlaðra hafi verið virt við brottvísun manns í hjólastól til Grikklands í nótt. Magnús Ingvarsson skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla segir starfsfbrottvísun tveggja stúlkna sem voru nemendur þar hafa haft mikil áhrif á starfsfólk. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman.
Brottvísunum var mótmælt á Austurvelli, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði þar við Björgvin Ægi Elísson og Nönnu Hlíf Ingadóttur.
Benjamin Netanyahu verður að líkindum aftur forsætisráðherra Ísraels, eftir fjórtán mánaða setu í stjórnarandstöðu. Likud flokkur hans og aðrir hægri flokkar náðu meirihluta í þingkosningum á þriðjudaginn. Björn Malmquist sagði frá.
Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ekki hjá því komist að hækka gjaldskrá bæjarins. Skólamáltíðir, sorphirða og tónlistarnám barna er meðal þess sem verður dýrara. Óðinn Svan Óðinsson talaði við Heimi Örn Magnússon (D) og Hildu Jönu Gísladóttur (S). Ólöf Erlendsdóttir tók saman.
Vansvefta íbúar í miðborg Reykjavíkur eru að gefast upp vegna hávaða næturlífsins og selja fasteignir sínar. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Sigrúnu Tryggvadóttur, formann íbúasamtaka miðborgarinnar.
---------------------
Loftslag hlýnar hraðar í Evrópu en í öðrum heimsálfum. Meðalhitastig hefur hækkað um hálfa gráðu í álfunni á hverjum áratug frá 1991. Bjarni Rúnarsson ræddi um nýja skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar við Önna Huldu Ólafsdóttiu skrifstofustjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands og Theódóru Matthíasdóttur, sérfræðing á Veðurstofu Íslands
Kjarasamningar á íslenskum vinnumarkaði skipta hundruðum og nær aldrei er búið að semja áður en samningur rennur út. Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari er bjartsýnn á viðræður sem framundan eru en við öllu búinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann um horfur framundan og gagnagrunn sem opnaður var í dag.
Snerting, bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, verður að kvikmynd sem kemur út næsta haust. Við tökur myndarinnar í Gufunesi var meðal annars settur upp japanskur veitingastaður í New York-borg sjöunda áratugarins. Haukur Holm ræddi við Ólaf og Baltasar Kormák leikstjóra.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Útsending frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Vináttan og eitt og annað kemur við sögu í Undiröldu kvöldsins þar sem Systur, Sycamore Tree, Júníus Meyvant, Lúpína, Sigrún Stella, Funk Harmony Park og Fjallabræður bjóða upp á nýja tónlist.
Lagalistnn
Systur - Goodbye
Sycamore Tree - How Does It Feel?
Júníus Meyvant - Guru
Lúpína - Við tvö
Sigrún Stella - Circles
Funk Harmony Park - The Killing Floor
Fjallabræður - Hæ vinur minn

Fréttastofa RÚV.
Rás 2 er fyrst og fremst á Iceland Airwaves og verðum við í beinni útsendingu frá hátíðinni fimmtudags- og föstudagskvöld. Karl Sölvi Sigurðsson sendir boltann á milli tónleikastaða og miðlar stemningunni á Airwaves til hlustenda.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson
Tónleikar:
Gugusar (Listasafn)
Systur (Fríkirkjan)
Júníus Meyvant (Listasafn)
Kaktus Einarsson (Gamla Bíó)
Nation Of Language (Gamla Bíó)
JFDR (Gamla Bíó)
Lagalisti:
Bíttu mig - Celebs & Freyjólfur
Annar séns - Gugusar
Guru - Júníus Meyvant
Missa vitið - Arnar Úlfur
Hvað er að frétta? - Emmsjé Gauti
Með hækkandi sól - Systur
F.C.K. - Birnir & Aron Can
No Coffee At The Funeral - Vök
Falleg - Snorri Helgason
Dínamít - Úlfur Úlfur & Birnir
Royals - Lorde
Bye Bye Honey - Superserious
Evergreen - Omar Apollo
Dancing In The Moonlight - Toploader
Jelly belly - BSÍ
Colors - Sycamore Tree
Mér er drull - Flott
Seasons - Future Islands
Can't Get You Off My Mind - The Vintage Caravan
En - Una Torfa
Hring Eftir Hring - Supersport!
Tökum af stað - Reykjavíkurdætur
Partýbær - HAM
Rhodos - Ultraflex
Lærðu að ljúga - Nýdönsk
Ég var að spá - Rakel & JóiPé
Everything I Know About Love - Laufey
Maggot - Amyl & The Sniffers
Fyrrverandi - Una Torfa
God's Gonna Cut You Down - John Grant

Útvarpsfréttir.