06:50
Morgunvaktin
Mataræði, kosningar í Bandaríkjunum og Heimsglugginn

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Mataræði okkar flestra fylgir talsverð losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af framleiðslu matvæla. Það er umhverfisvænna að borða grænmeti heldur en kjöt.

Þurfum við að breyta um mataræði umhverfisins vegna, og getum við það? Auður Viðarsdóttir þjóðfræðingur vinnur að rannsókn um málið við Háskóla Íslands. Hún ræddi þessi mál við okkur.

Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á þriðjudag. Eins og staðan er núna er útlit fyrir að demókrötum farnist ekki sérlega vel. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóðina í gær, og sagði meðal annars að lýðræðið í landinu sé í hættu. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir stöðu mála.

Bogi Ágústsson talaði frá Stokkhólmi að þessu sinni og sænsk málefni á dagskrá; aðalefnið var hins vegar Grænland og öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi. Við heyrðum í Múte B. Egede, formanni grænlensku landsstjórnarinnar.

Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Tónlist:

Funnel of love - Wanda Jackson

Meet me in Stockholm - Wanda Jackson

Fritiof i Akadien - Evert Taube

Don't try to fool me - Jóhann G. Jóhannsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,