16:05
Síðdegisútvarpið
13.september

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Konungssinninn og yfirlýsti jafnaðarmaðurinn Þórarinn Snorri Sigurgeirsson er farinn til Lundúna, þangað flaug hann í morgun til að leggja leið sína að kistu Elísabetar drottningar og votta henni virðingu sína. Við ætlum að heyra í Þóarni í síma á eftir og spyrja hann nánar út í ferðalagið og einlægan áhuga hans á konungsfjölskyldunni.

Á morgun verður haldinn opinn kynningarfundur um atvinnuflugnám hér á landi á vegum Icelandair og Flugakademíu Íslands. Á fundinum verður farið yfir víðan völl frá leiðinni að atvinnuflugmannsréttindinum yfir í atvinnuhorfur, en yfirvofandi vötnun er á flugmönnum á heimsvísu. Óskar Pétur Sævarsson fostöðumaður og skólastjóri Flugakademíu Íslands kemur til okkar á eftir til að ræða námið og stöðuna í greininni.

Á dögum sem þessum er nauðsynlegt að fá Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson af íþróttafréttadeild RUV í heimsókn. Hefur fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, Heimir Hallgrímsson eitthvað að gera til Jamaíku? Og hvað verður um landslið Íslands í hópfimleikum þegar Kolbrún Þöll Þorradóttir hefur slitið hásin og verður þar af leiðandi ekki með á EM? Við krefjumst svara á eftir.

Velkominn Árni eftir Viktoríu Hermannsdóttur og Allan Sigurðsson vann hug og hjörtu áhorfenda á Skjaldborg í ár og hreppti hin eftirsóttu áhorfendaverðlaun Einarinn. Nú er loksins runnin upp stóra stundin en heimildamyndin verður frumsýnd í Bíó Paradís í vikunni. Í myndinni leitar Árni Jón Árnason sem er á áttræðisaldri að svörum um uppruna sinn. Við ætlum að fræðast meira um þetta hér á eftir þegar að Viktoría og Allan kíkja i heimsókn til okkar.

Ragnar Eyþórsson heitir sá sem rýnir fyrir okkur í kvikmyndir og sjónvarpsefni. Að þessu sinni er komið að því að taka fyrir nýjustu útgáfuna af Gosa sem er sýnd á Disney+ þar sem Tom Hanks leikur á móti teiknaðri brúðu. Við heyrum álit Ragnars á þessum ósköpum á eftir.

Flestöll heimili landsins munu finna fyrir aukinni skattheimtu sem felst í fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í gær. Verð á eldsneyti hækkar og áfengi. Þá er viðbúið að auknar álögur á eldsneyti hækki flutningskostnað og vöruverð. Auður Alfa Ólafsdóttir hjá verðlagseftirliti Alþýðusambandsins segir að þetta séu mjög sérstakar aðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgurnnar og pínu öfugsnúin. Ólafur Stephensen framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekenda er sestur hérna hjá okkur.

Var aðgengilegt til 13. september 2023.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,