06:50
Morgunútvarpið
13. september - Forseti Íslands, Klíníkin og fjárlög

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Leikarinn Bjarni Snæbjörnsson heldur í vikunni af stað hringinn í kringum landið til að sýna efstu bekkjum grunnskólanna sýningu sína Góðan daginn faggi sem hefur slegið rækilega í gegn á fjölum Þjóðleikhúskjallarans allt síðasta leikár. Við fengum Bjarna til okkar hér í upphafi þáttar.

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hvetur til þess að hreindýrastofninn á veiðisvæðinu milli Jökulsár á Dal og Grímsár/Lagarfljóts, sem er helsta hreindýrasvæði landsins, verði friðaður næstu árin í von um að hann nái sér aftur á strik. Við ræddum málið við Jón Hávarð Jónsson, formann Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum.

Klíníkin í Ármúla vinnur nú að stækkun á stofnun sinni en í nýjasta tölublaði Stundarinnar er haft eftir framkvæmdastjóra Klíníkurinnar, honum Sigurði Ingiberg Björnssyni, að eftir stækkun muni Klíníkin hreinlega vera sjúkrahús. Samningar Sjúkratrygginga Íslands við Klíníkina hafa lengi verið í umræðunni en fólk greiðir aðgerðir sínar fullu verði þar þrátt fyrir að eiga rétt á niðurgreiddum aðgerðum á Landspítalanum ef það bíður mun lengur. Sigurður var gestur okkar í dag.

Fjárlög næsta árs voru kynnt í gær en Alþingi kemur saman í dag eftir sumarleyfi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kemur til með að mæla fyrir frumvarpinu á þinginu á fimmtudag og í kjölfarið sest fjárlaganefnd Alþingis niður og gerir þær breytingar sem nefndinni þykir mikilvægt að verði gerðar. Við fengum til okkar tvö úr nefndinni til að ræða helstu tíðindi fjárlagafrumvarpsins, þau Kristrúnu Frostadóttur frá Samfylkingu og Vilhjálm Árnason úr Sjálfstæðisflokki.

Forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson, er nýkominn frá Danmörku þar sem hann fagnaði krýningarafmæli Margrétar Þórhildar en enginn dagur er eins í forsetaembættinu og í mörg horn að líta fyrir hann og Elizu forsetafrú. Guðni var gestur okkar upp úr klukkan hálf níu.

Í lok þáttar kom Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, til okkar - eins og alltaf annan hvern þriðjudag.

Var aðgengilegt til 13. september 2023.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,