22:05
Rokkland
Snorri Helgason frá Víðihlíð

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Nýjasta plata Snorra Helgasonar heitir Víðihlíð og samanstendur í raun af tveimur EP plötum sem komu út stafrænt í október í fyrra og apríl í ár. Lögin á plötunni samdi Snorri á tiltölulega stuttu tímabili í einni samfelldri innblásturssprengju segir hann í fréttatilkynningu - og eiga það flest sameiginlegt að vísa í umrót og tilfinningalega ringulreið unglingsáranna.

Snorri er gestur Rokklands í dag ? og við ætlum að fara vítt og breytt ? hingað og þangað ? aftur á bak og áfram. Við spjöllum um Víðihlíð, Ríó tríó, Bob Dylan, Gretch, tónfræði, Fílalag, Berg Ebba, Sprengjuhöllina, Önnu Rakel, Excel, tónleikaferðir, Bruce Springsteen, Levon Helm, græjur, textagerð og margt fleira.

Peter Gabriel kemur svo aðeins við sögu í lokin.

Var aðgengilegt til 13. september 2023.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
e
Endurflutt.
,