06:50
Morgunútvarpið
17. nóv - Sorg, rafhleðslur, GSÍ, Okkar á milli og Landslið karla

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Rúnar Freyr Gíslason

Fimmtudaginn 18. nóvember, ætlar Örninn, minningar- og styrktarsjóður, að taka þátt í alþjóðlegum degi barna í sorg og standa fyrir málþingi í hádeginu um sorg barna. Til að segja okkur nánar frá þessu kom til okkar Séra Matthildur Bjarnadóttir, æskulýðsprestur í Vídalínskirkju og verkefnastjóri hjá Erninum.

Með breyttum fjöleignarhúsalögum frá maí 2020, sem skylda húsfélög til að bregðast við óskum um að koma upp rafhleðslustengingum, er ljóst skýra þarf fyrirkomulag hleðslu rafbíla í fjöleignarhúsum með áherslu á framtíðarlausnir og réttláta skiptingu kostnaðar milli húsfélaga og einstakra rafbílaeiganda. Þetta segir Bjarni G. Hjarðar, byggingar- og umhverfisverkfræðingur, sem er sérfræðingur og ráðgjafi á fasteignasviði Eignaumsjónar. Bjarni kom til okkar til að fara yfir þessi mál.

Aðeins einn frambjóðandi er í boði í embætti forseta Golfsambands Íslands og er því sjálfkjörin. Kjörið er þó sögulegt þar sem Hulda Bjarnadóttir, sem tekur við embættinu, er fyrsta konan til að gegna því hjá Golfsambandinu. En hvað ætlar Hulda að gera sem forseti? Hún mætti til okkar.

Á fimmtudagskvöldið hefst viðtalsþáttröðin Okkar á milli á ný í sjónvarpinu hér á RÚV. Í þetta skiptið er það Sigurlaug Jónasdóttir sem sest í sæti spyrilsins en hún tekur við af Sigmari Guðmundssyni sem skellti sér á þing nýlega. Sigurlaug er ekki óvön viðtalsforminu, en hún hefur stjórnað þáttunum Segðu mér á Rás1 um árabil. Við spjölluðum við Sigurlaugu um komandi þætti.

Nú er þátttöku íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu karla í undankeppni fyrir HM sem fram fer á næsta ári lokið, þar sem liðið lenti í næstneðsta sæti í sínum riðli. Liðið tapaði m.a. fyrir N-Makedoniu og Armeníu og ekki mikil ánægja með gengi liðsins eftir ansi sigursælt tímabil fyrir nokkrum árum, en nægir þar að nefna HM í Rússlandi 2018 og frábært gengi liðsins á EM í Frakklandi 2016. Við ræddum framtíð landsliðsins við fótboltasérfræðingana Hjörvar Hafliðason og Hörð Magnússon hjá Viaplay.

Tónlist:

Ragnar Bjarnason og Lay Low - Þannig týnist tíminn

Fleetwood Mac - Gypsy

Bríet - Sólblóm

Magni og Ágústa Eva - Við gætum reynt

Freddie Mercury - Time waits for no one

Abba - Don't shut me down

Hreimur - Gegnum tárin

Var aðgengilegt til 17. nóvember 2022.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,