20:35
Mannlegi þátturinn
Átröskun, skrýtin veröld með Gunnari Hrafni J. og aðeins færri fávitar

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Aldrei hafa verið fleiri börn og unglingar í átröskunarmeðferð á Barna- og unglingageðdeild Landspítala en nú og þetta er í fyrsta skiptið sem biðlisti er eftir að komast í meðferð. ?Það hefur verið gríðarleg aukning núna í COVID og þetta er aukning sem við erum að sjá í nágrannalöndunum, löndunum í kringum okkur,? segir Dagbjörg B. Sigurðardóttir sérfræðilæknir í átröskunarteymi BUGL í fréttum ruv fyrr í haust. Og við töluðum við Dagbjörtu og spurðum hana útí hvernig staðan væri núna.

Sólborg Guðbrandsdóttir kom í þáttinn, en nú er nýkomin út bókin Aðeins færri fávitar, en áður hafði hún gefið út bókina Fávitar auk þess að halda úti Instagram síðunni Fávitar og að fara í skóla og tala við krakka á unglingastigi um samskipti, virðingu, kynlíf, líkamsvirðingu og fleira. Sólborg er ein þeirra sem hefur verið að opna upp umræðuna og miðað við titillinn á nýju bókinni, Aðeins færri fávitar, þá mætti halda að einhver árangur væri að nást.

Gunnar Hrafn Jónsson kom svo til okkar með sína Skrýtnu veröld. Það var áhugavert að heyra hvaða skrýtnu, óvenjulegu og umfram allt áhugaverðu fréttir hann týndi saman í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,