15:03
Svona er þetta
Dagný Kristjánsdóttir

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er Dagný Kristjánsdóttir, fyrrverandi prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Dagný hefur langa reynslu af því að kenna og rannsaka bókmenntir og var á dögunum sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til kennslu og rannsókna á bókmenntum íslenskra kvenna og barnabókmenntum. Rætt er við Dagnýju um kennsluna, rannsóknirnar, barnabókmenntir, kvennabókmenntir en einnig um sálgreiningu, sem hún hefur talsvert stuðst við í rannsóknum sínum, og samspil hugvísinda og raunvísinda sem hún hefur átt þátt í að virkja með forvitnilegum hætti, meðal annars með því að flétta bókmenntir inn í læknanám við Háskóla Íslands. Að endingu munum við ræða forvitnilega grein Dagnýjar um sögur af börnum og ofbeldi gegn þeim sem kom út í Tímariti Máls og menningar í lok síðasta árs.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 51 mín.
,