Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Ómar Ragnarsson er í aðalhlutverki í þættinum og rifjuð upp barnalög og dægurlög sem hann söng og samdi á sjöunda áratugnum. Meðal annars „Lok lok og læs“ og „Sumar og sól“ með hljómsveit Svavars Gests í útsetningum Magnúsar Ingimarssonar. Einnig hljóma lög með Hljómsveit Ingimars Eydal og söngvurunum Þorvaldi Halldórssyni og Helenu Eyjólfsdóttur, Atlantic kvartettinum, Óðni Valdimarssyni og Sextetti Ólafs Gauks.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. nóvember 2005.
- Endurflutt
