21:30
Sagnaslóð
Eskifjarðarheiði

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Í þættinum er fjallað um Eskifjarðarheiði og sögulega atburði sem tengjast heiðinni.

Lesin er lýsing á Eskifjarðarheiði eftir Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðing. Einnig eru lesnar þrjár frásagnir úr fyrsta hefti bókarinnar Leiftur frá liðnum árum, sem Jón Kr. Ísfeld safnaði og Hörpuútgáfan gaf út árið 1981.

Frásagnirnar eru „Þrekraun Jóhönnu“ og „Hrakningar enskra hermanna“ eftir Bergþóru Pálsdóttur og „Saga frá Þuríðarstöðum“, höfð eftir Bjarna Jónssyni.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. mars 2010

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 41 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,