Hver sprengdi hafmeyjuna?

Leyft öllum aldurshópum

Fjórði þáttur: Eyðilegging og furðusögur

Hvað segir sagan okkur um eyðileggingu listaverka og hvað liggur oftast að baki? Gætu valdamiklir menn úr þjóðfélaginu tengst sprengingunni? Við sögu koma Ólöf Pálsdóttir og Tove Ólafsson, biskupar, stórlaxar og stúdentar.

Viðmælendur: Sigurður Trausti Traustason, Ólafur Páll Sigurðsson og Guðrún Pétursdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hver sprengdi hafmeyjuna?

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

Þættir

,