23:35
Sama viðtalið um ESB
Sama viðtalið: Baldvin ræðir við Ragnhildi Helgadóttur

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.

Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza

Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson

Grafík: Kolbrún Þóra Löve

Ljósmyndun: Ragnar Visage

Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor, var ein þeirra sem sat í samningahópi vegna viðræðna við ESB kjörtímabilið 2009-2013. Í þættinum er rætt um reynsluna af því ferli, hvaða lærdóm við getum dregið af því, muninn á EES og ESB og nauðsyn stjórnarskrárbreytingar ef Ísland á að ganga í ESB.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 18 mín.
e
Endurflutt.
,