14:25
Popplagakrufning
Angine de Poitrine: Sarniezz

Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.

Hljómsveitin Angine de poitrine hefur vakið furðulega mikla athygli að undanförnu fyrir dansvænt míkrótóna-stærðfræðirokk og skringilega doppótta búninga. Í popplagakrufningu Lestarinnar sökkvum við okkur ofan í slagarann Sarniezz og kryfjum til mergjar.

Umsjón:

Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 31 mín.
e
Endurflutt.
,