18:10
Bassajöfur norðursins
Heimsbassaleikarinn

Niels-Henning Ørsted Pedersen og tónlist hans. Umsjón: Vernharður Linnet.

Danski kontrabassaleikarinn Niels-Henning Ørsted Pedersen fæddist 27.maí árið 1946. Hann var mikill Íslandsvinur og hafði mikil áhrif á upprennandi tónlistarmenn með tónleikahaldi sínu hér á landi. Hann hélt hér fjölmarga tónleika með ýmsum hljómsveitum. Þar á meðal voru gítarleikarinn Philip Catherine og trommarinn Billy Hart sem spiluðu með honum í Háskólabíói árið 1978. Einnig lék hann hér á landi með löndum sínum Ole Kock Hansen píanóleikara og Alex Riel trommara, sem báðir áttu eftir að leika með íslenskum djasslistamönnum eins og bassajöfurinn sjálfur gerði líka.

Vernharður Linnet gerði þessa þætti árið 2006, en Niels Henning lést langt fyrir aldur fram árið 2005, 58 ára að aldri.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 45 mín.
,