Þann 4. maí 1968 sátu 14 og 15 ára ungmenni í Austurbæjarskóla og skrifuðu prófritgerð í íslensku: ,,Hverfið sem ég bý í". Ritgerðunum var ekki skilað heldur döguðu þær uppi í hvítum pappakassa sem fannst fyrir stuttu. Hvað varð um unglingana sem skrifuðu þessar ritgerðir? Eftir öll þessi ár, ættu ritgerðirnir ekki að komast í hendur réttra eiganda? Umsjón: Gerður Jónsdóttir
Af hverju eru börn skírð, er fermingin skuldbinding, hver ræður hvaða tónlist er flutt við útfarir? Um þetta og margt fleira sem snertir athafnir á vegum Þjóðkirkjunnar er fjallað í tveimur þáttum sem verða sendir út um Hvítasunnuna.
Umsjón hefur Þorgeir Ólafsson.
Amen eftir efninu. Af hverju eru börn skírð, er fermingin skuldbinding, hver ræður hvaða tónlist er flutt við útfarir? Um þetta og margt fleira sem snertir athafnir á vegum Þjóðkirkjunnar er fjallað í tveimur þáttum sem verða sendir út um Hvítasunnuna. Rætt er við prestana Davíð Þór Jónsson og Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur um skírnina, ferminguna, hjónavígslur og útfarir. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur segir frá kirkjusöng áður en hljóðfæri komu til sögunnar, Bjartur Logi Guðnason organist ræðir um tónlistina við kirkjuathafnir, Sveinn Valgeirsson prestur um sálma og Sigurður Flosason um tónlist við sálma og fleira.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjórði þátturinn af sex þar sem dregin eru fram lög við kvæði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Að þessu sinni verða eftirfarandi lög fyrir valinu: Maríuvers eftir Pál Ísólfsson sem Rannveig Fríða Bragadóttir syngur, Snert hörpu mína eftir Atla Heimi Sveinsson sem Edda Heiðrún Backman syngur, Þið förumenn jarðar eftir Atla Heimi sem Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur, Gakk hægt eftir Kristjönu Arngrímsdóttir sem hún syngur sjálf, Barnið í þorpinu eftir Bergþóru Árnadóttur sem syngur lagið, Höfðingi smiðjunnar eftir Jóhann Helgason sem Egill Ólafsson syngur, Í musterinu eftir Torfa Ólafsson sem Bergþór Pálsson syngur, Brennið þið vitar eftir Pál Ísólfsson í flutningi Karlakórs Reykjavíkur og Karlakórsins Fóstbræðra, Sjá dagar koma eftir Sigurð Þórðarson sem Gunnar Pálsson syngur með Karlakór Reykjavíkug og Stjörnurnar eftir Þórhall Þorvaldsson sem syngur lagið sjálfur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Prestar: Helgi Guðnason
Predikari/Ræðumaður: Helgi Guðnason
Organisti: Óskar Einarsson
Kór/Sönghópur: Gospelkór Fíladelfíu
Stjórnandi: Óskar Einarsson
Hljóðfæraleikarar, söngvarar, lesarar: Óskar Einarsson, píanó, Pétur Erlendsson, gítar,
Brynjólfur Snorrason, trommur, Ágúst Böðvarsson, bassi, Þórir Haraldsson, hammond, Einsöngur: Bína Hrönn
Hjaltadóttir, Hjalti Gunnlaugsson, Hrönn Svansdóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir. Ritn.lestur: Sara Helgadóttir. Vitnisburður. Indriði Thoroddsen
Upptaka og hljóðblöndun: Hrannar Kristjánsson
Fíladelfíu. Kór Fíladelfíu ásamt einsöngvurum syngur undir stjórn Óskars Einarssonar.
TÓNLIST Í MESSUNNI.
Fyrir predikun
Þökk þér Guð Lag og texti: Óskar Einarsson
Segjum Jesús Lag og texti: Dustin Smith
ísl. þýðing Árný Björg Blandon
Ritningarlestur: Sara Helgadóttir
Gott er að vera í Guðsbarna hjörð Lag: Jos. F. Knapp. Texti: Fanny J.Crosby ísl þýðing: Sigurbjörn Sveinsson
Sannleikurinn Lag og texti: Hjalti Gunnlaugsson. Einsöngur: Hjalti Gunnlaugsson og Bína Hrönn Hjaltadóttir
Vitnisburður: Indriði Thoroddsen
Minn Jesús Drottinn Jesús Lag og texti. Darlene Zschech ísl. þýðing: Guðlaugur Gunnarsson
Þig vil ég lofa Lag og texti: Kevin Jonas ísl. þýðing: Emil Hreiðar Björnsson Einsöngur: Hrönn Svansd.
Prédikun: Helgi Guðnason
Jesús, lífinu umbreytir þú Lag og texti: Óskar Einarsson
Þú ríkir enn Lag og texti: Philippa Hann o.fl. ísl. þýðing: Árný Björg Blandon Einsöngur: Þóra Gréta Þórisdóttir

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Útvarpsfréttir.
Dregið hefur úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Lengri tíma tekur að selja íbúðir og fleiri eru seldar á undirverði. Sérfræðingur segir hækkandi stýrivexti og takmarkað lánaframboð skýra þessa þróun að mestu leyti.
Tvennum sögum fer af því hvort samkomulag sé í augsýn milli Bandaríkjanna og Írans, þó samið hafi vierð um flest ágreiningsefna.
Prófessor í stjórnmálafræði segir eðlilegt að flokkar taki sér tíma við myndun meirihluta eftir kosningar. Engar formlegar viðræður eru hafnar í Reykjavík og oddviti Sjálfstæðismanna er enn að meta stöðuna eftir fundi með oddvitum Viðreisnar, Framsóknarflokks og Miðflokks.
Leó fjórtándi páfi baðst í morgun afsökunar á þætti kaþólsku kirkjunnar í þrælahaldi. Þá varaði hann við óheftum áhrifum gervigreindar á þróun heimsmála.
Hægri flokkar báru sigur úr bítum í þingkosningum á Kýpur í gær. Harðlínuflokkur á hægri vængnum jók fylgi sitt töluvert og er nú sá þriðji stærsti á þingi.
Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 varð í Bárðarbungu í nótt. Hátt í þrjátíu eftirskjálftar hafa mælst.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur og vígslubiskup var nærri orðinn forseti Íslands 1952 en tapaði naumlega fyrir Ásgeiri Ásgeirssyni. Ekki er víst að Bjarni hafi grátið úrslitin mjög enda var hann fyrst og fremst guðsmaður. Í þættinum má heyra brot úr eldmóðugri prédikun hans frá því í messu í dómkirkjunni í upphafi árs 1951.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja.
Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
Þættir um framlag þýsk-íslenska menntavísindamannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar skólasögu. Fjallað er um ævi og störf þýsk-íslenska uppeldis- og menntafrömuðarins, Wolfgangs Edelsteins, sem átti stóran þátt í leggja grunn að íslensku skólakerfi okkar daga. Wolfgang flúði með foreldrum sínum til Íslands undan ógnarstjórn nasista á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir að hann lauk stúdentsprófi frá M.R. fór hann til náms í Frakklandi og síðar í sínu gamla heimalandi, þar sem hann gat sér orð sem menntafrömuður og frumkvöðull í skólamálum. Á sjöunda áratug síðustu aldar var hann fenginn til að vera ráðgjafi nýrrar skólarannsóknadeildar sem sett var á laggirnar í menntamálaráðuneytinu. Að þessu verkefni vann hann í tæpa tvo áratugi, eða þar til deildin var lögð niður á níunda áratugnum.
Í þessum seinni þætti um framlag þýsk-íslenska hugsuðarins og fræðimannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar menntasögu á síðustu öld, er sjónum einkum beint að hatrömmum deilum um nýjungarnar sem Wolfgang Edelstein og samverkafólk hans í skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins lagði til og kenndar hafa verið við „sögukennsluskammdegi“. Deilurnar snerust framar öðru um kennslu í Íslandsögu á grunnskólastigi. Andstæðingar þeirra breytinga sem Wolfgang og samherjar hans vildu gera á námsefni og kennsluháttum, héldu því m.a. fram að í þeim fælist hvorki meira né minna en aðför að íslensku þjóðerni, með því að stórlega væri dregið úr kennslu í Íslandssögu. Í þættinum er fléttað saman blaðaskrifum og þingræðum, þar sem þessi andstæðu sjónarmið tókust á.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason og Svala Arnardóttir.
Vasagangan er 90 km gönguskíðakeppni frá Sälen til þorpsins Mora í dölunum í Svíþjóð. Á milli Sälen og Mora er vegur sem er vel hægt að keyra á rúmlega einum klukkutíma en ég ásamt rúmlega 15.000 keppendunum hef ákveðið að borga fúlgur fjár fyrir og ganga þetta á gönguskíðum. Af hverju? Ég veit það ekki alveg.
Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Hljóðritun frá ljóðatónleikum Jóhanns Kristinssonar barítónsöngvara og Ammiels Bushakevitz píanóleikara í tónleikaröð Hörpu, Sigildum sunnudögum.
Jóhann Kristinsson hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir söng sinn. Í fyrra hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins innan sígildrar tónlistar. Píanóleikarinn Ammiel Bushakevitz er einnig margverðlaunaður og kemur reglulega fram með mörgum af virtustu ljóðasöngvurum samtímans.
Undanfarin ár hafa þeir Jóhann og Ammiel haldið fjölmarga ljóðatónleika hérlendis og flutt m.a. Vetrarferðina og Svanasönginn eftir Franz Schubert við frábærar viðtökur. Á þessum tónleikum sem fram fóru í nóvember á síðasta ári var komið að ljóðaflokkinum „Malarastúlkunni fögru” eða „Die schöne Müllerin”, sem Schubert samdi árið 1823 við ljóð Wilhelms Müller.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir

Fréttir

Niels-Henning Ørsted Pedersen og tónlist hans. Umsjón: Vernharður Linnet.
Danski kontrabassaleikarinn Niels-Henning Ørsted Pedersen fæddist 27.maí árið 1946. Hann var mikill Íslandsvinur og hafði mikil áhrif á upprennandi tónlistarmenn með tónleikahaldi sínu hér á landi. Hann hélt hér fjölmarga tónleika með ýmsum hljómsveitum. Þar á meðal voru gítarleikarinn Philip Catherine og trommarinn Billy Hart sem spiluðu með honum í Háskólabíói árið 1978. Einnig lék hann hér á landi með löndum sínum Ole Kock Hansen píanóleikara og Alex Riel trommara, sem báðir áttu eftir að leika með íslenskum djasslistamönnum eins og bassajöfurinn sjálfur gerði líka.
Vernharður Linnet gerði þessa þætti árið 2006, en Niels Henning lést langt fyrir aldur fram árið 2005, 58 ára að aldri.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Stórsveit Reykjavíkur hélt spennandi tónleika föstudaginn 24. apríl kl.18:00 í Norðurljósasal Hörpu. Flutt var tónlist úr barnasöngleiknum Bláa Hnettinum sem er byggður á sögu Andra Snæs Magnasonar með tónlist eftir Kristjönu Stefánsdóttur og söngtextum eftir Berg Þór Ingólfsson. Nú hefur þessi vinsæla tónlist verið útsett fyrir stórsveit af Eiríki Rafni Stefánssyni sem einnig var stjórnandi á tónleikunum.
Sérstakir gestir voru leikararnir Björgvin Franz Gíslason og Hjörtur Jóhann Jónsson auk Barnakórs Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Barnakórs Ungleikhússins í Keflavík undir stjórn Kristjönu Stefáns ásamt ungum einsöngvurum frá Ungleikhúsinu í Keflavík og Grandaskóla í Reykjavík. Þess má geta að Blái hnötturinn hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins og tónlist ársins árið 2016. Tónleikarnir voru haldnir í samvinnu við Barnamenningarhátíð.
Hlutverk:
Skógarbjörn og sögumaður: Hjörtur Jóhann Jónsson
Gleði Glaumur: Björgvin Franz Gíslason
Hulda: Helena Björg Halldórsdóttir
Brimir: Ágúst Þór Guðmundsson
Margrét: Fríða Daðadóttir
Örvar & Steinar: Eysteinn Ari Arnarsson
Eydís spekingur: Elísabet Sól Sigurðardóttir
Rökkvi: Birkir Frosti Kjartansson
Lóa: Halla Björk Guðjónsdóttir
Dirrindí: Ástrós Tekla Jóhannsdóttir
Tónlist: Kristjana Stefáns
Söngtextar og handrit: Bergur Þór Ingólfsson
Saga: Andri Snær Magnason
Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Eiríkur Rafn Stefánsson

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands
Aldarminning Jóns Sigurðssonar, harmonikuleikara, lagahöfundar og textasmiðs. Jón vann í Búnaðarbankanum allan sinn starfsferil og fékkst jafnframt við hljóðfæraleik. Hann var oft nefndur Jón í bankanum til aðgreiningar frá alnöfnum sínum í tónlistinni. Margir söngtextar Jóns eru fyrir löngu orðnir sígildir, en hann samdi líka eftirminnileg dægurlög.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræðir við Ólaf Hauk Símonarson, leikskáld, rithöfund og söngvaskáld, sem er heiðursverðlaunahafi Grímunnar árið 2022.

Útvarpsfréttir.
Júlía Margrét Einarsdóttir fylgir hlustendum af stað inn í daginn með léttu spjalli og ljúfum tónum.
Júlía Margrét fylgdi hlustendum inn í mánudaginn annan í hvítasunnu. Gestur þáttarins var Katla Njálsdóttir leik- og söngkona en þema dagsins var hvítur. Lögin í þættinum tengdust þemanu á margan hátt, þá var fjallað um máva, brúðkaup og fána svo eitthvað sé nefnt.
Lög þáttarins:
PÁLL ÓSKAR OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Pabbi Vill Mambó.
BLUR - Coffee - Tv.
KYLIE MINOGUE - Padam Padam.
Helena Eyjólfsdóttir, Lange, Walter - Hvítu mávar.
Bubbi Morthens - Við föllum.
LILY ALLEN - Smile.
Tame Impala - Dracula.
DIDO - White Flag.
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
Idol, Billy - White wedding.
LOVIN' SPOONFUL - Summer in the city.
Herra Hnetusmjör - Hvítur bolur Gullkeðja.
ROLLING STONES - Angie.
Laufey - Madwoman.
Grýlurnar - Valur og jarðaberjamaukið hans.
Dúkkulísur - Pamela.
Mammaðín - Frekjukast.
Mars, Bruno - I Just Might.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
Greiningardeildin, Emilíana Torrini, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
UB40 - Can't Help Falling In Love.
Útvarpsfréttir.
Dregið hefur úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Lengri tíma tekur að selja íbúðir og fleiri eru seldar á undirverði. Sérfræðingur segir hækkandi stýrivexti og takmarkað lánaframboð skýra þessa þróun að mestu leyti.
Tvennum sögum fer af því hvort samkomulag sé í augsýn milli Bandaríkjanna og Írans, þó samið hafi vierð um flest ágreiningsefna.
Prófessor í stjórnmálafræði segir eðlilegt að flokkar taki sér tíma við myndun meirihluta eftir kosningar. Engar formlegar viðræður eru hafnar í Reykjavík og oddviti Sjálfstæðismanna er enn að meta stöðuna eftir fundi með oddvitum Viðreisnar, Framsóknarflokks og Miðflokks.
Leó fjórtándi páfi baðst í morgun afsökunar á þætti kaþólsku kirkjunnar í þrælahaldi. Þá varaði hann við óheftum áhrifum gervigreindar á þróun heimsmála.
Hægri flokkar báru sigur úr bítum í þingkosningum á Kýpur í gær. Harðlínuflokkur á hægri vængnum jók fylgi sitt töluvert og er nú sá þriðji stærsti á þingi.
Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 varð í Bárðarbungu í nótt. Hátt í þrjátíu eftirskjálftar hafa mælst.
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fjórtánda þætti eru árin 2013 til 2017 til umfjöllunar, þegar Bubbi gaf út plöturnar Æsku minnar jól, 18 konur og Túngumál. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum þáttum: Árið er, Ísland got talent, Orð af orði, Plata vikunnar, Segðu mér og Síðdegisútvarp Rásar 2.
Viðmælendur í fjórtánda þætti eru Anna Sigríður Þráinsdóttir, Bubbi Morthens og Sigrún Hermannsdóttir.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðmundur Pálsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Lagalisti:
Bubbi & Sólskuggarnir - Snjór
Bubbi & Sólskuggarnir - Út um alheiminn
Bubbi & Sólskuggarnir - Logn og kyrrð
Bubbi & Sólskuggarnir - Gleðileg jól
Bubbi & Sólskuggarnir - Gleym mér ei
Bubbi - Grillað á kvöldin (Live)
Teitur Magnússon - Háflóð
Laufey - If I Ain’t Got You
Alda Dís & Bubbi - Í hjarta mér
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Þarna flýgur ríka fólkið
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Hefndarklám
Bubbi & Spaðadrottningarnar - 18 konur
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Hægt andlát 14 ára stelpu
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Hærri laun
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Jafnrétti
Bubbi & Spaðadrottningarnar - Dögun
Bubbi & Dimma - Poppstjarnan (Live)
Bubbi & Dimma - Breyttir tímar
Bubbi - Sól bros þín
Bubbi - Skilaðu skömminni
Bubbi - Ég er maður margra galla
Bubbi - Ég hef enga skoðun
Bubbi - Guð blessi Ísland
Bubbi - Það er þannig sem það er
Bubbi - Konur
Árið 2016 var tímabil straumspilunar, stórra yfirlýsinga og tónlistar sem braut reglurnar. Þetta var árið þar sem tónlistarfólk tók stjórn á eigin sögum og hljóðheimur poppsins stækkaði.
Lovísa Rut og Nanna Guðrún kafa ofan í árið og rifja það upp í tónlistar- og menningarlegu samhengi.

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Rebekka Blöndal kemur í Plötu vikunnar til að kynna Kannski, sína aðra plötu en þá fyrstu sem er algjörlega hennar eigin. Þar sem Ljóð frá 2022 var samstarfsverkefni, eru öll lögin á Kannski samin af Rebekku sjálfri, frá námsverkefnum í Listaháskólanum til sófahangs heima við. Við ræðum allt ferlið hingað til en hlustum líka á kynningar fyrir lög plötunnar auk laganna sjálfra.
Fjallað verður um rofið á milli listgreina með sérstaka áherslu á samband hljóðs og myndar. Í þáttunum segja listamenn frá eigin rofum í listsköpun, mómentið þegar miðlar mætast, skarast eða brjóta upp hefðbundin mörk eða viðmið. Samtölin varpa ljósi á hvernig slík rof móta bæði listsköpunina sjálfa og hvernig listheimurinn virkar, kerfislegt mengi og listþróun í þessu samhengi.
Umsjón: Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir.
Í þriðja þætti Rofs segir Unnur Andrea frá verkum sínum í samhengi við rofið á milli hljóð og mynd. Lagið Wrong Frequency eftir Apex Anima af plötunni EL F O sem kom út árið 2023 heyrist í upphaf þáttar.