Malarastúlkan fagra

Birt

25. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Malarastúlkan fagra

Hljóðritun frá ljóðatónleikum Jóhanns Kristinssonar barítónsöngvara og Ammiels Bushakevitz píanóleikara í tónleikaröð Hörpu, Sigildum sunnudögum.

Jóhann Kristinsson hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir söng sinn. Í fyrra hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins innan sígildrar tónlistar. Píanóleikarinn Ammiel Bushakevitz er einnig margverðlaunaður og kemur reglulega fram með mörgum af virtustu ljóðasöngvurum samtímans.

Undanfarin ár hafa þeir Jóhann og Ammiel haldið fjölmarga ljóðatónleika hérlendis og flutt m.a. Vetrarferðina og Svanasönginn eftir Franz Schubert við frábærar viðtökur. Á þessum tónleikum sem fram fóru í nóvember á síðasta ári var komið ljóðaflokkinum „Malarastúlkunni fögru” eða „Die schöne Müllerin”, sem Schubert samdi árið 1823 við ljóð Wilhelms Müller.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir

,