
Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Í þessum þætti og þeim næsta er svipast um á Siglufirði á árunum 1918 og 1919. Þetta voru um margt viðburðarík ár í sögu bæjarins. Árið 1918 fékk Siglufjörður kaupstaðarréttindi og árið 1919 urðu þar miklar hamfarir af völdum snjóflóða og eldsvoða.
Í þessum fyrri þætti er lesin frásögn Jóns Jóhannessonar (1878–1953), fræðimanns, af séra Bjarna Þorsteinssyni, sem var forystumaður Siglfirðinga á miklum umbrotatímum.
Efnið er sótt í bókina Siglufjarðarprestar eftir Jón Jóhannesson, sem Sögufélag Siglufjarðar gaf út árið 1949.
Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 1. apríl 2010
- Endurflutt