12:40
Heimskviður
268 - Auðir stólar og fjölþáttaógnir

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Framkvæmdastjóri NATO segir að fjölþáttaógnir séu allt of krúttlegt orð miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Við skoðum orðið, merkinguna og ógnirnar í þættinum í dag.

Svo fjöllum við um auða stóla. Einmanaleiki eykst, þetta heyrum við aftur og aftur. Í nýlegri rannsókn kemur fram að hlutfall breskra ungmenna sem upplifa sig einmana hefur fimmfaldast á undanförnum tólf árum. Við ætlum að segja sögu manns sem sagði einmanaleikanum stríð á hendur. Í minningu besta vinar síns reynir hann að fylla tóma stóla á börum í Bretlandi og framtakið hans hefur breiðst út til fleiri landa. Birta talaði við Dean Perryman um einmanaleikann, auðu stólana og vin hans Rob.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 42 mín.
    ,