Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er tónleikaplata Johnny Cash tekin upp í febrúar 1969 í San Quentin fangelsinu í Kaliforníu.
Kristján Guðjónsson kynnir plötuna og spjallar við Önnu Marsibil Clausen um San Quentin fangelsið.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.
Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tónlistin sem verður leikin í þættinum er eftir Béla Bartók og verða leikin verk þar sem heyra má áhrif frá þjóðlagatónlist Ungverjalands og Rúmeníu og fleiri svæða Mið-Evrópu. Bartók var ötull safnari þjóðlegrar tónlistar á þessum svæðum og áhrif hennar eru oft greinileg í verkum hans, bæði þar sem sjáanlegt er í titlinum að hún er notuð sem byggingarefni, og í öðrum verkum.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

frá Veðurstofu Íslands.
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Í þessum síðasta þætti skoðum við ferðir Hafmeyjunnar eftir sprenginguna, en það ferðalag leiðir okkur í Kópavog, á Hvolfsvöll, vestur á firði og svo aftur heim, til Texas. En við heimsækjum einnig fólk með upplýsingar sem varpa nýju ljósi á málið.

Útvarpsfréttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Framkvæmdastjóri NATO segir að fjölþáttaógnir séu allt of krúttlegt orð miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Við skoðum orðið, merkinguna og ógnirnar í þættinum í dag.
Svo fjöllum við um auða stóla. Einmanaleiki eykst, þetta heyrum við aftur og aftur. Í nýlegri rannsókn kemur fram að hlutfall breskra ungmenna sem upplifa sig einmana hefur fimmfaldast á undanförnum tólf árum. Við ætlum að segja sögu manns sem sagði einmanaleikanum stríð á hendur. Í minningu besta vinar síns reynir hann að fylla tóma stóla á börum í Bretlandi og framtakið hans hefur breiðst út til fleiri landa. Birta talaði við Dean Perryman um einmanaleikann, auðu stólana og vin hans Rob.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Hvað þýðir það í raun að hlusta? Í þættinum Að hlusta staf fyrir
staf segir Aníta Ósk frá sambandi sínu við eldri bróður sinn, Arnóri Frey, sem
tjáir sig með stöfun í stað talmáls. Í samtölum við móður þeirra og Arnór sjálfan
skoðar hún samskipti, misskilning og mikilvægi þess að fólk fái að segja sína
eigin sög
Umsjón: Aníta Ósk Arnardóttir

Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Í þættinum ræðir Snjólaug Ólafsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni, við Sverri um þær grundvallarbreytingar sem samfélagið er að ganga í gegnum hvað varðar verðmætamat okkar og skilning á umhverfi, mannauði og hagkerfi. Í seinni hluta þáttarins koma þær Aníta Rut Hilmarsdóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir úr Fortuna Invest, samstarfsverkefni þeirra og Rósu Kristinsdóttur, og ræða það markmið sitt að bæta miðlun til almennings um fjármál, fjárfestingar og allt sem snertir peninga og fjármálaheiminn.
Þetta er seinni þáttur um peninga.
Umsjón: Sverrir Norland.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Kvintett Red Garland - Solitude.
Foster, Ruthie - Heartshine.
Mezzoforte - Waves.
Anna Gréta Sigurðardóttir - Imaginary unit.
Vliet, Jeroen van, Smits, Koen, Gulli Gudmundsson - Philip.
Marre, Michel, Mazur, Marilyn, Tchicai, John, Zeuthen, Jesper, Rasmussen, Hugo, Dørge, Pierre, Clausen, Bent, Becker, Irene, Gouirand, Doudou, Agerholm, Kenneth, New Jungle Orchestra, Neergaard, Niels, Carlsen, Morten, Dyani, Johnny 'Mbizo', Dyani, Thomas - Dawda's dream.
Riedel, Georg, Johansson, Jan - Visa från Utanmyra.
Marína Ósk, Sunna Gunnlaugsdóttir - Ástakvæði.
Ásgeir Ásgeirsson - Wlf.
Ari Bragi Kárason - Always and Forever.
- Endurflutt

Fréttir.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Tríó Red Garland leikur lögin The Second Time Around, You'd Better Go Noe, I Wish I Knew, On A Clear Day, It's All Right With Me og Going Home. Brad Mehldau tríóið leikur lögin I Fall In Love To Easily, Blackbird, Ron's Place, Mignon's Song, I Didn't Know What Time It Was og Nobody Else But Me. Hank Jones tríóið leikur lögin Monk's Mood, Ruby My Dear, Round Midnight, Confirmation, Bloomdido, Yardbird Suite og Moose The Mooche.
- Endurflutt
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Um algengar athafnir eru oft til mörg orð sem kalla má samheiti en lýsa athöfnunum nánar vegna fjölbreyttra blæbrigða í merkingu. Sagnirnar ganga og tala lýsa einna algengustu athöfnum okkar og um hvora þeirra er til fjöldi orða sem sum eru samheiti en lengra er á milli merkingar annarra.
- Endurflutt

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Í þessum þætti og þeim næsta er svipast um á Siglufirði á árunum 1918 og 1919. Þetta voru um margt viðburðarík ár í sögu bæjarins. Árið 1918 fékk Siglufjörður kaupstaðarréttindi og árið 1919 urðu þar miklar hamfarir af völdum snjóflóða og eldsvoða.
Í þessum fyrri þætti er lesin frásögn Jóns Jóhannessonar (1878–1953), fræðimanns, af séra Bjarna Þorsteinssyni, sem var forystumaður Siglfirðinga á miklum umbrotatímum.
Efnið er sótt í bókina Siglufjarðarprestar eftir Jón Jóhannesson, sem Sögufélag Siglufjarðar gaf út árið 1949.
Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 1. apríl 2010
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Rólegur djass og sígild bandarísk dægurlög setja svip sinn á þáttinn. Meðal flytjenda eru Ray Anthony og Don Durant, The Ray Charles Singers og básúnuleikarinn Tyree Glenn. Einnig koma við sögu Al Jolson, blússöngvarinn Big Joe Turner, Billie Holiday og hljómsveit Eddie Heywood.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. desember 2005.
- Endurflutt

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Nanna Guðrún sér um réttu tónlistina á meðan þú gerir þig til og kemur þér í gírinn á laugardagskvöldi. Popp- og danstónar í bland við sígild stemningslög senda þig dansandi af stað inn í kvöldið.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.

Útvarpsfréttir.