15:03
Sögur af landi: Endurlit
52. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 7. maí 2017: „Skemmtun“ er þema þessa þáttar. Meðal þeirra sem rætt er við eru vinsælir skemmtikraftar sem og kraftafólk sem stundar dyravörslu á skemmtistöðum. Skemmtun er hér skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Jóhann G. Jóhannsson segir frá því hvernig best sé að skipuleggja stóra skemmtun og þau Sesselja Ólafsdóttir og Vilhjálmur Bragason syngja og tralla. Innslög í þættinum gerðu Dagur Gunnarsson, Rögnvaldur Már Helgason og Þórgunnur Oddsdóttir.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,