07:03
Morgunvaktin
Saga Bandaríkjanna, lífefnafræði og bassar í sígildri tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið á föstudaginn fyrir viku í umfjöllun um sögu Bandaríkjanna. Tilefnið: 250 ára afmæli ríkisins 4. júlí næst komandi. Sveinn Máni Jóhannesson, sagnfræðingur og sérfræðingur í bandarískri sögu, kom til okkar.

Svo kynntumst við lífefnafræði; fræðigreininni, mikilvægi og hagnýti. Í síðustu viku voru veitt hvatningarverðlaun Minningarsjóðs Magnúsar Más Kristjánssonar prófessors í lífefnafræði en hann lést fyrir tveimur árum. Við notuðum tilefnið og forvitnuðumst svolítið um prótein og ensími og fleira. Manuela Magnúsdóttir, lífefnafræðingur og dóttir Magnúsar, og Jens G. Hjörleifsson, lektor í lífefnafræði, sögðu frá.

Magnús Lyngdal fjallaði um bassaröddina, og bassasöngvara, í spjalli okkar um sígilda tónlist. Við heyrðum brot úr verkum eftir Händel, Mozart, Rossini, Puccini og Verdi og söng til dæmis Kristins Sigmundssonar.

Tónlist:

Margrét Helga Jóhannsdóttir - Framtíðardraumar.

Merle Haggard - Oil tanker train.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,