07:03
Morgunútvarpið
Brennivín,lýðræðislegt hlutverk fjölmiðla,Gunnlaugur Árni á US Open og fréttir vikunnar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Brennivín hlaut á dögunum gullverðlaun á International Wine & Spirit Competition (IWSC) 2026. Keppnin hefur verið haldin frá árinu 1969. Á hverju ári eru þúsundir vara frá framleiðendum um allan heim metnar af sérfræðingum greinarinnar í blindsmakki þar sem bragð, gæði, jafnvægi og karakter ráða úrslitum. Úlfar Árdal, eimingarmeistari hjá Kveldúlfi Distillery og Kristján Helgi Olsen Ævarsson, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni komu til okkar.

Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, flutti erindi um lýðræðislegt hlutverk fjölmiðla í stafrænum heimi á ráðstefnu þjóðaröryggisráðs sem fram fór í Veröld – húsi Vigdísar í gær. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu“ en hvert er þetta hlutverk sem Freyja fjallaði um? Hún kom til okkar.

Gunnlaugur Árni Sveinsson hóf leik á US Open í gærkvöldi og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til þessu fornfræga risamóti í golfi í karlaflokki. Um gríðarlegt afrek er að ræða og við ætlum að fengum til okkar Jón Júlíus Karlsson, annan þáttastjórnanda hlaðvarpsins Seinni níu, til að ræða við okkur um Gunnlaug Árna og mótið sjálft. Þá heyrðum við í Sveini Kristni Ögmundssyni, föður Gunnlaugs, sem er staddur á mótinu ásamt fríðu föruneyti til að styðja strákinn sinn.

Fréttir vikunnar verða að sjálfsögðu á sínum stað fengum við til okkar hjónin Ástu Fjeldsted, forstjóra Festi og Bolla Thoroddsen, forstjóra bókunarvefsins TripToJapan.com til að fara yfir það markverðasta.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,