13:00
Gull og grænir skógar
Garðurinn og sígrænn gróður

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er rýnt í garðinn sem vettvang garðyrkjumannsins. Rætt er um heilnæm áhrif garðyrkju. Sérstök áhersla er lögð á sígrænan garðagróður.
Viðmælendur eru Steinunn Garðarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdóttir.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.