14:03
Á tónsviðinu
Tónverk sem snúast um flóttamenn

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þessum þætti verða flutt tónverk sem snúast um flóttamenn, sum frá allra síðustu árum, en önnur eldri. Af eldri verkum má nefna strengjaverkið „Exil!“ eða „Útlegð“ sem Eugène Ysaÿe samdi eftir að hann flúði heimsstyrjöldina fyrri til Bandaríkjanna árið 1917 og óperuna „The Consul“ (Ræðismaðurinn) sem Giancarlo Menotti samdi árið 1950, en hún fjallar um skrifræðið sem flóttamenn þurfa oft að berjast við. Af yngri verkum má nefna „Fólk fær andlit“ eftir Hildi Guðnadóttur og „Removal and other powers“ eftir William Marsey. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Er aðgengilegt til 03. júní 2026.
Lengd: 54 mín.
,