Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.
Ása Briem ræðir við einleikara kvöldsins, flautuleikarann Stefán Ragnar Höskuldsson. Eftirtalin tónlist hljómar í þættinum:
Syrinx. eftir Claude Debussy. Stefán Ragnar Höskuldsson leikur. Hljóðritað á tónleikum í Eldborg, Hörpu 2017.
1. þáttur úr flautukonserti eftir Lowell Liebermann. Stefán Ragnar Höskuldsson leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Bernharðs Wilkinsosn. Hljóðritunin gerð í Háskólabíói árið 2006.
Raghunath Seth: Raga Shuddh Sarang. Útgefandi: Navras Records 2000
Í hléinu les Gísli Halldórsson úr Góða dátanum Svejk eftir Jaroslav Hasek, í þýðingu Karls Ísfeld. Upphaf 16. kafla: Vandræði Svejks í lestinni. Hljóðritun frá 1979.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 26 mín.