07:03
Steypiregn

Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.

Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.

Þessi þáttur "Steypiregns" mun vera sá síðasti í samnefndri þáttaröð.

Við höfum farið víða, við höfum verið hér og þar, ýmist kafað ofan í djúpa hyli og skjóður valinkunnra listamanna nú eða skautað á yfirborðinu Í dag stendur því hugur minn til þess að opna fyrir nokkuð persónulega vídd nú eða í raun láta reyna á þá áskorun sem lýtur að því að gaumgæfa á sem heiðarlegastan hátt hvaða plötur það eru sem snert hafa við manni hvað áþreifanlegast í gegnum tíðina og tína til hljóðdæmi af þeim plötum.

um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarssonar - Megas.

In the getto - Elvis Presley

My mama said - ABBA.

Good times bad times - Led Zeppelin.

Geiger counter go radio activity - KRAFTWERK

Swampland - Birthday party .

Tilf - Purrkur pillnikk.

maggasyn - ÞEYR

il zimbra -Talking heads.

byrjunin á "Leningrad symphony eftir Shostakovits.

Jane B - Jane Birkin.

4. þáttur úr sinfóníu numer 5 eftir Gustav Mahler

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. september 2014.

Er aðgengilegt til 28. nóvember 2026.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,