12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 30. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. 53 prósent greiddu atkvæði á móti, 47 prósent sögðu já. Kjörsókn var 82,5 prósent.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja niðurstöður atkvæðagreiðslunnar áfall fyrir ríkisstjórnina. Þeir vilja að hún einbeiti sér að verðbólgu og vöxtum.

Nigel Farage, leiðtogi breska Umbótaflokksins óskar Íslendingum til hamingju. Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar á þingi segir að Íslendingar hafi áréttað að lýðræðisríki álfunnar sækist ekki eftir aðild að ESB.

Erlendir fjölmiðlar og greinendur segja niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar vonbrigði fyrir Evrópusambandið. Íslensk og norsk stjórnvöld þurfi að vinna að því að láta EES samninginn virka betur.

Við helgum þennan fréttatíma niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,