08:03
Fyrst á fætur
Ási í Smekkleysu, Lay Low í sveitasímanum og frumraun Blur

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.

Það var Kristján Freyr sem hljóp í skarðið fyrir Huldu Geirsdóttur þennan morguninn. Í sveitasímann snemma sunnudags svaraði engin önnur en Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, sem við þekkjum nú mörg hver undir nafninu Lay Low en hún hefur sannarlega getið sér gott orð sem ein af okkar fremstu tónlistarkonum síðustu ár. En hvað ætli drífi á hennar daga núna um þessar mundir - við fengum að heyra af hennar ænintýrum.

Fyrir fjörutíu árum, árið 1986 var leiðtogafundur hér í Reykjavík, í Höfða þar sem leiðtogar úr austri og vestri hittust. Þeir Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev. Andlit þessarra tveggja höfðingja prýddu þá póstkort sem Friðik Erlingsson rithöfundur og gítarleikari í Purrki pillnikk og Sykurmolum teiknaði. Póstkortið var unnið í fjáröflunarskyni fyrir þá nýtt útgáufélag sem heitir Smekkleysa og var póstkortið fyrsta útgáfs þess félags. Í ár fagnar Smekkleysa 40 ára afmæli og er sannarlega glæsileg útgáfusaga að baki, nægir að nefna tónlist Bjarkar og Sigur Rósar en auðvitað svo miklu miklu meira. Ásmundur Jónsson er framkvæmdastjóri Smekkleysu og hann fór yfir söguna með okkur í Fyrst á fætur.

Undir lok þáttar skoðuðum við fyrstu hljómplötu hljómsveitarinnar Blur sem kom út fyrir 35 árum síðan og heitir Leisure. Liðsmenn Blur voru ekki ýkja hrifnir af plötunni eða voru það ekki um tíma en hún fékk óskiljanlega misjafna dóma. Við heyrðum tvö lög af Leisure í lok þáttar.

KLARA EINARSDÓTTIR - Ef hann myndi

EAGLES - New Kid In Town

ÁRNÝ MARGRÉT - In a dream

THE PROCLAIMERS - Sunshine on Leith

LAY LOW - Please Don't Hate Me

EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur Sjónarmið

JET - Look What You've Done

SIGUR RÓS - Við spilum endalaust

SYKURMOLARNIR - Köttur

MACY GRAY - I try

PURRKUR PILLNIKK - Læknir og svín

BLUR - She's So High

BLUR - Bad Day

BLUR - Repetition

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,