12:40
Heimskviður
262 - Graceland og El Niño

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks.

Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
,