Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Sigurður Ingi Jóhannsson var fyrsti gestur þáttarins. Hann lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á sunnudag þegar nýr formaður verður kjörinn. Merkum kafla í lífi Sigurðar Inga er að ljúka. Við fórum yfir árin tíu á formannsstóli; töluðum um Framsóknarflokkinn, stjórnmálin og Ísland.
Hefðir lifa vegna þess að þeim er miðlað mann fram af manni. Þetta segir í yfirskrift á vefnum Lifandi hefðir, sem Þjóðminjasafnið heldur úti, og hægt er að fræðast um en líka bæta við fróðleik um hefðir. Sumar hefðir eru árstíðabundnar og aðrar hversdagslegar. Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur á Þjóðminjasafninu spjallaði um hefðir.
Frægasti sellóleikari tuttugustu aldarinnar var svo viðfangsefni okkar þegar Magnús Lyngdal kom til okkar í síðasta hluta þáttarins. Mstislav Rostropovich var gagnrýninn á stjórnvöld í Sovétríkjunum, svo mjög að hann var sviptur ríkisborgararétti ásamt konu sinni.
Tónlist:
Mandólínhljómsveit Reykjavíkur, Haraldur Guðmundsson - Rússneskt þjóðlag : tveir gítarar.
Tígulkvartettinn, Moravek, Jan - Tveir gítarar.
Bítlarnir - Do you want to know a secret.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um mál sem skók fornleifafræðaheiminn í Evrópu á ofanverðri nítjándu öld. Forngripasali frá Jerúsalem birtist þá í Lundúnum og sagðist hafa í fórum sínum þrjú þúsund ára gamalt eintak af fimmtu Mósebók. Nokkru síðar var forngripasalinn látinn og handritin hans horfin.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafur Stefánsson handknattleikskappi. Hann er auðvitað búinn að vera talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Við nutum þess auðvitað að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann vann nánast öll verðlaun sem hægt var að vinna og var ítrekað ofarlega á listum yfir bestu handknattleiksmenn í heiminum, ef ekki efstur. Eftir að ferlinum lauk hefur hann brallað ýmislegt, þjálfað og unnið í menntamálum og nú hefur hann stofnað fyrirtæki sem kallast Afreksmanneskjan, en tilgangur þess er að aðstoða ungmenni til að ná árangri í námi og íþróttum. Það er óhætt að segja að það brenni á honum enda fór hann á mikið flug að segja frá.
Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag, þar sem Guðrún var nýkomin til landsins frá Ítalíu, forvitnuðumst við um hvað stóð upp úr þegar kom að matarupplifun Ítalíuferðarinnar.
Tónlist í þættinum í dag:
Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
Heyr mína bæn / Ellý Vilhjálms (Panzeri & Salerno, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Passíusálmur nr. 51 / Ellen Kristjánsdóttir (Jón Ólafsson, ljóð Steinn Steinarr)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Það er enginn eiginlegur niðurskurður á Landspítalanum, segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Í raun hafi ekki verið gerð krafa um niðurskurð á spítalanum.
Tugir þjóðarleiðtoga og áhrifamanna víðsvegar að úr heiminum eru saman komnir í München í Þýskalandi þar sem árleg öryggisráðstefna hefst í hádeginu.
Dorrit Moussaieff segist hafa lítil sem engin samskipti haft við Jeffrey Epstein og kveðst í svörum til Mannlífs undrandi á að nöfn þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar séu í Epstein-skjölunum.
Lögmaður fólks sem var vistað í Bakkakoti á barnsaldri segir að mikið hafi fjölgað í hópi þeirra sem vilja aðstoð við að sækja sanngirnisbætur til ríkisins.
Ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að fólki standi ekki hætta af gróðurhúsalofttegundum hefur víðtæk áhrif um allan heim, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis fullyrðir að loðnustofninn sé vanmetinn og að misheppnuð haustmæling valdi því að loðnukvótinn sé hundrað þúsund tonnum of lítill. Sviðstjórn hjá Hafró hafnar því og segir útreikningana ranga.
Lokað hefur verið fyrir skilaboðaforritið WhatsApp í Rússlandi og hert að Telegram. Þrýst er á fólk að nota í staðinn ríkisstyrkt app. Mannréttindasamtök saka stjórnvöld um stafræna kúgun.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að hagnaði stóru viðskiptabankanna þriggja sem hafa nú allir birt uppgjör fyrir síðasta ár. Rætt er við Gylfa Magnússon, prófessor í hagfræði, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt.
Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.
Viðmælendur voru:
Jón Viðar Sigurðsson
Embla Kristjánsdóttir
Mette Marie Jensen
Glenn Møller
Vivi Sørensen
Lög sem notuð voru í þættinum:
Uummatip tusaataa - Uillut
Akimut Ikaarneq - Uillut
Inuuneq Nunaaq - Uillut
Kalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Misiani, D.O., Shirati Jazz - Jaa.
Malouma - Mreïmida.
Othmani, Nabil - Damaa.
Santa Rosa, Gilberto, Sheila E. - El Rey del Timbal (feat. Gilberto Santa Rosa).
Los Pregoneros del Puerto - El butaquito.
D'Gary, Jihé - Mpiarak'andro.
Diabaté, Toumani, Mala, Afia - Amégan.
Alaoui, Amina - Flor de nieve.
Ókunnur - Jila puru ratu.
Iriarte, Rafael, Pesoa, Rosendo - Cariñitos.
Williams, Shina, Williams, Shina and His African Percussionists - Agboju logun.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 8. janúar 2017: Þátturinn er helgaður upphafi, nýrri byrjun. Lífið getur stundum fært okkur nýtt upphaf. Við skoðum nýja byrjun þegar rof verður í hversdeginum. Innslög í þáttinn gerðu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er platan Fyrir sunnan Fríkirkjuna með Heimi og Jónasi.
Platan var gefin út af Fálkanum árið 1969 og inniheldur tólf lög, þar af sjö eftir þá Heimi Sindrason og Jónas Tómasson. Ljóðskáldin Davíð Stefánsson og Tómas Guðmundsson eiga hvor sín fjögur ljóð á plötunni. Með Heimi og Jónasi á plötunni syngja þær Vilborg Árnadóttir og Þóra Kristín Johansen og Páll Einarsson leikur á bassa auk þess sem hann útsetti nokkur laganna á plötunni.
Heimir Sindrason og Jónas Tómasson byrjuðu að syngja saman þegar þeir voru í Menntaskólanum í Reykjavík um miðbik sjöunda áratugar síðustu aldar. Fyrst í stað komu þeir fram á skólaskemmtunum en ekki leið á löngu þar til hróður þeirra barst út fyrir veggi skólans, og þeir voru fengnir til að koma fram á ýmsum opinberum stöðum, og þar á meðal bæði í útvarpi og sjónvarpi. Á bakhlið plötuumslags vínils vikunnar að þessu sinni er saga þeirra rakin stuttlega, og segir þar að hinn sérstæði söng- og spilamáti þeirra hafi strax vakið athygli. Þeir fluttu eigin lög og eins gamanvísur og þjóðlög úr ýmsum áttum við miklar vinsældir.
Dúettinn starfaði þó ekki lengi því að loknu stúdentsprófi árið 1967 skildu leiðir og Heimir hélt til Glasgow þar sem hann stundaði nám í tannlækningum. Jónas hóf á sama tíma nám í tónsmíðum og flautuleik við tónlistarskólann í Reykjavík. Skömmu áður en það gerðist sungu þeir félagar inn á hljómplötuna Fyrir sunnan Fríkirkjuna. Upptökum á plötunni stjórnaði Jón Þór Hannesson. Heimir og Jónas fengu til liðs við sig þrjú skólasystkini sín, þau Vilborgu Árnadóttur, Þóru Kristínu Johansen og Pál Einarsson, en þessi hópur hafði stundum komið fram saman á skólaárunum á ýmsum skemmtunum. Vilborg og Þóra héldu að þessu loknu í tónlistarnám, Vilborg lærði söng meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum en Þóra lærði á píanó og sembal og hefur verið búsett í Hollandi í áratugi og sinnt þar tónlist með ýmsum tónlistarhópum. Páll Einarsson fór í allt aðra átt, lagði stund á nám í eðlisfræði og varð síðar landsþekktur jarðvísindamaður. Vilborg og Þóra sungu með Heimi og Jónasi en Páll spilaði á bassa auk þess að útsetja nokkur laganna á plötunni. Heimir og Jónas sungu og spiluðu á gítara auk þess sem Jónas spilaði á þverflautu.
Þó svo að platan hafi verið tekin upp árið 1967 liðu einhverra hluta vegna tvö ár þar til hún var gefin út hjá Fálkanum, en platan kom út haustið 1969. Heimir og Jónas höfðu vegna annarra verkefna ekkert komið saman í langan tíma og kom því plötuútgáfan mörgum á óvart. Engu að síður fékk platan glimrandi móttökur, enda geymir hún margar tónlistarperlur sem sumar hverjar lifa enn í dag góðu lífi, að ógleymdum ljóðunum sem þar eru sungin.
Vinsældir plötunnar urðu til þess að Fálkinn fékk þá félaga til að hljóðrita aðra plötu sem kom út árið eftir og innihélt þjóðlög og íslensk lög í þjóðlagastíl. Sú plata fékk sömuleiðis góðar viðtökur en auk þeirra félaga voru Páll Einarsson og Vilborg Árnadóttir einnig með þeim á seinni plötunni. Heimir og Jónas voru á þessum tíma hættir að koma fram sem tónlistarmenn að mestu, en komu þó saman árið 1974 í sjónvarpsþættinum Ugla sat á kvisti. Báðir áttu síðan farsælan feril hvor á sínu sviði, Heimir sem tannlæknir og tónlistarmaður í hjáverkum og Jónas sem tónskáld og tónlistarkennari á Ísafirði.
Fyrir sunnan Fríkirkjuna
A-hlið
1. Bréfið hennar Stínu
2. Einbúinn
3. Litla kvæðið um litlu hjónin
4. Namm namm
5. Laxfoss
6. Móðir mín í kví kví
B-hlið
1. Við Vatnsmýrina
2. Hótel Jörð
3. Fyrir átta árum
4. Húsin í bænum
5. Á skurðstofunni
6. Nautn
Umsjón: Stefán Eiríksson.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttir voru þau Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður og Katla Þóru- Njálsdóttir leikkona. Rætt var um íslensku bókmenntaverðlaunin sem voru afhent á miðvikudag, franska kvikmyndahátíð og ríkustu konu heims, gervigreind, Sölku Völku, samlestur á Að sama tíma að ári og þættina Somebody Somewhere á streymisveitunni HBO.
Fréttir
Fréttir
Kanslari Þýskalands segir heimskipan síðustu ára liggja undir skemmdum. Frelsið sé ekki lengur gefið og styrk þurfi til að berjast fyrir því á ný. Þetta kom fram í ræðu hans á alþjóðlegu öryggisráðstefnunni sem hófst í Munchen í morgun og stendur fram á sunnudag.
Sigurður Ingi Jóhannsson er loðinn í svörum um hvað taki við hjá honum þegar Framsóknarflokkurinn hefur kosið sér nýjan formann á sunnudag.
Yfir 50 manns hafa stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara þar sem grunur leikur á að villa hjá reiknistofu bannkanna hafi verið nýtt til að komast yfir hundruð milljóna. Héraðssaksóknari reiknar með að fleiri bætist við.
Kostur í Kópavogi krefur heilbrigðiseftirlitið um tæpar fimm milljónir fyrir að setja sölubann á ameríska útgáfuna af Cocoa puffs - bannið var fellt úr gildi tveimur árum eftir að það var sett.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sigurður Ingi Jóhannsson vaknar á mánudag sem óbreyttur þingmaður þegar flokkurinn hefur kosið sér nýjan formann. Honum líður ágætlega með sína ákvörðun sem var lengi í fæðingu. Hann er loðinn í svörum um hvað gerist næst.
Engin fyrri bandalagsríki Kúbu virðast ætla eða geta komið þarlendum stjórnvöldum til bjargar. Kúbverjar eru mjög háðir innfluttri olíu, ekki bara fyrir samgöngur og iðnað heldur framleiða þeir nánast allt sitt rafmagn með olíu. Rafmagn hefur verið stopult á Kúbu um árabil, og enn stopulla eftir að olíuinnflutningur frá Venesúela tók að dragast verulega saman í byrjun þessa áratugs. Það leiddi til fjöldamótmæla, sem stjórnvöld börðu niður af mikilli hörku.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjórði og síðasti þátturinn þar sem tíndir eru til dægursöngvar af ýmsum toga sem hafa verið samdir við ljóð Steins Steinarrs. Fjallabræður syngja lag við ljóðið Það vex eitt blóm fyrir vestan, tvíeykið Þau flytja lagið Utan hringsins, Stefán Hilmarsson syngur Siesta, Kristjbjörg Karí syngur Andi hins liðna, KK syngur Gamalt lag, Ólafía Hrönn Jónsdóttir syngur Happdrættisvísur, Sigurður Dagbjartsson syngur lag sem heitir Ferðasaga, Hildur Vala Einarsdóttir syngur Vísu fíflsins, Hlynur Þorsteinsson sem notar listamannsnafnið Sigurboginn flytur lag sitt Gömul vísa um vorið, Valgerður Guðnadóttir syngur Lát huggast barn og KK flytur lag sem heitir Blóm. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt.
Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.
Viðmælendur voru:
Jón Viðar Sigurðsson
Embla Kristjánsdóttir
Mette Marie Jensen
Glenn Møller
Vivi Sørensen
Lög sem notuð voru í þættinum:
Uummatip tusaataa - Uillut
Akimut Ikaarneq - Uillut
Inuuneq Nunaaq - Uillut
Kalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafur Stefánsson handknattleikskappi. Hann er auðvitað búinn að vera talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Við nutum þess auðvitað að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann vann nánast öll verðlaun sem hægt var að vinna og var ítrekað ofarlega á listum yfir bestu handknattleiksmenn í heiminum, ef ekki efstur. Eftir að ferlinum lauk hefur hann brallað ýmislegt, þjálfað og unnið í menntamálum og nú hefur hann stofnað fyrirtæki sem kallast Afreksmanneskjan, en tilgangur þess er að aðstoða ungmenni til að ná árangri í námi og íþróttum. Það er óhætt að segja að það brenni á honum enda fór hann á mikið flug að segja frá.
Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag, þar sem Guðrún var nýkomin til landsins frá Ítalíu, forvitnuðumst við um hvað stóð upp úr þegar kom að matarupplifun Ítalíuferðarinnar.
Tónlist í þættinum í dag:
Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
Heyr mína bæn / Ellý Vilhjálms (Panzeri & Salerno, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Passíusálmur nr. 51 / Ellen Kristjánsdóttir (Jón Ólafsson, ljóð Steinn Steinarr)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttir voru þau Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður og Katla Þóru- Njálsdóttir leikkona. Rætt var um íslensku bókmenntaverðlaunin sem voru afhent á miðvikudag, franska kvikmyndahátíð og ríkustu konu heims, gervigreind, Sölku Völku, samlestur á Að sama tíma að ári og þættina Somebody Somewhere á streymisveitunni HBO.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í Morgunútvarpinu í gær heyrðum við í Hildi Ásu Gísladóttur, nemanda í 10. bekk í Bíldudalsskóla, sem hefur þungar áhyggjur af áformum Vegagerðarinnar um að hætta akstri milli byggðarkjarna í Vesturbyggð. Hún skoraði á stjórnvöld að kippa málinu í liðinn og við heyrðum í Gerði Björk Sveinsdóttur, bæjarstjóra Vesturbyggðar og kanna hvar málið er statt. Hvernig stendur á því að svona geti gerst þegar sveitarfélög sameinast?
Flugfélög sem fljúga til Kúbu hafa aflýst flugferðum til og frá eyríkinu sökum eldsneytisskorts. Olía er hætt að berast frá Venesúela og vegna hótana Bandaríkjaforseta um tolla berst olían ekki heldur frá Mexíkó. Í vikunni voru Íslendingar á Kúbu hvattir til að huga að heimför vegna ástandsins og við fengum til okkar Ester Auði Elíasdóttir, sem ferðaðist til Kúbu í janúar og varð vitni að skorti, ótta, niðurníðslu og sorg á meðal íbúa.
Íslenska bolludagsbollan er mikið ólíkindatól og hefur lifað af ýmsa tískustrauma. Einu sinni voru bara tvær bollur í boði: Vatnsdeigs- og gerdeigs- en undanfarin ár hefur bolludagsbollan gengið í gegnum ótrúlegt umbreytingartímabil. Óteljandi tegundir eru í boði og Íslendingar troða bollunum í sig í allavega tvær vikur en ekki bara á bolludaginn sjálfan. En eru blikur á lofti? Vill fólk stælabollurnar eða er einfalda vatnsdeigsbollan með sultu og rjóma að snúa aftur með látum? Við fengum til okkar bræðurnar Þorleif Karl og Henry Þór Reynissyni en þeir standa vaktina í Reynisbakaríi og erum öllum hnútum kunnugir.
Við fórum yfir fréttir vikunnar með Vigdísi Hafliðadóttur og Arnóri Björnssyni en þau frumsýndu á dögunum sýninguna Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Það snérist allt um ást í Lagalista fólksin. Afmælisbörn dagsins voru tvö og svo komu þeir fóstbræður Björn Stefánsson og Bjarni Sigurðsson í heimsókn. Þeir tóku 60 ára gamalt Dáta lag sem hljómsveitin Brimbrot er að gefa út á 7" plötu og mun svo fagna þeirri útgáfu með tónleikum í Silfurtunglinu 7. mars
Lagalisti þáttarins:
BJARTMAR GUÐLAUGSSON – Með vottorð í leikfimi
MGMT – Time To Pretend
C + C MUSIC FACTORY – Gonna Make You Sweat (Everybody Dance Now)
DUSTY SPRINGFIELD – Son Of A Preacher Man
PRINCE – 1999
BRIMBROT - Kiling klang
EDWYN COLLINS – A Girl Like You
BUBBI MORTHENS – Bláu ljósin
AMY WINEHOUSE – Love is a losing game
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI – Opnaðu Augun Þín
KINGFISHR – Killeagh
GOSSIP – Standing In The Way Of Control
APPARAT ORGAN QUARTET – Stereo Rock’n Roll
NEW ORDER – Blue Monday 88
PRIMAL SCREAM – Rocks
ARCTIC MONKEYS – Opening Night
BRUNO MARS – I Just Might
BOMBAY BICYCLE CLUB – Always Like This
ROLLING STONES – (I Can't Get No) Satisfaction
Á MÓTI SÓL – Okkur líður samt vel
THE BETHS – Straight Line Was A Lie
WET LEG – pokemon
MODEL – Ástarbréf merkt X
MEATLOAF – I Would Do Anything For Love (But I Won't Do That)
ROXY MUSIC – Love Is The Drug
WET WET WET – Love is all around
BRYAN ADAMS, STING AND ROD STEWART – All for love
MAUS – Síðasta Ástin Fyrir Pólskiptin
PÁLL ÓSKAR & UNUN – Ástin dugir
HERBERT GUÐMUNDSSON – Eilíf ást (Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012)
THE BEATLES – All You Need Is Love
GUNS N' ROSES – Don't Cry
PJ HARVEY – This is love
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON & RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR – Ég gef þér allt mitt líf
OJBA RASTA – Baldursbrá
ROMY – Love Who You Love
U2 – Beautiful Day

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Það er enginn eiginlegur niðurskurður á Landspítalanum, segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Í raun hafi ekki verið gerð krafa um niðurskurð á spítalanum.
Tugir þjóðarleiðtoga og áhrifamanna víðsvegar að úr heiminum eru saman komnir í München í Þýskalandi þar sem árleg öryggisráðstefna hefst í hádeginu.
Dorrit Moussaieff segist hafa lítil sem engin samskipti haft við Jeffrey Epstein og kveðst í svörum til Mannlífs undrandi á að nöfn þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar séu í Epstein-skjölunum.
Lögmaður fólks sem var vistað í Bakkakoti á barnsaldri segir að mikið hafi fjölgað í hópi þeirra sem vilja aðstoð við að sækja sanngirnisbætur til ríkisins.
Ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að fólki standi ekki hætta af gróðurhúsalofttegundum hefur víðtæk áhrif um allan heim, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis fullyrðir að loðnustofninn sé vanmetinn og að misheppnuð haustmæling valdi því að loðnukvótinn sé hundrað þúsund tonnum of lítill. Sviðstjórn hjá Hafró hafnar því og segir útreikningana ranga.
Lokað hefur verið fyrir skilaboðaforritið WhatsApp í Rússlandi og hert að Telegram. Þrýst er á fólk að nota í staðinn ríkisstyrkt app. Mannréttindasamtök saka stjórnvöld um stafræna kúgun.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut var í föstudagsgír í Popplandi dagsins og músíkin eftir því. Póstkort frá Rebekku Blöndal og nýtt lag, upphitun fyrir Lagalistann annað kvöld, plata vikunnar og fleira.
STUÐMENN - Betri Tíð.
Jungle - Let's Go Back.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Glor på vinduer.
MAJOR LAZER - Get Free.
BLINK 182 - I miss you.
Bríet - Gleymmérei.
CMAT - Ready.
Nýdönsk - Fyrsta skiptið.
Ocean, Frank - Novacane.
Retro Stefson - Julia.
Ásgeir Trausti Einarsson - Against the Current.
Ásgeir Trausti Einarsson - Julia.
TODD TERJE - Inspector Norse.
Isoebel, Prins Thomas - Linger.
GALA - Freed from desire.
Charli XCX - Chains of Love.
LEVEL 42 - Lessons In Love.
Baggalútur - Bildudals grænar baunir.
Steely Dan - Peg.
Dean, Olivia, Fender, Sam - Rein Me In.
Bryan, Zach - Plastic Cigarette.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Kahan, Noah - The Great Divide.
BILLIE EILISH - Bad Guy.
Halldór Laxness Halldórsson Dóri DNA - Mosó.
NAS, DJ Premier - GiT Ready.
BEASTIE BOYS - Intergalactic.
Beyoncé - COZY.
Herra Hnetusmjör - Elli Egils.
SOUL 2 SOUL - Back to life.
Sanchez, Stephen - SWEET LOVE.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Pínu sein.
LILY ALLEN - Not Fair.
Laufey - Lover Girl.
REBEKKA BLÖNDAL - Lítið ljóð.
Ezra Collective - No Ones Watching Me.
Rebekka Blöndal - Kannski.
Dean, Olivia - No Ones Watching Me.
Harding, Curtis - The Power.
Scott, Jill - Pressha.
ELÍN HALL - Tachylite.
WARMLAND - All for all.
HJÁMLAR - Upp í sveit.
ELLES BAILEY - Growing Roots.
ROBYN - Dopamine.
STAKKA BO - Here We Go.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Íslandsmótið í kotru hefst í dag og stendur út morgundaginn. Við heyrðum í Inga Tandra Traustasyni kotruspilara sem fræddi okkur um þetta vinsæla spil.
Þriggja barna fjölskylduföður í Kópavogi blöskrar hagnaður bankanna og hefur skrifað áhugaverðar pælingar á Facebook síðu sína. Hann sendi líka bréf til Nordea bank sem er staðsettur í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og víðar og hefur bréfið skilað sér til háttsetts aðila í bankanum. Íslensku bankarnir þrír skiluðu 94 þúsund miljónum í hagnað eftir að hafa borgað allan kostnað við laun, húsnæði ofl. Kristján Ingi Gunnarsson er maðurinn á bak við þessar hugleiðingar og hann ræddi við okkur.
Á dögunum sáum við fréttir af því að Efnisveitan hefði milligöngu um sölu á ýmsum varningi sem var að finna í Sambíóunum í Álfabakka en starfsemi bíósins þar lauk nýverið. Einn þeirra sem gerði góð kaup er Örlygur Hnefill Örlygsson á Húsavík. En hvað ætlar hann að gera við bíósætin? Við hringdum norður.
Kristján Kristjánsson, eða KK eins og við þekkjum hann flest, verður sjötugur 26. mars nk. og hann heldur afmælistónleika 26. og 27. mars. KK var föstudagsgestur Síðdegisútvarpsins í dag.
Alþjóðadagur útvarps er í dag og margir velta fyrir sér hvort útvarpið sé deyjandi miðill? Ekki segja tölur. Þau Höskuldur Sæmundsson, verkefnastjóri Alþjóðadags útvarps og Anna Marsibil Clausen, ritstjóri hlaðvarpa hjá RÚV ræddu uppáhaldsmiðilinn okkar, útvarp.
Fréttir
Fréttir
Kanslari Þýskalands segir heimskipan síðustu ára liggja undir skemmdum. Frelsið sé ekki lengur gefið og styrk þurfi til að berjast fyrir því á ný. Þetta kom fram í ræðu hans á alþjóðlegu öryggisráðstefnunni sem hófst í Munchen í morgun og stendur fram á sunnudag.
Sigurður Ingi Jóhannsson er loðinn í svörum um hvað taki við hjá honum þegar Framsóknarflokkurinn hefur kosið sér nýjan formann á sunnudag.
Yfir 50 manns hafa stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara þar sem grunur leikur á að villa hjá reiknistofu bannkanna hafi verið nýtt til að komast yfir hundruð milljóna. Héraðssaksóknari reiknar með að fleiri bætist við.
Kostur í Kópavogi krefur heilbrigðiseftirlitið um tæpar fimm milljónir fyrir að setja sölubann á ameríska útgáfuna af Cocoa puffs - bannið var fellt úr gildi tveimur árum eftir að það var sett.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sigurður Ingi Jóhannsson vaknar á mánudag sem óbreyttur þingmaður þegar flokkurinn hefur kosið sér nýjan formann. Honum líður ágætlega með sína ákvörðun sem var lengi í fæðingu. Hann er loðinn í svörum um hvað gerist næst.
Engin fyrri bandalagsríki Kúbu virðast ætla eða geta komið þarlendum stjórnvöldum til bjargar. Kúbverjar eru mjög háðir innfluttri olíu, ekki bara fyrir samgöngur og iðnað heldur framleiða þeir nánast allt sitt rafmagn með olíu. Rafmagn hefur verið stopult á Kúbu um árabil, og enn stopulla eftir að olíuinnflutningur frá Venesúela tók að dragast verulega saman í byrjun þessa áratugs. Það leiddi til fjöldamótmæla, sem stjórnvöld börðu niður af mikilli hörku.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Það var Danni Báróns sem leysti hann Karl af þetta föstudagskvöldið.
Danni fagnaði 70 ára afmæli Peter Hook (Joy Division, New Order) sem og afmæli plötunnar Black Sabbath með hljómsveitinni Black Sabbath. Sú plata kom út föstudaginn 13. febrúar árið 1970 og fagnar því 56 ára afmæli.
Það var farið yfir rokktímalínuna frá 1969 til 2025 með sérstakan fókus á tónlist sem kom út á svipuðum tíma og svo hljómsveitir sem hafa verið undir áhrifum Black Sabbath.
Auðvitað var svo smá rómantík.
Lagalistinn
The Stooges - I wanna be your dog
Led Zeppelin - Whole lotta love
Black Sabbath - N.I.B.
David Boqiw - Suffragette city
The Shocking Blue - Venus
John Lennon - Instant karma!
The Doors - Peace frog
T. Rex - 20th century boy
Queen - Stone cold crazy
The Ramones - Teenage lobotomy
Undertones - Teenage kicks
The Buzzcocks - Ever fallen in love
The Clash - Train in vain
Joy Division - Love will tear us apart
New Order - Blue monday
The Smiths - There is a light that never goes out
Pixies - Gigantic
My Bloody Valentine - Only Shallow
The Cure - Friday I'm in love
Nirvana - Heart shaped box
Smashing Pumpkins - Today
The Breeders, The - Cannonball
Blur - Song 2
Blink 182 - All the small things
Creed - Higher
Wheatus - Teenage dirtbag
The White Stripes - Fell in love with a girl
The Strokes - Someday
The Darkness - I believe in a thing called love
Wolfmother - Woman
Arctic Monkeys - Arabella
Royal Blood - Figure it out
Fontaines D.C. - Starburster
Black Sabbath - The Wizard