14:03
Á tónsviðinu
Ina Boyle

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þættinum verður leikin tónlist eftir Inu Boyle, en hún var írsk, fædd árið 1889 og dó 1967. Hún var eitt af merkustu tónskáldum Írlands á fyrri hluta 20. aldar, en bjó mestalla sína ævi við talsvert mikla einangrun á sveitasetrinu Bushey Park, skammt frá borginni Enniskerry í Wicklow á Írlandi. Þótt hún reyndi að koma verkum sínum á framfæri voru þau flest óflutt og óþekkt þar til núna á síðustu árum. Mörg verka hennar hafa nú verið hljóðrituð í fyrsta skipti og vakið athygli. Í þættinum verða flutt nokkur af sönglögum Boyle, þáttur úr fiðlukonsert hennar og söngverkið „Still falls the rain“ við ljóð eftir Edith Sitwell sem lýsir loftárásunum á London árið 1940. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Er aðgengilegt til 02. desember 2026.
Lengd: 48 mín.
,