
Skólinn sem fauk
Í þættinum Skólinn sem fauk fjallar Björg Aðalheiður Jónsdóttir um atburð sem er greyptur í minni fjölskyldu hennar og margra annarra Hnífsdælinga. Afi Bjargar, faðir hennar og systkini hans tvö voru meðal kennara og nemenda í miðri kennslustund að morgni dags í febrúar 1953 þegar hvifilvindur skall á barnaskólanum í Hnífsdal með þeim afleiðingum að húsið tókst á loft og splundraðist í allar áttir. Atburðurinn hafði djúp sálræn áhrif á samfélagið og sumir eru enn að fást við afleiðingarnar.
Umsjón og dagskrárgerð: Björg Aðalheiður Jónsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
Viðmælendur: Ósk Hannesdóttir, Elenóra Ásgeirsdóttir, Sigrún Vernharðsdóttir, Kristján Kristjánsson, Elísabet Kristjánsdóttir, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Gunnar Jóhannes Hermannsson og Jóna Sigurðardóttir. Auk þeirra Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur.
Lestur: Ragnheiður Steindórsdóttir