12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 1. október 2026

Útvarpsfréttir.

Formaður Heilahjálpar og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga telja umfjöllun Kveiks, um að hátt hlutfall eldra fólks á hjúkrunarheimilum fái sterk geðlyf, draga fram mönnunarvanda á hjúkrunarheimilum.

Nágrannar manns sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í nóvember urðu einskis varir. Annar maður er grunaður um að hafa banað honum. Síðasti dagur aðalmeðferðar er í dag.

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar á flutningi fimm kílóa af amfetamíni með hraðsendingu til landsins.

Yfirskrift forvarnardagsins í ár er samtal og samkennd. Sjónum er sérstaklega beint að nemendum í níunda bekk og framhaldsskóla.

Sala á sýklalyfjum dróst saman á síðasta ári sem er jákvætt að mati yfirlæknis á sviði sóttvarnalæknis. Á sama tíma er fjölgun sýklalyfjaónæmra baktería áhyggjuefni.

Milljónir barna í Jemen svelta og þeim hefur fjölgað hratt síðustu vikur eftir að átök brutust út. Sjúkdómar eins og kólera og mislingar eru farnir að breiðast út.

Ákveðið hefur verið að blása af tónleika rapparans Kanye West sem halda átti í Rússlandi síðar í október. Skipuleggjendur heita endurgreiðslu miða sem kostuðu á bilinu þrettán til 200 þúsund krónur.

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands vill að Reykjavíkurborg taki þátt í rekstri Laugardalsvallar. Knattspyrnuhreyfingin borgar með vellinum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,