07:03
Morgunvaktin
Heimsglugginn og skyr fyrr og nú

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Aðalumfjöllunarefnið var ástand mála á Norður-Írlandi en þar hefur spenna milli kaþólikka og mótmælenda magnast á ný. Bogi ræddi við Sólveigu Jónsdóttur, stjórnmálafræðing og rithöfund. Í lokin var rætt um stöðu stjórnmála í Svíþjóð, þar sem stjórnarmyndun virðist hálfómöguleg.

Við Háskóla Íslands er nú unnið að forvitnilegri rannsókn á skyri, líffræðilegum menningararfi þess. Rannsakendur vilja vita hvort almenningur í landinu á skyrsögu - minningar um skyr. Hvenær var það borðað, með hverjum og hvernig var það á bragðið? Hefur það breyst? Við spjölluðum um skyr fyrr og nú við þær Auði Viðarsdóttur, nýdoktor í þjóðfræði, og Vilborgu Bjarkadóttur, doktorsnema í þjóðfræði.

Tónlist:

Gunnar Gunnarsson - Höstvisa.

Gunnar Gunnarsson - Moon river.

Nigel Kennedy og Berlínarfílharmónían - Haustið úr Árstíðunum fjórum.

Bjartmar Guðlaugsson - Súrmjólk í hádeginu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,