19:10
Tónleikur
Keith Jarrett

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Tónlistarmaður dagsins í dag er bandaríski píanóleikarinn Keith Jarrett, en hann er einn af þeim tónlistarmönnum sem getur spilað barokk og klassík, þungan rugludjass og ljóðrænan og notalegan djass jöfnum höndum. Í þessum þætti verður klassíska hliðin á honum ráðandi þótt örlítið verði farið út fyrir þann ramma, enda ekki annað hægt þegar maður eins og Jarrett er annars vegar.

Sá djass sem heyrist verður samt í mýflugumynd, og á mjög rólegum nótum. Hér er því flytjandinn og klassíkerinn Jarrett í brennidepli, en ekki djassarinn og tónskáldið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,