Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Það styttist í sveitarstjórnarkosningar. Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hefur slitnað upp úr meirihlutasamstarfi í sex sveitarfélögum. En hvers vegna springa meirihlutar í sveitarstjórnum? Þorsteinn Gunnarsson borgarritari hefur rannsakað það - hann skrifaði meistararitgerð um efnið; hún er glæný - Þorsteinn rabbaði við okkur um þennan anga stjórnmálanna.
Arthúr Björgvin Bollason sagði í Berlínarspjalli frá stjórnmálum og vandræðum kanslarans. Sömuleiðis frá því að ungt fólk í Þýskalandi mótmælir hugmyndum stjórnvalda þar um að taka upp herskyldu á nýjan leik.
Svo var það fótboltinn, merkilegu sögurnar á bak við liðin og þjóðirnar á HM í sumar. Illugi Jökulsson beindi sjónum einkum að Haití sem nú er á HM í annað sinn, það er rúm hálf öld síðan liðið var með síðast.
Tónlist:
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Og co.

07:30

08:30
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Unnur Guðný María vann lengi sem flugfreyja, er veiðileiðsögumaður og vinnur með kaþósku kirkjunni. í dag starfar hún einnig sem myndlistarmaður.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu.
National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði.
Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann.
Tónlistin í þættinum:
Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni)
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson)
Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir ekki forsvaranlegt að valda dýrum dauða og þjáningum í mótmælum. Tíu grísir drápust og fjölmörg dýr eru hölt og skrámuð eftir að brotist var inn í svínabú fyrirtækisins og svínum sleppt út.
Þingmenn Verkamannaflokksins sækja enn hart að leiðtoga flokksins Keir Starmer. Yfir áttatíu hafa hvatt hann til að segja af sér en hann segist ekki á förum.
Formaður stéttarfélags flugmanna sakar Icelandair um að reyna að sniðganga félagið. Icelandair boðar flugmenn til fundar á föstudag til að ræða kjaramál milliliðalaust.
Fjöldi þeirra sem grunaðir voru um að hafa atvinnu af vændi annarra tók stökk í fyrra miðað við árin á undan. Sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni telur þetta skýrast af að rannsókn slíkra mála hafi verið styrkt.
Framkvæmdastjóri Samorku, gerir ekki athugasemd við að Ísland hafi sagt sig frá orkusáttmálanum ECT. Úrsögnin dragi ekki úr getu fyrirtækja til að fjárfesta á Íslandi.
Fyrri undankeppni Eurovision er í kvöld. Ísland tekur ekki þátt en keppnin verður sýnd á RÚV.
Íbúum fjölgar í öllum kjördæmum landsins nema Norðurlandi vestra á fyrsta ársfjórðungi. Þörf er á aðgerðum til að lyfta landshlutanum upp að mati sveitarstjóra.
Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir sló þrjú Íslandsmet þegar hún hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag beinum við sjónum okkar að Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrra undankvöld keppninnar í ár er í kvöld. Ár hvert skapast mikil stemning í kringum Eurovision hér á landi og keppnin - og aðdragandinn - litar samfélagið mjög - en ekki núna. Enda ákvað Ríkisútvarpið í desember - eftir töluverð mótmæli og ákall um sniðgöngu - að Ísland tæki ekki þátt í keppninni í ár sem haldin er í Vínarborg í Austurríki.
Rætt er við Höllu Ingvarsdóttur, gjaldkera Fáses, og Val Gunnarsson, sagnfræðing, um keppnina og sniðgöngu.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu.
Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis.
Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Ólafur Björn Ólafsson, sem vinir hans og samstarfsmenn kalla gjarnan Óbó, á sér tvöfaldan tónlistarferil, ef svo má segja. Annars vegar er það trommuleikarinn sem leikið hefur með fleiri hljómsveitum og listamönnum en tölu verður á komið og hinsvegar píanóleikarinn og afkastamikið tónskáld sem færri þekkja.
Lagalisti:
Óútgefið - Arithmetical Exercise of the Soul / Unaware of it's Counting
Steypa - Kanon
The Greenhouse Sessions - Systur/Sisters
Innhverfi - Rétt eða rangt
The Third Script - Ravening
Óútgefið - Kerti
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þar rúmast. Við ræðum við Heiðu í þætti dagsins og kynnum okkur einnig nýja leturgerð sem kallast Rúna en það er grafíski hönnuðurinn og myndlýsarinn Elías Rúni sem hannaði letrið upp úr handskrift listakonunnar Rúnu, en hún féll frá 99 ára að aldri í byrjun mánaðarins. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Mzungu, eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora, sem kom út hjá Angustúru fyrr í vetur


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Suðurnesjabæ til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Anton Kristinn Guðmundsson, Framsóknarflokki og óháðum, Haukur Andreasson, Sjálfstæðisflokki og óháðum, Daði Bergþórsson, Miðflokki og Svavar Grétarsson, Samfylkingu og óháðum.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Fjarðabyggð til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Framsóknarflokki, Ragnar Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, Hrafn Bjarnason, Miðflokki og Stefán Þór Eysteinsson, Samfylkingu og öðru félagshyggjufólki.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Tónlistarmaður dagsins í dag er bandaríski píanóleikarinn Keith Jarrett, en hann er einn af þeim tónlistarmönnum sem getur spilað barokk og klassík, þungan rugludjass og ljóðrænan og notalegan djass jöfnum höndum. Í þessum þætti verður klassíska hliðin á honum ráðandi þótt örlítið verði farið út fyrir þann ramma, enda ekki annað hægt þegar maður eins og Jarrett er annars vegar.
Sá djass sem heyrist verður samt í mýflugumynd, og á mjög rólegum nótum. Hér er því flytjandinn og klassíkerinn Jarrett í brennidepli, en ekki djassarinn og tónskáldið.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu.
Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis.
Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu.
National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði.
Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann.
Tónlistin í þættinum:
Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni)
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson)
Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fréttir um kofa í vesturbæ Reykjavíkur sem til stendur að rífa vegna þess að hann er ekki öryggisvottað leiktæki hafa vakið mikla athygli. Í gær fengum við til okkar móður úr hverfinu sem velti fyrir sér hvort börn fái hreinlega ekki lengur að taka áhættur, sem geti jafnvel haft slæm áhrif til framtíðar. Sabína Steinunn Halldórsdóttir, íþrótta- og heilsufræðingur, hefur skoðað þessi mál og vill meina að við séum að taka allt of mörg tækifæri af börnum. Sabína hefur frætt fólk um hreyfifærni, hreysti og skynþroska barna í náttúrunni á námskeiðunum Færni til framtíðar og við heyrðum í henni.
Fréttir frá Bandaríkjunum um 1.500 hunda sem var bjargað frá því að vera seldir á tilraunastofur vöktu athygli víða um heim á dögunum. En hversu algengt er það að hundar gangi kaupum og sölum í þessum tilgangi? Er algengt að gerðar séu tilraunir á hundum fyrir vörur sem við notum dags daglega? Margrét Marteinsdóttir frá Dýraverndarsamtökum Íslands kom til okkar.
Við höldum áfram að fjalla um sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram næstkomandi laugardag. Í dag fengum við til okkar blaðamennina Eyrúnu Magnúsdóttur frá Gímaldinu og Aðalstein Kjartansson frá Heimildinni. Við ræðum hvernig baráttan hefur farið fram, hvernig flokkunum hefur gengið að koma stefnumálum sínum á framfæri og hvað gerist þegar talið verður upp úr kössunum um helgina.
Grunnskólakennarinn Ragnheiður Stephensen birti grein um skólamál á Vísi í gær undir fyrirsögninni „Það sem ekki má segja upphátt“. Ragnheiður bendir á ýmislegt sem betur mætti fara í íslenskum skólum og hvernig skýr námsmarkmið eftir greinum hurfu með tilkomu aðalnámskrár grunnskóla fyrir 15 árum. Þá veltir hún fyrir sér af hverju það sé „tabú“ að tala um samræmd próf við lok grunnskóla og sendir foreldrum sem taka ekki skólaskyldu alvarlega væna pillu. Við fengum Ragnheiði til okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Sjálfur Magnús Kjartansso kom í heimsókn og sagði frá hátíðinni Vor á Vatnsnesi, Þriðjudagsþemað var á sínum stað og það var Guðrún sem hringdi inn með þá frábæru hugmynd að hafa keðju þema, sem virkar þannig að það orð sem fyrsta lagið endar á skal vera fyrsta orðið í laginu sem tekur við og svo koll af kolli. Mjög skemmtilegt.
Lagalisti þáttarins:
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR – Draumaprinsinn
LIVE – Selling the drama
AMY WINEHOUSE – Back To Black
LEAVES – Good Enough
GRAFÍK – Húsið Og Ég
SALKA SÓL EYFELD – Sólin og ég
JÚLÍ HEIÐAR HALLDÓRSSON, RAGNHILDUR JÓNASDÓTTIR, RAGGA HOLM – Líður vel
THE STROKES – Going Shopping
THE CARDIGANS – Erase/Rewind
MUGISON – Kúrekinn (ég trúi á lygina)
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – Hot damn
BLUR – Out Of Time
CYNDI LAUPER – Time After Time
SUPERGRASS – Time
BEE GEES – You Should Be Dancing
MARTHA & THE VANDELLAS – Dancing In The Street
RADIOHEAD – Street Spirit
ROMY – Love Who You Love
HJALTALÍN – Love from 99
SUPERTRAMP – Goodbye Stranger
OASIS – Go Let It Out
ELVIS PRESLEY – In The Ghetto
CURTIS MAYFIELD – Ghetto child
BIRNIR, GUSGUS – Walk away
ADAMSKI – Killer
ÓÐMENN – Er mengunin hverfur
THE SMASHING PUMPKINS – 1979
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON OG MEMFISMAFÍAN – Þitt auga
KINGS OF LEON – To Space
BLONDIE – The Tide Is High
EMINEM – Lose yourself
DURAN DURAN – The Reflex
HOLE – Miss World
EMILÍANA TORRINI – Tookah
JD MCPHERSON – North Side Gal
JETHRO TULL – Aqualung

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir ekki forsvaranlegt að valda dýrum dauða og þjáningum í mótmælum. Tíu grísir drápust og fjölmörg dýr eru hölt og skrámuð eftir að brotist var inn í svínabú fyrirtækisins og svínum sleppt út.
Þingmenn Verkamannaflokksins sækja enn hart að leiðtoga flokksins Keir Starmer. Yfir áttatíu hafa hvatt hann til að segja af sér en hann segist ekki á förum.
Formaður stéttarfélags flugmanna sakar Icelandair um að reyna að sniðganga félagið. Icelandair boðar flugmenn til fundar á föstudag til að ræða kjaramál milliliðalaust.
Fjöldi þeirra sem grunaðir voru um að hafa atvinnu af vændi annarra tók stökk í fyrra miðað við árin á undan. Sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni telur þetta skýrast af að rannsókn slíkra mála hafi verið styrkt.
Framkvæmdastjóri Samorku, gerir ekki athugasemd við að Ísland hafi sagt sig frá orkusáttmálanum ECT. Úrsögnin dragi ekki úr getu fyrirtækja til að fjárfesta á Íslandi.
Fyrri undankeppni Eurovision er í kvöld. Ísland tekur ekki þátt en keppnin verður sýnd á RÚV.
Íbúum fjölgar í öllum kjördæmum landsins nema Norðurlandi vestra á fyrsta ársfjórðungi. Þörf er á aðgerðum til að lyfta landshlutanum upp að mati sveitarstjóra.
Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir sló þrjú Íslandsmet þegar hún hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Eitt og annað í Popplandi dagsins. Síkadelía frá Mukka, þjóðlagastemning frá Blood Harmony og ekta sænskt popp frá Zöru Larson (svo fátt eitt sé nefnt.)
SYSTUR - Furðuverur.
DOLLY PARTON - Jolene.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
Miley Cyrus - Wrecking ball.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég myndi líka hata mig.
ANOTR, 54 Ultra - Talk To You.
Birnir, GusGus - Walk away.
TRÚBROT - Hlustaðu Á Regnið.
Blood Harmony - Wicked heart.
LEONARD COHEN - Suzanne.
Kingfishr - The Blade.
Robyn - Talk To Me.
Larsson, Zara - Eurosummer (Girls Trip)(Clean).
PinkPantheress - Midnight sun (Girls trip).
Shakira - Eurosummer (Girls Trip)(Clean).
Larsson, Zara - Midnight sun (Girls trip).
LP - Lost on you.
Lennox, Annie - Walking on broken glass.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Ivar Klausen - Dreamer.
KK - Lífið er.
Issi - Bararara.
RED HOT CHILI PEPPERS - Dani California.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Ásgeir Trausti Einarsson - Ferris Wheel.
JET - Are You Gonna Be My Girl.
Edgehill - Doubletake.
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
MADONNA - Like A Prayer.
Carpenter, Sabrina - When Did You Get Hot.
Mukka - Spring.
Tame Impala - Dracula (JENNIE Remix)(Clean).
Mukka - So close.
Pink Floyd - Breathe In The Air (2023 Remaster).
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
Fike, Dominic - Babydoll.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var.
TRAVIS - Flowers In The Window.
INXS - Suicide Blonde.
Strokes, The - Going Shopping.
MT Jones - I Don't Understand.
Diljá Pétursdóttir, Hreimur - Svona var lífið.
BLOOD HARMONY - War Cry.
SYCAMORE TREE - Better call off the search for my soul.
TAYLOR SWIFT - Cardigan.
LILY ALLEN - Pussy Palace.
U2 - In a Life.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Suðurnesjabæ til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Anton Kristinn Guðmundsson, Framsóknarflokki og óháðum, Haukur Andreasson, Sjálfstæðisflokki og óháðum, Daði Bergþórsson, Miðflokki og Svavar Grétarsson, Samfylkingu og óháðum.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Fjarðabyggð til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Framsóknarflokki, Ragnar Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, Hrafn Bjarnason, Miðflokki og Stefán Þór Eysteinsson, Samfylkingu og öðru félagshyggjufólki.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson