Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um almyrkvann á miðvikudaginn í þættinum. Andrés Ingi Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, lagði fram tvær fyrirspurnir til ráðherra varðandi almyrkvann í janúar 2024. Hann spurði um ráðstafanir sem stjórnvöld hygðust grípa til.
Við ræddum um veðrið á miðvikudag við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing, sem er bjartsýnn á veðrið, og svo við Runólf Þórhallsson, yfirlögregluþjón almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra.
Í síðasta hluta þáttarins ræddum við um þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan við Huldu Þórisdóttur, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Við töluðum um umræðurnar, skautun og um það hvað sé líklegt til að hafa áhrif á afstöðu fólks til ESB atkvæðagreiðslunnar.
Tónlist:
Helena Eyjólfsdóttir, Hljómsveit Ingimars Eydal - Skín sól.
Gunnar Gunnarsson - Misty.
Mamas and Papas - Monday, Monday.
David Byrne - Everybody Laughs.
Talking Heads - Psycho killer.
Willie Nelson og Norah Jones - Here we go again.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Allskonar söngvar þar sem sumarið kemur við sögu með einum eða öðrum hætti. Ásgeir Trausti flytur lag sitt Sumargestur, Þorvaldur Davíð Kristjánsson flytur eigið lag sem heitir Sumarsaga og félagarnir Stebbi og Eyfi syngja Í sól og sumaryl. Herbert Guðmundsson flytur útfærslu sína á laginu Sumarið er stutt, sem er sænskrar ættar, Salka Sól syngur eigið lag Sólin og ég og Jón Jónsson og KK flytja lagið Sumarlandið. Haraldur Reynisson eigið lag og texta sem heitir Sumarið okkar, Öystein Magnús Gjerde flytur lag sitt Kæra sumarfrí, Anna María Björnsdóttir og Svavar Knútur flytja lag Önnu Maríu sem heitir Sumarnótt í Þórsmörk og að lokum flytja Una Torfa og CeaseTone lagið Þurfum ekki neitt. Umsjón: Jónatan Garðarsson
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Hver eru tengsl áhugamála og tilfinningalífs? Freyja Steindórsdóttir er doktorsnemi i klínískri sálfræði við Háskólann í Glasgow og er að rannsaka nákvæmlega þetta. Hún segir okkur líka frá því hvernig er að búa í Skotlandi, sem hún hefur gert síðustu 8 ár.
Safn vikunnar er Byggðasafnið á Garðskaga. Byggðasafnið á Garðskaga undirbýr sig nú fyrir að taka á móti fjölda gesta sem ætla að upplifa almyrkvann á Garðskaga. Það sem einkennir safnið mest er Vélasafn Guðna Ingimundarsonar, Guðna á Trukknum, en einnig er áhugaverð sýning sem ber nafnið Hugur, heimili og handverk sem segir og sýnir frá heimili á bilinu 1940 til 1970. Sýningin Ást á milli vita er ný og segir ástarsögu Ólafar þjónustustúlku á Reykjanesvita og Eyjólfs vitavarðar í Garðskagavita frá 1897. Margrét I Ásgeirsdóttir forstöðukona safna í Suðurnesjabæ segir okkur frá starfi safnsins.
Tónlist í þættinum:
Komdu í kvöld/Björgvin Halldórsson og Raggi Bjarna (Höf: Jón Sigurðsson)
Sunrise/Norah Jones
Sólarsamban/Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson-Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
Lífsgleði/Hljómar(Gunnar Þórðarsson - Þorsteinn Eggertsson)

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Búast má við umferðartöfum víða á vestanverðu landinu á miðvikudag vegna almyrkva á sólu. Fólk er hvatt til að fylgjast með myrkvanum heima, leggi það í ferðalög má búast við töfum.
Nágrannar segjast hafa séð tvo dökkklædda menn ganga að húsi á Kársnesi í Kópavogi í gær þar sem maður lést eftir alvarlega líkamsárás. Nokkrir voru handteknir en lögregla hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún óski eftir gæsluvarðhaldi.
Verkalýðshreyfingin segir að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp.
Um 900 milljónir manna búa í löndum og landssvæðum þar sem methiti mældist í júlí. Gróðureldar loga enn í Evrópu og Kanada.
Fjöldi björgunarsveita á Suðurlandi kom að björgun göngumanns sem slasaðist á fæti í gilinu við Háafoss í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til en að endingu var maðurinn borinn á sjúkrabörum úr gilinu og færður í sjúkrabíl.
Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur segir sífellt flóknara að sinna matvælaeftirliti með tilkomu netverslana. Fæðubótarefni hafa valdið koffíneitrun hjá ungmennum sem neyta þess.
Hilmar Örn Jónsson er kominn í úrslit í sleggjukasti á Evrópumóti í frjálsíþróttum í Birmingham sem hófst í morgun, eins og EM í sundi þar sem átta Íslendingar kepptu í dag.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um að sjá til þess að alltaf væri til kampavín á hótelinu.
Af hverju Schrader kom til Íslands til að byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kynnt sér leyndardómsfulla sögu þessa manns.
Schrader lét gott af sér leiða á Íslandi. Hann gaf út bók um íslenska hestinn, aðra um viðskiptafræði og kostaði eina fyrstu matreiðslubókina sem var gefin út á Íslandi. Hann byggði einnig hótel fyrir reiðmenn og hestana þeirra í Gilinu á Akureyri og stóð það í meira en hálfa öld.
Í þætti dagsins er fjallað um sögu Georgs Schraders en hún er háð ákveðnum leyndardómi og er til að mynda ekki til nein ljósmynd af honum þó hann hafi sjálfur tekið margar ljósmyndir hér á landi.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Stóðum tvö í túni. Þjóðlag í útsetningu eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Textinn er úr Víglundarsögu. Schola Cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Harmonikukonsert eftir FinnKarlsson. Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmónikuleikari leikur einleik með Kammersveitinni Elju. Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar.
Verkið er í sjö köflum:
I Draumur um flug
II Einn og svo
III Þráður
IV Tveir og svo
V Draugur Bontempis
VI Þrír og svo
VII Og svo framvegis
Söngur án orða, op. 62 nr. 1 eftir Felix Mendelssohn í umritun fyrir fiðlu og píanó eftir Fritz Kreisler. Vilde Frang leikur á fiðlu og José Gallardo á píanó. Hljóðritunin kom út 2017.
Assai tranquillo í h-moll, MWV Q 25 (Albumblatt) eftirr Felix Mendelssohn. István Várdai leikur á selló og Julien Quentin á píanó.
Píanósónata nr. 18 í Es-dúr (Veiðin) eftir Ludwig van Beethoven.
I. Allegro
II. Scherzo. Allegretto vivace
III. Menuetto. Moderato e grazioso
IV. Presto con fuoco
Yuja Wang leikur einleik á píanó.
3. þáttur, Allegretto úr Tríói í B-dúr, K.502 (1786) eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Augustin Dumay leikur á fiðlu Jian Wang leikur á selló og Maria João Pires leikur á píanó. Hljóðritunin kom út 1997.
3. Þáttur, Allegretto poco scherzoso: Amabile úr Sónötu nr. 1 í g-moll eftir Eugène Ysaye. Sólveig Steinþórsdóttir leikur einleik á fiðlu. Hljóðritunin kom út 2023.
Heylóarvísa eftir Atla Heimi Sveinsson (Úr Jónasarlögum). Ljóðið orti Jónas Hallgrímsson. Francisco Javier Jáuregui útsetti. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran syngur, Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson leika á gítara. Hljóðritunin kom út 2024.
Enginn módernismi án lesbía fjallar um hin oft gleymdu áhrif sem bandarísku lesbíurnar Gertrude Stein og Sylvia Beach höfðu á mótun módernismans í París snemma á 20. öld.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.
Gertrude Stein var einn af brimbrjótum módernismans í bókmenntum og markaði einnig djúp spor í blómstrandi listalífi Parísar. Hún kom sér upp einkasafni af verkum eftir listamenn sem að áttu eftir að marka þáttaskil í listasögunni og hefur vinnustofa hennar verið kölluð fyrsta móderníska listasafnið.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.

Skáldsögur Halldórs skoðaðar, lýsingar hans á tárum,
sem einkennast af miskunnarleysi og samúð í senn.
Umsjón: Elísabet Jökulsdóttir.
Lesari er Þröstur Leó Gunnarsson.
(frá árinu 2002)

Fréttir
Fréttir
Launafólk getur ekki setið eitt uppi með ábyrgð á verðbólgu í landinu. Það þarf "meira en ekkert" frá atvinnulífinu og stjórnvöldum til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp, segir forseti ASÍ. Forsenduákvæði þeirra virkjast að öllum líkindum í lok mánaðar.
Stóri óvissuþátturinn á sólmyrkvadegi verða ferðalög landsmanna - fjöldi erlendra ferðamanna í landinu er svipaður og var í ágúst í fyrra.
Yfir 70 fórust í sterkum jarðskjálfta í Kólumbíu í dag. Björgunarsveitir leita fólks sem er fast í rústum húsa.
Einn strokuminkur fannst í Mosfellsdal um helgina. Dregið hefur verið úr viðbúnaði við Dalsbú. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir aðgerðir hafa gengið vonum framar.
Kvikmyndaframleiðandi segir íslenska kvikmyndagerð við það að falla fram af bjargbrúninni. Bæta verði í fé til Kvikmyndasjóðs og auka fyrirsjáanleika í greininni.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til. Það var reynt að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu en sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag. Stóri óvissuþátturinn á þessum degi sé kannski hvernig landsmenn sjálfir hagi sínum ferðum.
Var samsæri Bandaríkjanna og Ísraels ástæða þess að tugir þúsunda Marokkómanna flýðu skyndilega yfir landamærin yfir í spænsku byggðina í Ceuta fyrir nokkru? Eða var þetta pólitísk refskák stjórnvalda í Marokkó, ætluð til að refsa Spánverjum á einhvern hátt? Kenningarnar vantar ekki. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók sér fyrir hendur að reyna skilja á milli sannleika og upplýsingaóreiðu.

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá lokatónleikum Reykholtshátíðar sem fram fóru í Reykholtskirkju í Borgarfirði 26. júlí sl. þar sem flytjendur hátíðarinnar komu fram í fjölbreyttri dagskrá.
Á efnisskrá:
-Sönglög og aríur eftir Paolo Tosti, Jules Massenet, Gustav Mahler og Gioachino Rossini.
- Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.
Flytjendur:
Söngvararnir Kristinn Sigmundsson, Jóhann Kristinsson og Arnheiður Eiríksdóttir, Mathias Halvorsen píanóleikari, fiðluleikarararnir Joaquin Páll Palomares og Pétur Björnsson, víóluleikararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Guðbjartur Hákonarson og sellóleikararnir Sigurgeir Agnarsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Hver eru tengsl áhugamála og tilfinningalífs? Freyja Steindórsdóttir er doktorsnemi i klínískri sálfræði við Háskólann í Glasgow og er að rannsaka nákvæmlega þetta. Hún segir okkur líka frá því hvernig er að búa í Skotlandi, sem hún hefur gert síðustu 8 ár.
Safn vikunnar er Byggðasafnið á Garðskaga. Byggðasafnið á Garðskaga undirbýr sig nú fyrir að taka á móti fjölda gesta sem ætla að upplifa almyrkvann á Garðskaga. Það sem einkennir safnið mest er Vélasafn Guðna Ingimundarsonar, Guðna á Trukknum, en einnig er áhugaverð sýning sem ber nafnið Hugur, heimili og handverk sem segir og sýnir frá heimili á bilinu 1940 til 1970. Sýningin Ást á milli vita er ný og segir ástarsögu Ólafar þjónustustúlku á Reykjanesvita og Eyjólfs vitavarðar í Garðskagavita frá 1897. Margrét I Ásgeirsdóttir forstöðukona safna í Suðurnesjabæ segir okkur frá starfi safnsins.
Tónlist í þættinum:
Komdu í kvöld/Björgvin Halldórsson og Raggi Bjarna (Höf: Jón Sigurðsson)
Sunrise/Norah Jones
Sólarsamban/Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson-Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
Lífsgleði/Hljómar(Gunnar Þórðarsson - Þorsteinn Eggertsson)

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Evrópumótið í frjálsíþróttum hefst í Birmingham á Englandi í dag og stendur mótið yfir dagana 10. - 16. ágúst. Ísland á átta keppendur og RÚV sýnir beint frá öllum mótshlutum. Við heyrðum í manninnum sem allt veit um frjálsar íþróttir - geitinni Sigurbirni Árna Arngrímssyni sem mun koma sér fyrir í hljóðstofu RÚV á Akureyri næstu daga og lýsa mótinu.
Okkar maður Sævar Helgi Bragason hefur í nógu að snúast þessa dagana enda styttist í stóru stundina en nú erum bara rúmir tveir sólarhringar í almyrkva á sólu. Sævar Helgi kom til okkar og við tókum sólmyrkvann allar 360 gráðurnar.
Enginn munur er á fjölda þeirra sem hyggjast segja já og þeirra sem ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. Ágúst. Þetta sýna niðurstöður Gallup-könnunar sem birt var fyrir helgi og gerð var fyrir hreyfinguna Áfram Ísland. . Hart er tekist á á öllum vígsstöðvum og mikill hiti hefur færst í umræðuna og svo virðist sem þjóðin sé klofin í tvennt. Við ræddum þessi mál strax að loknum átta fréttum við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor sem skrifaði á dögunum grein í Heimildina sem bar yfirskriftina: Um hvað snýst málið eiginlega? Og það er einmitt það sem við hér í Morgunútvarpinu leitum svara við.
Mikil aukning varð á útköllum hjá Landhelgisgæslunni í sumar og að sögn yfirflugstjóra gæslunnar Sigurðurðar Heiðars Wiium þyrfti að tvöfalda flota hennar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera. Við ræddum stöðu Landhelgisgæslunnar, sumarið og verkefnin við Sigurð Heiðar í þættinum.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Afmælisbarn dagsins er kenndur við ljós, saga af Ian Brown, Páll Óskar í spilavíti, guðfaðir Lily Allen og síðasta hár í heimi!
Lagalisti þáttarins:
LIGHTS ON THE HIGHWAY – Leiðin heim
PÁLL ÓSKAR & CASINO – Wichita Lineman
LILY ALLEN – Smile
THE CLASH – The Magnificent Seven
SNOOP DOGG, CHAKA KHAN – Boogie's in My Soul
MEMFISMAFÍAN – Syngdu
GREEN DAY – Boulevard Of Broken Dreams
BECK – Ride Lonesome
KRUMMI – Hinterland
ARNMUNDUR ERNST B. BJÖRNSSON, BUBBI MORTHENS – Ég vil deyja ungur (eins seint og auðið er)
ELLIOTT SMITH – Happiness
LEAVES – Catch
KIRIYAMA FAMILY – About you
ARIANA GRANDE – Hate that i made you love me
OASIS – Live Forever
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – I'm Out and I Wanna Go Home
SÓLDÖGG – Friður
MOSES HIGHTOWER – Húsið mitt
QUARASHI – Do it again
PRINCE – Delirious
OF MONSTERS & MEN – Television Love
STEFÁN HILMARSSON – Þrátt fyrir allt
STONE TEMPLE PILOTS - Plush
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS – Hvar Er Draumurinn?
JOHN GRANT, KAKTUS EINARSSON – Follow
LAY LOW – Bye Bye Troubles
GERRY RAFFERTY – Right Down the Line
TAME IMPALA – Loser
ASTRUD GILBERTO, STAN GETZ – The girl from Ipanema
THE VERVE – Drugs Don't Work
CHRISTINE AND THE QUEENS – Tilted
EAGLES – Life In The Fast Lane
DOMINIC FIKE – Babydoll
STEBBI JAK – Dönsum inn í hljóða nótt
IAN BROWN – Ripples
LUIGI, MARON BIRNIR REYNISSON, TÓMAS GAUTI ÓTTARSSON – Berdreymi
SPILLER – Groovejet
KK – Ég Vil Fá Að Sjá Þig
ALDOUS HARDING, HAWKLINE – Venus in the Zinnia
THE SOUL VENDORS - A House Is Not A Home

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Búast má við umferðartöfum víða á vestanverðu landinu á miðvikudag vegna almyrkva á sólu. Fólk er hvatt til að fylgjast með myrkvanum heima, leggi það í ferðalög má búast við töfum.
Nágrannar segjast hafa séð tvo dökkklædda menn ganga að húsi á Kársnesi í Kópavogi í gær þar sem maður lést eftir alvarlega líkamsárás. Nokkrir voru handteknir en lögregla hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún óski eftir gæsluvarðhaldi.
Verkalýðshreyfingin segir að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp.
Um 900 milljónir manna búa í löndum og landssvæðum þar sem methiti mældist í júlí. Gróðureldar loga enn í Evrópu og Kanada.
Fjöldi björgunarsveita á Suðurlandi kom að björgun göngumanns sem slasaðist á fæti í gilinu við Háafoss í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til en að endingu var maðurinn borinn á sjúkrabörum úr gilinu og færður í sjúkrabíl.
Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur segir sífellt flóknara að sinna matvælaeftirliti með tilkomu netverslana. Fæðubótarefni hafa valdið koffíneitrun hjá ungmennum sem neyta þess.
Hilmar Örn Jónsson er kominn í úrslit í sleggjukasti á Evrópumóti í frjálsíþróttum í Birmingham sem hófst í morgun, eins og EM í sundi þar sem átta Íslendingar kepptu í dag.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Oft er talað um að fasteignamarkaðurinn fari í einhverskonar pásu á sumrin hvort sem það er rétt eða ekki. En hvernig líður markaðinum núna í ágúst byrjun? Hvað sjá menn í spilunum? Páll Heiðar Pálsson, fasteignasali hjá Pálsson fasteignasölu, fór yfir markaðinn með okkur.
Sólmyrkvinn mun sjást þótt dragi fyrir sólu og spáð sé rigningu á miðvikudaginn. Fjöldi fólks ætlar sér þó að fylgjast með honum á góðum útsýnisstöðum. Einn þeirra er Reykjanesskaginn og búast má við töluverðri umferð um Reykjanesbrautina á þessum tíma. En hvað þurfa flugfarþegar á leið í og úr Leifsstöð að hafa í huga? Andri Ómarsson, verkefnastjóri markaðsmála hjá Keflavíkurflugvelli kom í Síðdegisútvarpið.
Þegar það er blíða þá eru það ekki bara mannfólkið sem rýkur út í sólina til að sýna sig og sjá aðra. Fornbílarnir fara líka á rúntinn til að sýna sig og sjá aðra. Í Reykjavík í kvöld mun félagsskapurinn Krúser, félag áhugamanna um akstur fara á rúntinn. Við hringdum í Hjálmar Hlöðversson formann félagsins sem er að gera allt klárt fyrir kvöldrúntinn sem hefst uppi á Höfðabakka.
Árlegur sumarskóli Rannsóknarseturs um smáríki við Háskóla Íslands stendur nú yfir, en þar er sjónum beint að öryggis- og varnarmálum smáríkja í Norður-Atlantshafi. Hátt í tuttugu nemendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum taka þátt, ásamt fjölda innlendra og erlendra sérfræðinga. En hvaða áskoranir blasa við smáríkjum í síbreytilegu öryggisumhverfi? Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði kom til okkar.
Stærsta litla bæjarhátíð í heimi, eins og hún er kynnt, hefst á Reykhólum í vikunni.
Reykhóladagar hefjast á einstakri náttúruupplifun þegar almyrkvi sólar verður yfir Íslandi á miðvikudaginn. Af því tilefni verða sérstakir Sólmyrkvatónleikar í Bjarkalundi þar sem Bríet stígur á svið eftir að Nói Klose hefur sett tóninn fyrir kvöldið. Embla Dögg Backmann Jóhannsdóttir kom til okkar en hún er framkvæmdarstjóri hátíðarinnar.
Evrópumótið í sundi hófst í París í morgun og stendur yfir fram á sunnudag. Tíu íslenskir sundmenn taka þátt í mótinu og keppa þar við fremstu sundmenn Evrópu. Ingi Þór Ágústsson lýsir keppninni á RÚV og hann leit til okkar í lok þáttar.
Og lok þáttar rak Bergsteinn Sigurðsson inn nefið hjá okkur en Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB og verða formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gestir þáttarins.

Fréttir
Fréttir
Launafólk getur ekki setið eitt uppi með ábyrgð á verðbólgu í landinu. Það þarf "meira en ekkert" frá atvinnulífinu og stjórnvöldum til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp, segir forseti ASÍ. Forsenduákvæði þeirra virkjast að öllum líkindum í lok mánaðar.
Stóri óvissuþátturinn á sólmyrkvadegi verða ferðalög landsmanna - fjöldi erlendra ferðamanna í landinu er svipaður og var í ágúst í fyrra.
Yfir 70 fórust í sterkum jarðskjálfta í Kólumbíu í dag. Björgunarsveitir leita fólks sem er fast í rústum húsa.
Einn strokuminkur fannst í Mosfellsdal um helgina. Dregið hefur verið úr viðbúnaði við Dalsbú. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir aðgerðir hafa gengið vonum framar.
Kvikmyndaframleiðandi segir íslenska kvikmyndagerð við það að falla fram af bjargbrúninni. Bæta verði í fé til Kvikmyndasjóðs og auka fyrirsjáanleika í greininni.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til. Það var reynt að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu en sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag. Stóri óvissuþátturinn á þessum degi sé kannski hvernig landsmenn sjálfir hagi sínum ferðum.
Var samsæri Bandaríkjanna og Ísraels ástæða þess að tugir þúsunda Marokkómanna flýðu skyndilega yfir landamærin yfir í spænsku byggðina í Ceuta fyrir nokkru? Eða var þetta pólitísk refskák stjórnvalda í Marokkó, ætluð til að refsa Spánverjum á einhvern hátt? Kenningarnar vantar ekki. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók sér fyrir hendur að reyna skilja á milli sannleika og upplýsingaóreiðu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Dr. Gunni - Allir í góðum gír.
Franz Ferdinand - Matinee.
Cold War Kids - Loyalty
The Smiths - Barbarism Begins At Home.
The Strokes - Lonely in the Future


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.