07:03
Morgunvaktin
Ísrael, Evrópa og ný rannsókn á vefjagigt

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Eftir rúma viku fara fram kosningar í Ísrael, þær fyrstu eftir hryðjuverkaárásina 7. október fyrir þremur árum og stríðin sem Ísraelar hafa háð í kjölfarið. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði og sérfræðingur í Mið-austurlöndum, ræddi kosningarnar.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel var á sínum stað með tíðindi frá Evrópu eftir morgunfréttir. Hann ræddi um mótmælin og óeirðirnar í Frakklandi síðustu daga, og um leiðtogafund Evrópusambandsins í síðustu viku.

Nýlega var birt rannsókn sem vísindamenn hér á landi tóku þátt í á erfðum vefjagigtar. Oft er einstaklingum með vefjagigt sagt að verkir þeirra séu bara sálrænir - en nýja rannsóknin bendir til þess að það sé sterkur tauga-líffræðilegur þáttur í sjúkdómnum. Við forvitnuðumst um þetta þegar Gyða Björnsdóttir vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og Arnór Víkingsson gigtarlæknir komu í þáttinn.

Tónlist:

Gordon Lightfoot - Early Morning Rain.

Markéta Irglová - Vegurinn heim.

Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott McLemore, Þorgrímur Jónsson - Johnsburg, Illinois.

Jeremy Ledbetter Trio - Song of the river.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
    ,