Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Kosið verður til þings í Rússlandi um helgina, en þetta eru fyrstu þingkosningarnar frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræddi um rússnesk stjórnmál.
Arthúr Björgvin Bollason sagði svo frá kosningum í Þýskalandi, en framundan eru tvennar fylkiskosningar og tíu dagar frá þeim síðustu. Merz kanslari á í vök að verjast, en hann er orðinn óvinsælasti kanslari frá lokum síðari heimstyrjaldar samkvæmt könnunum.
Húnvetningar hafa lengi barist fyrir úrbótum á veginum um Vatnsnes og nú er málið komið á framkvæmdaáætlun. Við ræddum um samgöngumálin og sitthvað fleira við oddvitann í Húnaþingi vestra, Sigurð Líndal Þórisson.
Tónlist:
Bítlarnir - The long and winding road.
Hildegard Knef - Berlin, Dein Gesicht hat Sommersprossen.
Ari Bragi Kárason, Davíð Þór Jónsson, Jóel Pálsson, Einar Scheving, Eyþór Gunnarsson - Keilir.
