22:03
Rokkland
Rokkland mælir með / Deus kemur / Oasis í bíó

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Rokkland mælir með: september 2026

Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands.

Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 49 mín.
e
Endurflutt.
,